Morgunblaðið - 04.12.2008, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.12.2008, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008 KUNNUGIR segja að klippa megi trjágreinar nánast allt árið um kring, þó helst ekki yfir hásumarið. Á horni Lönguhlíðar og Miklubrautar var greinum á dögunum rakað saman á gangstéttinni eftir vetrarhreinsun í garðinum. Morgunblaðið/Valdís Thor Greinum rakað saman FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is MIÐAÐ við forsendur sem fyrst voru gerðar að umtalsefni á fjár- málaráðstefnu sveitarfélaga 13. nóv- ember, og hafa verið ræddar síðan hjá fulltrúum sveitarfélaga, er ráð fyrir því gert að launakostnaður muni hækka hjá sveitarfélögum um 5 prósent á næsta ári og annar rekstrarkostnaður um 10 prósent. Ef fram heldur sem horfir, það er að stórlega muni draga úr tekjum sveitarfélaga, mun rekstrarstaða margra sveitarfélaga verða afleit og kostnaðaraukinn þung byrði. Seðlabanki Íslands gerir ráð fyrir um 15,5 prósenta lækkun sam- anlagðra skatttekna ríkis og sveitar- félaga að nafnvirði. Gangi spár Seðlabankans og for- sendur sem kynntar voru á fjár- málaráðstefnunni eftir, má því gera ráð fyrir þungum róðri hjá sveit- arfélögum. Vandinn er víðtækur og snertir stór sem smá sveitarfélög. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er þegar hafinn undirbúningur að því hjá stjórnvöldum og fulltrúum sveitarfélaga að reyna að þrýsta á um að minni sveitarfélög verði sam- einuð, til þess „hreinlega að gera þeim kleift að þola þessa ágjöf“ eins einn viðmælenda Morgunblaðsins komst að orði. Einnig er til skoðunar að hækka hámarksútsvarsprósentu en hún er nú um 13,03 prósent. Mörg sveitarfélög fullnýta hana eins og mál standa nú. Þá er enn verið að leita leiða til þess að lina höggin sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu urðu fyrir vegna innskila á lóðum. Samtals hafa Kópavogur, Hafnarfjörður og Reykjavíkurborg þurft að greiða um 10 milljarða til þeirra sem skilað hafa inn lóðum. Þá hafa Hafnarfjarðarbær og Reykjavíkurborg einnig tekið lán í erlendri mynt sem hafa hækkað mikið vegna veikingar krónunnar. Þannig hafa lán hjá Reykjavík- urborg hækkað úr 4,7 milljörðum í 9 frá því fyrr á árinu. Það sama á við um Hafnarfjarðarbæ sem tók lán í erlendri mynt í mars upp á um þrjá milljarða, en það hefur hækkað um helming síðan. Í Peningamálum Seðlabanka Ís- lands og á vaxtaákvarðanadögum á undanförnum árum varaði bankinn við því að ríki og sveitarfélög, það er opinberir aðilar, stofnuðu til mikilla skulda og framkvæmda á meðan þenslan stóð sem hæst. Varnaðarorð Seðlabankans voru hundsuð að mestu leyti hvað sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu varðar, þar sem hundruðum lóða var úthlutað á uppgangstímum auk þess sem ráðist var í miklar framkvæmdir. Lóðum hefur síðan verið skilað sem að lok- um lendir á íbúum í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Brúttóskuldir sveitarfélaga, ef horft er til A-hluta efnahagsreikn- ings þeirra, um áramótin 2007/2008, voru um 136 milljarðar króna. Ekki hefur verið tekið saman hverjar þær eru núna en þær hafa hækkað mikið. Þung byrði sveitarfélaga  Miklar skuldir eru sveitarfélögum í landinu þung byrði  Þola ekki núverandi gengi krónunnar lengi  Viðvörunarorð Seðlabankans ítrekað hundsuð Ljóst er að hækkun gjalda og lækk- un tekna mun koma sveitar- félögum illa sem hafa staðið tæpt, meðal annars þeim sem hafa reitt sig á aukaframlag úr jöfn- unarsjóði. Laun og annar rekstr- arkostnaður námu um 82 prósent af tekjum sveitarfélaga á síðasta ári miðað við A-hluta efnahags- reiknings, samkvæmt tölum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ljóst er því að ekki má mikið út af bregða til þess að sveitarfélög lendi í vandræðum gangi spár um minni tekjur og aukin útgjöld eftir. Fulltrúar sveitarfélaga hafa lagt áherslu á að halda tekjum úr jöfn- unarsjóði í viðræðum við fulltrúa stjórnvalda. Samkvæmt drögum að fjárlagafrumvarpi næsta árs er ekki gert ráð fyrir aukaframlagi úr sjóðnum. Má lítið út af bregða í fjármálum sveitarfélaga FRÉTTASTRAUMAR mbl.is (RSS) hafa nú verið uppfærðir og skarta nú lengri textum og fréttamyndum. Fréttastraumar mbl.is bjóða not- endum upp á að fylgjast með nýj- ustu fréttum á sinn hátt. Til að nýta sér þá þarf að gerast áskrifandi með sérstökum lesara, sem er forrit sem sækir nýjasta efnið og birtir á þægilegan máta. Áskrift er alltaf ókeypis. Einnig er hægt að fá RSS- strauma með nýjustu skopteikn- ingum Halldórs, smáauglýsingum og fleira. Frekari kynningu og yf- irlit yfir RSS-strauma á mbl.is má finna á vefnum: mbl.is/rss. Betri frétta- straumar á mbl.is NÝ FERÐ verður dregin út á vegum Moggaklúbbs- ins fyrir jól, skíðaferð til Lungau í Austurríki. Björn Þórir Sigurðsson, starfsmaður á markaðsdeild Morgunblaðs- ins, segir að Moggaklúbb- urinn hafi fengið mjög góðar viðtökur. „Allir áskrifendur eru í Moggaklúbbnum,“ segir Björn Þórir, „og þetta er nokkurs konar tryggðarkerfi sem við byggjum utan um þá. Við viljum gera vel við þá.