Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Page 39

Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Page 39
ÚTVARPSTiÐINDI 375 Ferðabók Sveins Pálssonar lœknis cr komin d bókamarkaSinn í mjög vandaöri útgáfu á vegum Snælands- útgáfunnar. FerSabókin er eili af mestu og gagnmerkustu ritum, sem skráð lxafa veriö um ísland og íslendinga og stendur fijllilega jafnfætis hinum öörum öndvegisritum 18. aldarinnar, Fer'öabók Eggerts ólafssonar og Bjarna Pálssonar og jaröbók Árna Magnússonar og Páls Vídalins. Sveinn Pálsson ferðaðist um landið og vann að rannsóknum sínum á árun- um 1791—1797. Skrifaði hann bókina á dönsku, eins og þeir Eggert og Bjarni ferðabók sína, og liefur Iiún síðan legið óprentuð í full 150 ár. Er þessi ómetanlegi dýrgripur þjóðinni því lítt kunnur. Sveinn var lærðasti náttúrufræðingur, sem uppi hefur verið hér á landi fyrir daga Porvaldar Thoroddsens. Hann gerði merkilegar uppgötvanir um jarðfræði landsins, gróður þess og jökla, og hafa þær fyrir löngu skipað lionum virðulegan sess meðal íslenzkra fræðimanna- En ferðabókin er einnig sönn uppspretta fróðleiks um landshagi og þjóðhætti í lok 18. aldar. Sveinn Pálsson fæddist að Steinsstöðum í Skagafirði 1702. Hann lauk stúdentsprófi í Hólaskóla, en var því næst fjögur ár við læknisnám lijá landlækninum í Nesi við Seltjörn. 1787 sigldi hann lil Hafnar til fram- haldsnáms, en hugur hans snerist brátt að náttúrufræði, og lauk hann prófi í þeim fræðum vorið 1791. Árin 1791—1794 starfaði hann á vegum náttúru- fræðifélagsins danska að rannsóknum hér á landi, var síðan skipaður læknir á Suðurlandi, en hélt þó áfram rannsóknum um skeið. Sat hann lengst af í Suður-Vík í Mýrdal, og náði læknisdæmi lians yfir Skaftafells- sýslur báðar. Rangárvallasýslu, Árnessýslu og Vestmannaeyjar. — Hann andaðist árið 1840. Fer'öabókin er þýdd af þeim Jóni Eyþórssijni, Pálma Hannessyni og Stein- dóri Steindórssyni á fagurt og kjarnmikiö mát, er fer vel viö efniö, og til útgáfunnar vandaö á allan hátt, svo sem luefir þessu merkilega riti. Feröabók Sveins Pálssonar er öndvegisrit, sem sérhverjum Islendingi hlýt- ur aö veröa rnetnaöarmál aö eignast• SNÆLAHÍDSÚICÁFAN H*F Lindargötu 9 A. — Sími 2353.

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.