Morgunblaðið - 04.12.2008, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 04.12.2008, Qupperneq 52
52 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008 Sudoku Frumstig 1 5 5 1 3 7 6 7 3 2 1 1 4 8 2 8 9 5 9 8 6 1 5 2 7 3 2 3 7 4 4 8 5 2 6 1 3 4 5 7 6 2 2 4 5 8 6 3 7 3 5 9 8 4 2 3 6 8 5 9 3 6 9 1 9 4 3 8 5 7 7 9 8 3 4 6 3 6 5 3 7 9 8 4 1 9 1 2 6 3 2 1 9 4 7 5 8 3 2 6 1 8 2 5 1 6 7 4 3 9 6 3 1 2 9 4 8 5 7 4 8 9 7 3 1 6 2 5 2 1 6 8 4 5 9 7 3 5 7 3 9 2 6 1 4 8 3 6 8 4 5 9 7 1 2 7 9 4 3 1 2 5 8 6 1 5 2 6 7 8 3 9 4 2 9 6 3 4 5 8 1 7 1 4 8 7 6 9 2 5 3 7 5 3 2 1 8 4 6 9 9 1 5 4 3 7 6 2 8 3 6 2 9 8 1 7 4 5 4 8 7 5 2 6 9 3 1 8 2 1 6 7 3 5 9 4 6 7 9 1 5 4 3 8 2 5 3 4 8 9 2 1 7 6 9 8 1 6 3 5 4 2 7 4 6 3 2 1 7 9 8 5 2 5 7 8 4 9 6 3 1 3 7 2 9 5 8 1 4 6 1 4 8 3 7 6 2 5 9 5 9 6 1 2 4 3 7 8 6 2 9 7 8 3 5 1 4 8 3 5 4 9 1 7 6 2 7 1 4 5 6 2 8 9 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. Í dag er fimmtudagur 4. desember, 339. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í sam- anburði við þá dýrð, sem oss mun op- inberast. (Rm. 8, 18.) Nú nálgast jólin, með tilheyrandiveisluhöldum og þrúgandi fjöl- skylduveislum. Þar keppast skyld- menni við að sýna uppsafnaða þekk- ingu sína og skoðanamyndun frá liðnu ári. Víkverji er þar engin und- antekning og hefur sig allan við að safna upplýsingum, til að verða ekki undir í fjölskylduboðinu. Hvert var útgreiðsluhlutfallið úr peningamark- aðssjóðum Glitnis? Hversu mikið skertist séreignarsparnaður í al- menna lífeyrissjóðnum? Er gott að erlendir kröfuhafar fái hlutdeild í nýju bönkunum? Eða er það algjört rugl? Ekki dugir að Víkverji láti gamlan læknisfræðimenntaðan frænda sinn valta yfir sig í um- ræðum um þetta allt saman. „Ehehe, þetta er nú ekki rétt hjá þér,“ gæti frændinn verið að segja, smjattandi á rauðkáli og brúnni sósu, veifandi silfurgaffli í áttina að Víkverja. x x x Víkverji er því strax farinn aðvelta fyrir sér jólalesningunni í ár og snobbar þá skammlaust fyrir „merkilegum“ bókum en fyrirlítur vinsælustu bækurnar sem allir munu lesa. Bókin um forseta lýð- veldisins er álitleg. Víkverji er úr íhaldssamri fjölskyldu og veit því að útúrsnúningar hans á efni bók- arinnar munu falla í frjóan jarðveg. Á sama hátt gæti bókin um hrun FL- Group reynst heilladrjúgt umræðu- efni. Er ekki nokkuð öruggt veðmál að skortselja þannig stjórnendur þess fyrirtækis, svo að segja, fyrir jólin? x x x Inn á milli lamast Víkverji þó af til-hugsuninni um þessa jólalesn- ingu. Ætlar hann virkilega að verja tíma sínum yfir fæðingarhátíð frels- arans í botnlausa fordæmingu? Hvað með að gleyma kreppunni í smá stund og vera ekki með einhverja fyrrverandi bankastjóra á heilanum þegar „Heims um ból“ hljómar á gömlu gufunni á aðfangadagskvöld. Kannski er ráðlegt að geyma bankabókmenntirnar þangað til eftir áramót, en rifja til dæmis upp bækur „gamla kallsins sem fékk óskarinn“ fyrir jólin. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 matgráðugur maður, 4 skjall, 7 korns, 8 vatnsfall, 9 járnkrókur, 11 dýrs, 13 höfuðfat, 14 lóð, 15 mölbrjótur, 17 bæli, 20 stór geymir, 22 vinningur, 23 horskur, 24 stelur, 25 komast áfram. Lóðrétt | 1 torvelda, 2 mylla, 3 ötul, 4 höf- uðborg, 5 ginna, 6 gam- alt, 10 hásetaklefi, 12 flýtir, 13 sjór, 15 hama- gangur, 16 undirokun, 18 sjáum, 19 kaka, 20 tölustafur, 21 yfirlið. