Morgunblaðið - 28.11.2008, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008
Það er ekkert skrítið að JóhannaSigurðardóttir mælist vinsæl-
ust ráðherra í þjóðarpúlsi Gallup.
Hún er snillingur að slá sig til ridd-
ara á kostnað samráðherra í rík-
isstjórn.
Ég get fullvissað háttvirta þing-menn um það að það verður
ekki farið í neinn 10% flatan nið-
urskurð í velferð-
arkerfinu,“ sagði
Jóhanna á Al-
þingi í gær.
Þessi afstaðaJóhönnu
minnir á atvik í
ríkisstjórn Þor-
steins Pálssonar
árið 1988. Þá lét
hún færa til bók-
ar á ríkisstjórnarfundi mótmæli sín
vegna niðurskurðar á framlögum
ríkisins til byggingasjóða ríkisins
og jöfnunarsjóða sveitarfélaga.
Jóhanna gaf það í skyn í fjöl-miðlum að hún ætlaði ekki að
mæta á fundi ríkisstjórnar. Ráð-
herrann hótaði að fara í verkfall!
Ámeðan Jóhanna slær um sig ífjölmiðlum og segist ekki ætla
að skera niður þurfa aðrir ráð-
herrar að horfa á alla kostnaðarliði
í sínum ráðuneytum.
Umframkeyrslu ríkisfjármála ánæstu árum þarf að fjármagna.
Peningar detta ekki af himnum of-
an. Sá kostnaður lendir á fólkinu í
landinu.
Auðvitað er rétt að ríkisstjórninþarf að forgangsraða í þágu
velferðarmála við núverandi að-
stæður. Og spara á öðrum sviðum.
En er til of mikils mælst af Jó-hönnu Sigurðardóttur að hún
vinni að þessari stefnumótun á vett-
vangi ríkisstjórnarinnar og hætti
þessum einleik?
Jóhanna
Sigurðardóttir
Riddaratign Jóhönnu Sig.
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"
"
#
#
#
#
$%
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
"
"
"
*$BC
!
*!
$$B *!
&' (
'
! )!
<2
<! <2
<! <2
& ( *+%,-#*!.
C! -
62
" # $ %&
' (
) * *
B
# $+
' (
,'
& $
/
# - -
$
.&
+
+ &* ! / 0 & $
/0**
!11
*! 2 !
#!+%
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR
BORGARRÁÐ samþykkti í gær að banna vinstri
beygju af Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut til
reynslu í 6 mánuði. Umrædd gatnamót eru rétt við
veitingastaðinn Sprengisand. Tillagan var sam-
þykkt með 6 atkvæðum en Sigrún Elsa Smára-
dóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sat hjá.
Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarstjóri
og áheyrnarfulltrúi í borgarráði, lét bóka harðorð
mótmæli gegn lokun vinstri beygjunnar. „Um-
ferðarteppa á álagstímum er lítið vandamál miðað
við þau óþægindi og skert umferðaröryggi sem
íbúar Fossvogs og Bústaðahverfis munu búa við
alla aðra tíma sólarhringsins vegna þessarar lok-
unar. Ákvörðunin er tekin af stjórnmálamönnum
sem þykjast vita betur en fólkið í Fossvogs- og Bú-
staðahverfi sem vill beina umferð út úr hverfinu
en ekki inn í það, eins og meirihlutinn í borg-
arstjórn Reykjavíkur. Þessari ákvörðun þarfa að
hnekkja,“ segir í bókun Ólafs F. Magnússonar.
Sigrún Elsa lét bóka, að Hverfisráð Háaleitis
hefði sett sig upp á móti lokuninni. Hún muni fela í
sér verulega auka umferð um hverfið, einkum í ná-
grenni Réttarholtsskóla. Fyrr á kjörtímabilinu
hafi þáverandi borgarstjóri, Ólafur F. Magnússon,
lofað því á íbúafundi að ekkert yrði af lokuninni.
Sjálfstæðisflokkurinn hljóti að bera ábyrgð á lof-
orðum, sem íbúum hafi verið gefin í þeirra umboði
á kjörtímabilinu. sisi@mbl.is
Borgarráð bannar vinstri beygju
Morgunblaðið/Júlíus
Hægri snú Bannað verður að beygja til vinstri.