Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Síða 23

Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Síða 23
ÚTVARPSTÍÐINDI 359 Jæja, heilirnar mínar. Hvar haldið þið að ég hafi nú verið í nótt? Já, ég svaf í lilöðu, eins og ég er vanur. En svo kom dólítið fyrir mig í gærkveldi, eftir að ég fór frá ykkur. Á ég að segja ykkur frá því? Börnin: Já, góði gerðu það. Er það ekki eitthvað skemmtilegt? Jólasv.: ó, nei, nei, ekki fannst rnér það skemmtilegt að minnsta kosti. Sko, þið vitið nú að ég heiti Pottasleikir Leppalúðason og mér þykir ósköp gott að sleikja innan pottana hjá henni mömmu ykkar. Sko, svo var það í gær- kvöldi, að ég kom i hús hérna vestur á Hringbrautinni og þar var húsmóðirin nýbúin að elda þennan líka indæla graut. Ég fór strax að sleikja út um þegar ég fann lyktina. Svo fór ég undir eins að sleikja pottinn þegar konan var farin úr eldhúsinu. En viljið þið vita hvað? Peg- ar ég er í bezta gengi að sleikja pott- inn, heyri ég að einhver er að koma, svo að ég ætla að hlaupa burt. En þá fór nú ver en ég vildi- Pottskömmin var svo lítil og hausinn á mér svo stór, að ég sat þarna fastur í pottinum og var auðvitað alveg blindur. Og svo hljóp ég beint í fangið á frúnni og við dutlum bæði í fangið á liúsbóndanum, sem var eitthvað að snúast fyrir aftan liana. Börnin: Ja, Sveinki minn, þetta var nú meira óhappið. Jólasv.: Já, en svo liljóp ég út um gluggann á stofunni og kom beint niður á höfuðið og þá brotnaði potturinn og ég fékk stóra kúlu á ennið, — sjáið þið, hérna, sko. Börnin: Jó, þetta gerir ekkert, reyndu heldur að syngja fyrir okkur. Jólasv.: Já, já, allt í lagi. Nú skal ég syngja fyrir ykkur vísurnar, sem ég orti i gærkveldi: (Syngur). Og svo má ég ekki vera að þessu leng- ur. Nú fer ég að hypja mig heim til min. Verið þið nú blessuð og sæl og þakka ykkur fyrir mig- Góða nótt, nórurnar mínar. Jóí olaói/emaóoncjur útvamlnu Um jólin verða sungin í útvarpið nokk- ur gleðierindi — og fara þrjú þeirra hér á eftir. Mun jólasveinn syngja erindin. Ef til vill birtum við þau öll seinna. Nú jólasveinarnir fara um fjöll — einn og átta, einn og átta- Og fara um byggðir og býlin öll — einn og átta, einn og átta Og þeir koma jafnt í þorp og borg, í Þykkvabæinn og Lælcjartorg einn og átta, einn og átta tra la la la la. Með rauða liúfu og skrítinn skúf. — Einn og átta, einn og átta. Hvöss er brúnin og höndin hrjúf. —• Einn og átta, einn og átta. Þeir eru á gægjum í gluggunum og gjóta augum úr skuggunum. — Einn og átta, einn og átta tra la la la la. Þeim finst það draumur að drekka mjólk. — Einn t»g átta, einn og átta, að drekka lýsi og tyggja tólk — einn og átta, einn og átta. Þeir jóðla magál og éta smér, við jólaköttinn þeir leika sér — einn og átta, einn og átta. tra la la la la. rjóh. js { RICE 1 KRISPIES “W® Eiga allir að nota daglega

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.