Morgunblaðið - 04.12.2008, Blaðsíða 16
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra undirritaði í Osló í gær
alþjóðlegan samning um bann við klasasprengjum. Samningurinn bannar
þróun, framleiðslu, notkun, birgðasöfnun og afhendingu klasasprengna.
Samningurinn var undirritaður af hálfu 125 ríkja. Meðal viðstaddra við
undirritunina var Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra í Osló,
ásamt Þóri Guðmundssyni frá RKÍ og fleirum.
Bann við klasasprengjum
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
Tónleikar í Viðeyjarstofu
í kvöld
Ellen Kristjánsdóttir
og Eyþór Gunnarsson
Siglt frá Skarfabakka kl 20:00
Miðaverð kr 2.000
Panta þarf fyrirfram
Sími 555 3565
www.elding.is
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
GARÐAR Ólason, sveitarstjóri í
Grímsey, undrast að efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra skuli
ekki hafa ákært fyrrverandi sveit-
arstjóra, Brynjólfur Árnason, fyrir
fleiri brot en þau sem getið er um í
ákærunni gegn honum. Samkvæmt
upplýsingum frá efnahagsbrotadeild-
inni er aðeins ákært fyrir þau atriði
sem talin eru nægilega líkleg til sak-
fellis.
Eftir að grunur vaknaði um brot
fyrrverandi sveitarstjóra í lok nóv-
ember 2007 fólu sveitarstjórnarmenn
bókhaldsstofu og löggiltum endur-
skoðanda að kanna nákvæmlega bók-
hald hreppsins. Kæra sveitarstjórnar
Grímseyjar til efnahagsbrotadeild-
arinnar byggði á niðurstöðum þeirra
en þar var brotum fyrrverandi sveita-
stjóra lýst í 31 lið. Aðeins var ákært
fyrir hluta af þessum meintu brotum
en ákæran gegn honum er í 12 liðum.
Meðal þeirra brota sem lýst er í kær-
unni er að fyrrverandi sveitastjóri
hafi falsað nöfn sveitarstjórnarmanns
(Garðars) á skuldabréf, falsað reikn-
inga, keypt ýmsa hluti án heimildar,
gefið rangar upplýsingar um kostnað
við kaup á ýmsum hlutum og smurt
um 200.000 krónum ofan á mán-
aðarlegar launagreiðslur sínar í
óleyfi. Garðar segir að kostnaður
sveitarsjóðs vegna athæfisins hafi
numið um 35 milljónum króna. Eitt-
hvað hafi þó tekist að endurheimta.
Í ákærunni er sveitarstjórinn fyrr-
verandi sakaður um fjárdrátt upp á
tæplega 20 milljónir.
Að sögn Garðars kemur til greina
að sveitarstjórnin höfði einkamál
gegn sveitarstjóranum fyrrverandi til
að endurheimta það fé sem hrepp-
urinn hefur tapað.
Þegar leitað var skýringa hjá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
var minnst á að samkvæmt lögum
skuli aðeins ákæra ef gögn eru nægi-
leg eða líkleg til sakfellingar. Öll
kæruatriðin hefðu verið rannsökuð
en aðeins ákært ef sönnunargögn
uppfylltu ofangreint skilyrði. Falsað
gagn lægi fyrir í málinu en þar sem
því hefði ekki verið beitt í löggerningi
væri ekki ákært fyrir skjalafals held-
ur eingöngu fjárdrátt.
runarp@mbl.is
Töldu að ákært
yrði fyrir fleira
Kæra Grímseyinga mun umfangs-
meiri en ákæran Öll atriði rannsökuð
Morgunblaðið/Einar Falur
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
HEIMSMARKAÐSVERÐ á áli hef-
ur fallið hratt á undanförnum vikum
og mánuðum en staðgreiðsluverð á
tonni af áli var 1.642 dollarar í lok
dags í gær, samkvæmt upplýsingum
frá London Metal Exchange (LME).
Miklar hamfarir hafa einkennt
hrávörumarkaði undanfarna mán-
uði. Um miðjan júlí var verð á málm-
um og olíu í sögulegu hámarki. Fatið
af olíu kostaði þá 147 dollara en hef-
ur undanfarna daga sveiflast í kring-
um 50 dollara. Svipaða sögu er að
segja um álið en það hefur lækkað
úr 3.300 dollurum í júlí niður í 1.642
dollara nú. Tekjur íslenskra orku-
fyrirtækja, þá helst Landsvirkjunar,
Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu
Suðurnesja, sveiflast með álverði
vegna sölusamninga á raforku til ál-
vera. Þannig hefur álverðið bein
áhrif á tekjur af raforkusölu.
