Morgunblaðið - 04.12.2008, Blaðsíða 52
52 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
1 5
5 1 3 7
6 7 3 2 1
1 4 8
2 8 9 5
9 8 6
1 5 2 7 3
2 3 7 4
4 8
5 2 6 1
3 4 5
7 6 2
2 4 5 8 6
3 7
3 5 9 8 4
2 3 6
8 5 9
3 6 9 1
9 4 3
8 5 7
7 9 8 3
4 6 3
6 5
3 7 9
8 4 1 9
1 2 6
3 2 1
9 4 7 5 8 3 2 6 1
8 2 5 1 6 7 4 3 9
6 3 1 2 9 4 8 5 7
4 8 9 7 3 1 6 2 5
2 1 6 8 4 5 9 7 3
5 7 3 9 2 6 1 4 8
3 6 8 4 5 9 7 1 2
7 9 4 3 1 2 5 8 6
1 5 2 6 7 8 3 9 4
2 9 6 3 4 5 8 1 7
1 4 8 7 6 9 2 5 3
7 5 3 2 1 8 4 6 9
9 1 5 4 3 7 6 2 8
3 6 2 9 8 1 7 4 5
4 8 7 5 2 6 9 3 1
8 2 1 6 7 3 5 9 4
6 7 9 1 5 4 3 8 2
5 3 4 8 9 2 1 7 6
9 8 1 6 3 5 4 2 7
4 6 3 2 1 7 9 8 5
2 5 7 8 4 9 6 3 1
3 7 2 9 5 8 1 4 6
1 4 8 3 7 6 2 5 9
5 9 6 1 2 4 3 7 8
6 2 9 7 8 3 5 1 4
8 3 5 4 9 1 7 6 2
7 1 4 5 6 2 8 9 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er fimmtudagur 4. desember,
339. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í sam-
anburði við þá dýrð, sem oss mun op-
inberast. (Rm. 8, 18.)
Nú nálgast jólin, með tilheyrandiveisluhöldum og þrúgandi fjöl-
skylduveislum. Þar keppast skyld-
menni við að sýna uppsafnaða þekk-
ingu sína og skoðanamyndun frá
liðnu ári. Víkverji er þar engin und-
antekning og hefur sig allan við að
safna upplýsingum, til að verða ekki
undir í fjölskylduboðinu. Hvert var
útgreiðsluhlutfallið úr peningamark-
aðssjóðum Glitnis? Hversu mikið
skertist séreignarsparnaður í al-
menna lífeyrissjóðnum? Er gott að
erlendir kröfuhafar fái hlutdeild í
nýju bönkunum? Eða er það algjört
rugl? Ekki dugir að Víkverji láti
gamlan læknisfræðimenntaðan
frænda sinn valta yfir sig í um-
ræðum um þetta allt saman. „Ehehe,
þetta er nú ekki rétt hjá þér,“ gæti
frændinn verið að segja, smjattandi
á rauðkáli og brúnni sósu, veifandi
silfurgaffli í áttina að Víkverja.
x x x
Víkverji er því strax farinn aðvelta fyrir sér jólalesningunni í
ár og snobbar þá skammlaust fyrir
„merkilegum“ bókum en fyrirlítur
vinsælustu bækurnar sem allir
munu lesa. Bókin um forseta lýð-
veldisins er álitleg. Víkverji er úr
íhaldssamri fjölskyldu og veit því að
útúrsnúningar hans á efni bók-
arinnar munu falla í frjóan jarðveg.
Á sama hátt gæti bókin um hrun FL-
Group reynst heilladrjúgt umræðu-
efni. Er ekki nokkuð öruggt veðmál
að skortselja þannig stjórnendur
þess fyrirtækis, svo að segja, fyrir
jólin?
x x x
Inn á milli lamast Víkverji þó af til-hugsuninni um þessa jólalesn-
ingu. Ætlar hann virkilega að verja
tíma sínum yfir fæðingarhátíð frels-
arans í botnlausa fordæmingu? Hvað
með að gleyma kreppunni í smá
stund og vera ekki með einhverja
fyrrverandi bankastjóra á heilanum
þegar „Heims um ból“ hljómar á
gömlu gufunni á aðfangadagskvöld.
