Morgunblaðið - 04.12.2008, Blaðsíða 25
ur verið að segja okkur frá þeirri
reiði sem ríkir vegna þess að það
hefur tapað sparifé sínu og eignum.
Þetta er mjög erfið staða. En þrátt
fyrir að staðan sé slæm er ég viss um
að Ísland nær sér á strik aftur,“ seg-
ir Paul, sem er bjartsýnn á að finna
vinnu hér.
Þau vonist til þess að fá að vera
áfram á Íslandi og að fjölskyldan
geti skotið hér rótum. Paul líst ekki á
þá tilhugsun að snúa aftur til Kenía,
þar sem hann telur öryggi fjölskyld-
unnar ógnað vegna stjórnmálaþátt-
töku sinnar. „Margir telja að staðan í
Kenía sé að batna. En þau okkar
sem þekkja til stjórnmála í Afríku
vita að komist maður á svartan lista
hjá stjórnvöldum er ómögulegt að
komast af honum aftur.“
Fídel Smári hefur braggast vel á
Íslandi. Rosemary segist hafa farið
með hann á mömmumorgun í kirkj-
unni. „Það var mjög gaman og ég
ætla að fara aftur. Þar deilir maður
reynslu sinni með öðrum for-
eldrum,“ segir hún.
Aðspurð segjast hjónin enn ekki
hafa ákveðið hvernig þau eyða
jólahátíðinni. „Venjulega útbúum við
kort, gefum gjafir og höldum veisl-
ur,“ segir Paul, en telur að fremur
lítið verði um gjafirnar í ár. Fíladel-
fíusöfnuðurinn hafi boðið þeim til
jólatónleika sem þau ætli að sækja.
„Við hittum áreiðanlega vini okkar
þar, en annað á eftir að koma betur í
ljós,“ segir hann.
.á Íslandi
Fréttir 25INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
Betri Notaðir Bílar
Kletthálsi 2
Reykjavík
Sími: 570-5220
NÝTT ÚTIBÚ
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
44
39
9
12
.2
00
8
www.toyota.is
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Aygo
1000 Bensín, sjálfsk.
Á götuna: 01.07. Ekinn: 5.000 km
Verð: 1.640.000 kr. Skr.nr. DD-746
Toyota Avensis Sol
1800 bensín, 5 gíra
Á götuna: 05.07. Ekinn: 48.000 km
Verð: 2.990.000 kr. Skr.nr. OH-403
Toyota Hilux
2500 dísel, 5 gíra
35" breyttur með hlutföllum, krómgrind,
heitkæðning í palli, dráttarbeisli.
Á götuna: 09.06. Ekinn: 25.000 km
Verð: 4.190.000 kr. Skr.nr. KX-340
BNB-sölugreining
Bílarnir ganga í gegnum strangt gæðamat sem tekur mið af aldri, akstri
og viðhaldssögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort
í flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur okkar
bjóðum við þér hann ekki.
Núna bjóðum við 6 betri notaða bíla
með 12 mánaða viðbótarábyrgð.
Toyota RAV4 GX
2000 bensín, sjálfsk.
Á götuna: 05.06. Ekinn: 55.000 km
Verð: 3.440.000 kr. Skr.nr. MZ-655
Toyota Yaris
1400 dísel, sjálfsk.
Á götuna: 03.06. Ekinn: 45.000 km
Verð: 1.950.000 kr. Skr.nr. ML203
SUMIR NOTAÐIR BÍLAR
ERU EINFALDLEGA BETRI EN AÐRIR
Toyota Corolla H/B
1400 bensín, 5 gíra
Á götuna: 09.06. Ekinn: 34.000
Verð: 2.060.000 kr. Skr.nr. PD-008
ÚRVALSBÍLLÚRVALSBÍLL
ÚRVALSBÍLLÚRVALSBÍLL
ÚRVALSBÍLL ÚRVALSBÍLL
Kletthálsi 2Kletthálsi 2
Kletthálsi 2 Nýbýlavegi 4 Kletthálsi 2 Kletthálsi 2
Mótmæli Efnt var til mótmæla við dómsmálaráðuneytið fyrr á árinu, Ram-
ses og fjölskyldu hans til stuðnings. Á endanum sameinaðist fjölskyldan.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„ÞETTA var mjög góður og fjöl-
mennur fundur,“ segir Sigfús Ingi
Sigfússon, framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins, um opinn
fund flokksins um Evrópumál. Á
fundinum gerðu Jón Sigurðsson,
fyrrverandi formaður Framsókn-
arflokksins, og Orri Hlöðversson
framkvæmdastjóri grein fyrir
tveimur skýrslum sem unnar hafa
verið á vegum flokksins um Evr-
ópumál frá árinu 2001 og 2007.
Spurður um tilefni fundarins
núna segir Sigfús ljóst að þessi mál
hafi lengið verið í umræðunni innan
flokksins. „Á miðstjórnarfundi
Framsóknarflokksins í maí sl. var
ákveðið að fjalla sérstaklega um
þjóðaratkvæðagreiðslur og Evr-
ópumál fyrir flokksþing. Fram-
kvæmdastjórninni var falið að fara
í þá vinnu og þetta er annar fund-
urinn í röð upplýsingafunda um
Evrópumálin. Fyrsti fundurinn var
í nóvemberbyrjun þar sem fjallað
var sérstaklega um þjóðaratkvæða-
greiðslur og stjórnarskrána,“ segir
Sigfús. Segist hann eiga von á því
að næsti fundur verði haldinn fyrir
jól, en ekki sé endanlega búið að
ákveða fjölda funda.
Aðspurður hvað fundarmönnum
hafi helst legið á hjarta í fyr-
irspurnum að framsögum loknum
segir Sigfús marga eðlilega hafa
velt fyrir sér hagsmunum Íslands
og hvort landinu væri betur borgið
innan eða utan ESB, hvernig ein-
stakar atvinnugreinar kæmu út,
hver möguleg samningsmarkmið
gætu verið auk þess að spyrja um
fullveldið og nýjan gjaldmiðil.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Opnar umræður Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins, setti fund um Evrópumálin.
Evrópuskýrslur Framsókn-
arflokksins ræddar á fundi
Evrópumálin sögð hafa verið lengi til umræðu