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 strekking, 8 allar, 9 funar, 10 ill, 11 apann, 13 ilina, 15 þröng, 18 sadda, 21 aum, 22 afrit, 23 Iðunn, 24 friðsamar. Lóðrétt: 2 telja, 3 eyrin, 4 kefli, 5 nenni, 6 haga, 7 fróa, 12 nón, 14 lóa, 15 þras, 16 ögrar, 17 gatið, 18 smita, 19 dauða, 20 Anna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Staðan kom upp í opnum flokki á Ól- ympíuskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Dresden í Þýskalandi. Franski stórmeistarinn Sebastien Maze (2577) hafði svart gegn pólska kollega sínum Grzegorz Gajewski (2577). 38… Bxg2! 39. Bg1 hvítur hefði einnig tapað eftir 39. Hxg2 Dxg2+! 40. Kxg2 Rxf4+. 39… Bc6 40. Rxh7 De2+! og hvítur gafst upp enda fokið í flest skjól eftir 41. Dxe2 Hxh7+ 42. Hh3 Hxh3+ 43. Kxh3 Rxf4+. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Minni spámenn. Norður ♠K62 ♥874 ♦KG63 ♣D64 Vestur Austur ♠D974 ♠10853 ♥ÁD63 ♥K105 ♦Á1094 ♦7 ♣7 ♣109852 Suður ♠ÁG ♥G92 ♦D852 ♣ÁKG3 Suður spilar 3G. Haustleikum Bandaríkjamanna er nýlokið í Boston og þar fóru „usual su- spects“ með sigur af hólmi í virðuleg- asta mótinu, Reisinger-sveitakeppn- inni. Það var auðvitað Nickell-gengið, nú styrkt með Zia, sem er farinn að spila fast við Hamman. Aðrir liðsmenn eru Rodwell, Meckstorth, Nickell og Freeman, ásamt þjálfaranum Kokish. En ýmsir minni spámenn fengu líka nöfnin sín í mótsblaðið. Einn var Jim Gordon, lítt þekktur spilari, sem sat í suður í spili dagsins og fékk út spaða gegn 3G. Gordon renndi útspilinu heim og drap tíu austurs með ÁS. Sótti svo tígulásinn. Vestur reiknaði auðvitað með ♠G hjá makker sínum og notaði innkomuna á ♦Á til að spila spaða áfram. Aftur hleypti Gordon heim og tók níunda slaginn á gosann. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Eitthvað sem hrúturinn er að spá í er sennilega ekki mjög góð hugmynd. Ekki bera óþarfa byrðar úr fortíðinni. (20. apríl - 20. maí)  Naut Liðið þitt á eftir að standa með þér. Láttu ekki hugfallast heldur gerðu það sem þarf til að koma skipulagi á líf þitt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þér finnst engu líkara en allir hafi myndað einhvers konar samsæri gegn þér. Þú mátt ekki hafa svo miklar áhyggj- ur af framtíðinni að þú getir ekki tekist á við nútíðina. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þig dreymir um að flytja á lands- byggðina, eða alla vegna rétt út fyrir bæ- inn. Töfrar þínir og þolinmæði geta skilað þér stöðuhækkun á árinu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Oft er flagð undir fögru skinni svo þér er vissast að fara varlega í nýjum kynnum. Hafðu takmörk þín á hreinu, annars tekurðu of mikið að þér. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú þarft ekki að takast á við æv- intýrið einn, hetjurnar hafa þegar rutt veginn og áttað sig á völundarhúsinu. Gerðu hvað þú getur til þess að gera það huggulegra. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Viðskipti geta verið varasöm, þegar ekkert tillit er tekið til aðstæðna. Verk þín í dag hafa áhrif á framann á komandi ár- um. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Ekki halda að með því að eiga meiri peninga verði líf þitt sveipað dýrð- arljóma. Mundu að það kemur upp nei- kvæðni í öllum fjölskyldum og að það skiptir höfuðmáli hvernig unnið er úr henni. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er einhver spenna á heim- ilinu og því hefðirðu gott af því að verja tíma með vini þínum. Láttu reyna á sam- starfsvilja annarra. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þó að þú sért vanalega upp á þitt besta þegar það er nóg að gera hjá þér geturðu verið afar góð/ur í að gera ekkert. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Allir samningar byggjast fyrst og fremst á málamiðlunum. Enda hafa ekki allir sömu skoðanir og þú og það ber að virða. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur sterka löngum til listsköp- unar. Skipulagning er lykilorðið og þú ætt- ir að taka hana að þér til að tryggja árang- ur. Stjörnuspá 4. desember 1971 Eldur kom upp í veitingahús- inu Glaumbæ við Fríkirkjuveg í Reykjavík. „Brunnu allir inn- viðir efri hæðarinnar en vist- arverur á neðri hæð skemmd- ust mikið af vatni og reyk,“ sagði í Þjóðviljanum. Þetta hafði verið einn vinsælasti skemmtistaðurinn í heilan áratug. Húsið var gert upp og hýsir nú Listasafn Íslands. 4. desember 1993 Ingólfstorg í Reykjavík var formlega opnað eftir end- urbætur á gatnamótum Aust- urstrætis og Aðalstrætis. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Richard Björg- vin Þorgeirsson, til heimilis í Birkihlíð 1 í Vestmanna- eyjum, er átt- ræður í dag, 4. desember. Rich- ard dvelur nú á Heilbrigð- isstofnun Vestmannaeyja. 80 ára Sigríður Stef- ánsdóttir, Eyja- hrauni 10 í Þor- lákshöfn er sextug í dag, 4. desember. Eig- inmaður hennar er Ragnar Ósk- arsson. Afmæl- isbarnið síunga verður heima með heitt á könnunni, kleinur og pönnsur. 60 ára ODDNÝ Ösp Gísladóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðurfræðinemi, er þrítug í dag. Oddný er landsbyggðarkona út í gegn, uppalin á Egils- stöðum en býr nú í Neskaupstað ásamt manni sín- um, Erlingi Sigurjóni Ottóssyni, og tveimur son- um. Hún lauk hjúkrunarfræðinámi frá Háskólanum á Akureyri 2007 en leggur nú stund á ljósmóðurfræði í fjarnámi frá Háskóla Íslands. „Það var alltaf draumurinn svo ég greip tæki- færið þegar það var boðið upp á þetta í fjarnámi,“ segir Oddný. Eins og svo oft áður í gegnum tíðina er hún því í miðjum próflestri á afmælisdaginn, en það kemur ekki að sök að hennar mati. „Á móti kemur að það er yf- irleitt svo stutt í fríið,“ segir Oddný sem ætlar að fagna afmælinu á ró- legu nótunum með fjölskyldunni í dag. Að prófunum loknum ætlar hún hins vegar að skreppa suður og sletta úr klaufunum með systur sinni og vinkonum. Oddný segir það ekki hafa komið sérstaklega nið- ur á afmælisgjöfunum í gegnum árin að hún skuli eiga afmæli á að- ventunni, enda sé hæfilega langt til jóla til að það skarist ekki. „En svo skiptir það minnstu máli, heldur bara að njóta þessa tímabils því desember er æðislegur mánuður.“ una@mbl.is Oddný Ösp Gísladóttir 30 ára Afmæliskaka í próflestri Nýirborgarar Reykjavík Elísabet Ell- ertsdóttir og Trausti Sal- var Kristjánsson eign- uðust stúlku 16. nóvember kl. 8.56. Hún vó 3.500 g og var 51 cm á lengd. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.