Kannski er ráðlegt að geyma
bankabókmenntirnar þangað til eftir
áramót, en rifja til dæmis upp bækur
„gamla kallsins sem fékk óskarinn“
fyrir jólin. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 matgráðugur
maður, 4 skjall, 7 korns, 8
vatnsfall, 9 járnkrókur,
11 dýrs, 13 höfuðfat, 14
lóð, 15 mölbrjótur, 17
bæli, 20 stór geymir, 22
vinningur, 23 horskur, 24
stelur, 25 komast áfram.
Lóðrétt | 1 torvelda, 2
mylla, 3 ötul, 4 höf-
uðborg, 5 ginna, 6 gam-
alt, 10 hásetaklefi, 12
flýtir, 13 sjór, 15 hama-
gangur, 16 undirokun,
18 sjáum, 19 kaka, 20
tölustafur, 21 yfirlið.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 strekking, 8 allar, 9 funar, 10 ill, 11 apann, 13
ilina, 15 þröng, 18 sadda, 21 aum, 22 afrit, 23 Iðunn, 24
friðsamar.
Lóðrétt: 2 telja, 3 eyrin, 4 kefli, 5 nenni, 6 haga, 7 fróa,
12 nón, 14 lóa, 15 þras, 16 ögrar, 17 gatið, 18 smita, 19
dauða, 20 Anna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp í opnum flokki á Ól-
ympíuskákmótinu sem lauk fyrir
skömmu í Dresden í Þýskalandi.
Franski stórmeistarinn Sebastien
Maze (2577) hafði svart gegn pólska
kollega sínum Grzegorz Gajewski
(2577). 38… Bxg2! 39. Bg1 hvítur hefði
einnig tapað eftir 39. Hxg2 Dxg2+! 40.
Kxg2 Rxf4+. 39… Bc6 40. Rxh7
De2+! og hvítur gafst upp enda fokið í
flest skjól eftir 41. Dxe2 Hxh7+ 42.
Hh3 Hxh3+ 43. Kxh3 Rxf4+.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Minni spámenn.
Norður
♠K62
♥874
♦KG63
♣D64
Vestur Austur
♠D974 ♠10853
♥ÁD63 ♥K105
♦Á1094 ♦7
♣7 ♣109852
Suður
♠ÁG
♥G92
♦D852
♣ÁKG3
Suður spilar 3G.
Haustleikum Bandaríkjamanna er
nýlokið í Boston og þar fóru „usual su-
spects“ með sigur af hólmi í virðuleg-
asta mótinu, Reisinger-sveitakeppn-
inni. Það var auðvitað Nickell-gengið,
nú styrkt með Zia, sem er farinn að
spila fast við Hamman. Aðrir liðsmenn
eru Rodwell, Meckstorth, Nickell og
Freeman, ásamt þjálfaranum Kokish.
En ýmsir minni spámenn fengu líka
nöfnin sín í mótsblaðið. Einn var Jim
Gordon, lítt þekktur spilari, sem sat í
suður í spili dagsins og fékk út spaða
gegn 3G. Gordon renndi útspilinu heim
og drap tíu austurs með ÁS. Sótti svo
tígulásinn. Vestur reiknaði auðvitað
með ♠G hjá makker sínum og notaði
innkomuna á ♦Á til að spila spaða
áfram. Aftur hleypti Gordon heim og
tók níunda slaginn á gosann.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Eitthvað sem hrúturinn er að spá í
er sennilega ekki mjög góð hugmynd.
Ekki bera óþarfa byrðar úr fortíðinni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Liðið þitt á eftir að standa með þér.
Láttu ekki hugfallast heldur gerðu það
sem þarf til að koma skipulagi á líf þitt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér finnst engu líkara en allir hafi
myndað einhvers konar samsæri gegn
þér. Þú mátt ekki hafa svo miklar áhyggj-
ur af framtíðinni að þú getir ekki tekist á
við nútíðina.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þig dreymir um að flytja á lands-
byggðina, eða alla vegna rétt út fyrir bæ-
inn. Töfrar þínir og þolinmæði geta skilað
þér stöðuhækkun á árinu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Oft er flagð undir fögru skinni svo
þér er vissast að fara varlega í nýjum
kynnum. Hafðu takmörk þín á hreinu,
annars tekurðu of mikið að þér.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þarft ekki að takast á við æv-
intýrið einn, hetjurnar hafa þegar rutt
veginn og áttað sig á völundarhúsinu.