“ Klúbbnum var komið á fót í kringum 95 ára útgáfuafmæli Morgunblaðsins. Áskrifendum eru boðin til- boð í gegnum klúbbinn og Björn Þórir nefnir sem dæmi samstarf við Rekkjuna ný- lega þar sem boðinn var góð- ur afsláttur af rúmum – 8-10 rúm voru seld í tengslum við afsláttinn. Nýlega var dregin út fyrsta ferðin á vegum klúbbsins, hana fékk áskrif- andi sem verður 35 ára í febrúar, Alma Guðmunds- dóttir, hún mun sigla um Karíbahafið í apríl ásamt eig- inmanni sínum í boði Mogga- klúbbsins. Áskrifendur hafa einnig orðið varir við miða utan á blaðinu, þar sem boðið er 2 fyrir einn í bíó. Auk þess verður mánaðarlega dregin út ný ferð, sú næsta er Kan- aríeyjaferð fljótlega upp úr áramótum. Ný ferð dregin út fyrir jól Björn Þórir Sigurðsson TÓMAS Þorvaldsson, útgerðarmaður í Grindavík, lést á Heil- brigðisstofnun Suður- nesja í fyrrakvöld, á 89. aldursári. Tómas var í áratugi forystu- maður í sjávarútvegi og slysavörnum, var forstjóri og síðar stjórnarformaður Þor- bjarnar hf. í 47 ár. Tómas var fæddur á Eiði í Grindavík 26. desember 1919, sonur hjónanna Þorvaldar Klemenssonar smiðs og formanns og Margrétar Tóm- asdóttur húsmóður, á Járngerðar- stöðum. Tómas kynntist snemma sjó- mennskunni. Hann réði sig sem hálfdrætting til sjós 1934 og var sjó- maður hjá ýmsum til 1946 og síðan verkstjóri í fiskvinnslu í Grindavík og á Siglufirði. Árið 1953 stofnaði hann með þremur félögum sínum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Þorbjörn hf. í Grindavík og var lengst af aðaleigandi þess og for- stjóri frá upphafi til ársins 1985 að börn hans tóku við daglegri stjórn. Hann var virkur í félagsstarfi, bæði í heimabyggð og í sjáv- arútvegi á landsvísu. Þess má geta að hann var formaður björgun- arsveitarinnar Þor- bjarnar frá stofnun, 1947, og í þrjátíu ár. Hann var lengi for- maður stjórnar Sölu- sambands íslenskra fiskframleiðenda og sat í stjórnum Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, Samlags skreiðarframleiðenda, Fiskifélags Íslands og Vinnuveitendasambands Íslands, auk annars. Kona Tómasar var Hulda J. Björnsdóttir frá Kjalvararstöðum í Reykholtsdal. Hún lést 12. janúar sl. Þau eignuðust fjögur börn, Eirík, Gunnar, Stefán Þorvald og Gerði Sigríði. Af fyrra hjónabandi átti Tómas dótturina Stefaníu Kristínu en hún lést ung. Andlát Tómas Þorvaldsson útgerðarmaður VERÐ á bensíni og dísilolíu lækkaði í gær. Algeng verðlækkun var 2 krónur á bensínlítrann og 3 kr. á hvern lítra dísilolíu. Magnús Ásgeirsson, innkaupa- stjóri hjá N1, segir að lækkandi heimsmarkaðsverð skýri verðlækk- unina. Lækkandi verð á krónu gagn- vart Bandaríkjadal hafi verið að tefja það að hún kæmi fram. Magnús kveðst nokkuð bjartsýnn fyrir næsta ár. Spáð sé lækkandi hráolíuverði á heimsmarkaðsverði. Hins vegar sé sama óvissan með gengi krónunnar. Lægsta bensínverðið var í gær- kvöldi á sjálfsafgreiðslustöðvum Orkunnar, ÓB og Atlantsolíu í Hafn- arfirði, 139,30 til 139,40 kr. lítrinn. Almennt verð hjá Orkunni, ÓB og Atlantsolíu á höfuðborgarsvæðinu var hins vegar á bilinu rúmar 142 til rúmar 144 krónur. Algengt verð á bensínstöðvum Shell, Olís og N1 var 147,50 kr. í sjálfsafgreiðslu og á dís- ilolíu 176,60 kr. helgi@mbl.is Spá lækkandi heims- markaðsverði á olíu Bensín Olíufélögin lækkuðu bensínverð um 2 krónur í gær og dísilolíu um 3 kr. Morgunblaðið/Ómar LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu hefur það sem af er árinu hand- tekið 117 virka sölumenn fíkniefna. Aldrei hefur verið lagt hald á jafn- mikið af fíkniefnum og í ár. Við handtökur sölumannanna og fíkniefnaneytenda hefur verið lagt hald á þrjú kíló af marijúana, hálft annað kíló af kókaíni, annað eins af hassi og rúmlega kíló af amfetamíni. Þá hefur lögreglan lagt hald á yfir 600 e-töflur og ámóta magn af LSD- skömmtun, að ógleymdum 330 kannabisplöntum. 117 sölu- menn teknir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.