Fyrrnefnt lækkunarferli á verði á
áli er það hraðasta í sögunni, og það
sama má segja um margar aðrar
hrávörur eins og olíu og stál.
Sérfræðingar bandaríska bank-
ans JP Morgan telja að verð á olíu-
fati geti haldið áfram að lækka, og
fari jafnvel niður í 35 dollara. Þeir
telja einnig að verð á málmum geti
tekið mið af verðinu á olíu og því
lækkað nokkuð. Gangi spár sérfræð-
inga JP Morgan eftir getur verð á
tonni af áli lækkað enn frekar jafn-
vel niður í 1.200 dollara. Spár bank-
ans eru þó háðar mikilli óvissu.
Tæplega 12 prósent arðsemis-
krafa vegna orkusölu frá Kára-
hnjúkum byggist á því að verð á
tonni af áli sé um 1.550 dollarar
tonnið, miðað við samninga sem
undirritaðir voru snemma árs 2003.
Hlutabréf í mörgum framleiðslu-
fyrirtækjum á hrávörumarkaði, þar
á meðal álfyrirtækjum, hafa lækkað
mikið samhliða verðlækkanaferlinu.
Þannig hefur gengi hlutabréfa í Al-
coa fallið úr 35 dollurum í júlí niður
um 10 nú. Það gerir um 70 prósent
lækkun. Yfirstjórn Alcoa hefur að
undanförnu gripið til hagræðingar-
aðgerða, meðal annars með frestun
verkefna.
Forsvarsmenn Alcoa hér á landi
segja engar hagræðingaraðgerðir
vera framundan en álver fyrirtæk-
isins er á Reyðarfirði. Þá hyggst fyr-
irtækið áfram stefna að því að
byggja upp álver á Bakka við Húsa-
vík, þó að nokkurrar óvissu gæti um
það verkefni, m.a. vegna erfiðleika
Landsvirkjunar við að fjármagna
framkvæmdir þar sem lokað er fyrir
lán til fyrirtækisins í augnablikinu.
Álverð hefur í gegnum tíðina
sveiflast töluvert. Í byrjun árs 2003
var verðið í kringum 1.200 dollara á
tonnið. Síðan hækkaði það hratt yfir
þriggja ára tímabil en féll svo með
olíunni í haust.
Álið fallið úr 3.300
dollurum í 1.642
Hraðasta verð-
lækkun á olíufati í
sögunni
Morgunblaðið/ÞÖK
Álver Miklar verðlækkanir hafa einkennt hrávörumarkaði undanfarna
mánuði. Verð á áli hefur lækkað um næstum 50 prósent á fjórum mánuðum.
„MÉR finnst að
mesta áherslu
beri að leggja á
að heimilin
standi sterk núna
og að atvinnu-
lífið gangi, því að
heimilin standa
ekki sterk nema
atvinnulífið
gangi,“ segir
Árni Johnsen alþingismaður. Hann
boðar til ellefu atvinnulífsþinga í
byggðum Suðurkjördæmis þar sem
um hundrað framsögumenn tala
málin upp en ekki niður, eins og
segir í auglýsingu þingmannsins.
Fyrsta atvinnulífsþingið var í
Þorlákshöfn í gærkvöldi, tvö verða
í dag og einn til tveir fundir á dag í
heila viku. Fundirnir eru öllum
opnir.
Árni hefur fengið forystumenn
stærstu fyrirtækja kjördæmisins til
að segja frá starfsemi þeirra og spá
í framtíðina, auk þess sem bæj-
arstjórar ávarpa fundina. „Þetta er
gert til að vekja umræðuna og
hjálpa fólki við að losna við þá
óvissu sem hvílir yfir,“ segir Árni.
Hann segir að enginn hafi skorast
undan að taka þátt. „Mér finnst það
bera vott um baráttugleði og bjart-
sýni í mönnum.“
helgi@mbl.is
Málin eru
töluð upp en
ekki niður
Þingmaður efnir til
11 atvinnulífsþinga
Árni Johnsen