Gerðu hvað þú getur til þess að gera það
huggulegra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Viðskipti geta verið varasöm, þegar
ekkert tillit er tekið til aðstæðna. Verk þín
í dag hafa áhrif á framann á komandi ár-
um.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ekki halda að með því að eiga
meiri peninga verði líf þitt sveipað dýrð-
arljóma. Mundu að það kemur upp nei-
kvæðni í öllum fjölskyldum og að það
skiptir höfuðmáli hvernig unnið er úr
henni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er einhver spenna á heim-
ilinu og því hefðirðu gott af því að verja
tíma með vini þínum. Láttu reyna á sam-
starfsvilja annarra.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þó að þú sért vanalega upp á þitt
besta þegar það er nóg að gera hjá þér
geturðu verið afar góð/ur í að gera ekkert.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Allir samningar byggjast fyrst
og fremst á málamiðlunum. Enda hafa
ekki allir sömu skoðanir og þú og það ber
að virða.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur sterka löngum til listsköp-
unar. Skipulagning er lykilorðið og þú ætt-
ir að taka hana að þér til að tryggja árang-
ur.
Stjörnuspá
4. desember 1971
Eldur kom upp í veitingahús-
inu Glaumbæ við Fríkirkjuveg
í Reykjavík. „Brunnu allir inn-
viðir efri hæðarinnar en vist-
arverur á neðri hæð skemmd-
ust mikið af vatni og reyk,“
sagði í Þjóðviljanum. Þetta
hafði verið einn vinsælasti
skemmtistaðurinn í heilan
áratug. Húsið var gert upp og
hýsir nú Listasafn Íslands.
4. desember 1993
Ingólfstorg í Reykjavík var
formlega opnað eftir end-
urbætur á gatnamótum Aust-
urstrætis og Aðalstrætis.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Richard Björg-
vin Þorgeirsson,
til heimilis í
Birkihlíð 1 í
Vestmanna-
eyjum, er átt-
ræður í dag, 4.
desember. Rich-
ard dvelur nú á
Heilbrigð-
isstofnun Vestmannaeyja.
80 ára
Sigríður Stef-
ánsdóttir, Eyja-
hrauni 10 í Þor-
lákshöfn er
sextug í dag, 4.
desember. Eig-
inmaður hennar
er Ragnar Ósk-
arsson. Afmæl-
isbarnið síunga
verður heima með heitt á könnunni,
kleinur og pönnsur.
60 ára
ODDNÝ Ösp Gísladóttir, hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðurfræðinemi, er þrítug í dag. Oddný er
landsbyggðarkona út í gegn, uppalin á Egils-
stöðum en býr nú í Neskaupstað ásamt manni sín-
um, Erlingi Sigurjóni Ottóssyni, og tveimur son-
um. Hún lauk hjúkrunarfræðinámi frá
Háskólanum á Akureyri 2007 en leggur nú stund á
ljósmóðurfræði í fjarnámi frá Háskóla Íslands.
„Það var alltaf draumurinn svo ég greip tæki-
færið þegar það var boðið upp á þetta í fjarnámi,“
segir Oddný. Eins og svo oft áður í gegnum tíðina
er hún því í miðjum próflestri á afmælisdaginn, en
það kemur ekki að sök að hennar mati. „Á móti kemur að það er yf-
irleitt svo stutt í fríið,“ segir Oddný sem ætlar að fagna afmælinu á ró-
legu nótunum með fjölskyldunni í dag. Að prófunum loknum ætlar
hún hins vegar að skreppa suður og sletta úr klaufunum með systur
sinni og vinkonum. Oddný segir það ekki hafa komið sérstaklega nið-
ur á afmælisgjöfunum í gegnum árin að hún skuli eiga afmæli á að-
ventunni, enda sé hæfilega langt til jóla til að það skarist ekki. „En
svo skiptir það minnstu máli, heldur bara að njóta þessa tímabils því
desember er æðislegur mánuður.“ una@mbl.is
Oddný Ösp Gísladóttir 30 ára
Afmæliskaka í próflestri
Nýirborgarar
Reykjavík Elísabet Ell-
ertsdóttir og Trausti Sal-
var Kristjánsson eign-
uðust stúlku 16. nóvember
kl. 8.56. Hún vó 3.500 g og
var 51 cm á lengd.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is