Morgunblaðið - 04.12.2008, Page 20
20 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
NOTKUN sjálfvirku salernanna í
Reykjavík hefur stóraukist eftir að
tíu króna gjald á þau var lagt niður.
Fimm salerni eru í miðbænum,
við Frakkastíg, í Mæðragarði, við
Hlemm, við Vegamótastíg og við
Ingólfstorg. Salernið við Hlemm er
mest notað og var met sett í nóv-
ember þegar um 1.200 notuðu það.
Salernið við Ingólfstorg er næst-
mest notað og fóru notendur yfir
800 í júlí og ágúst. Á Vegamótastíg
er notkun mest yfir 400 á mánuði
og við Frakkastíg og Mæðragarð er
notkunin mest yfir 200 á mánuði.
Mikil salernisnotkun
Eftir Atla Vigfússon
Aðaldalur | Jólaföndur var á öllum
borðum í skólastofunum í Hafra-
lækjarskóla í gærmorgun en hefð
er fyrir því að foreldrar, kennarar
og nemendur eigi notalega stund í
skólanum á aðventunni.
Dagurinn byrjaði með því að
kveikt var á jólatrénu við skólann
og sungin voru jólalög. Síðan var
hafist handa við föndrið og var því
skipt upp í fimm starfsstöðvar og
gátu allir gengið á milli allt eftir því
hvað var mest spennandi. Þar var
að finna hóp sem gerði glugga-
myndir meðan aðrir voru í ker-
amikmálun og að gera kertaluktir.
Þá voru enn aðrir að vinna með filt
og sauma og einnig var að finna
svokallaða pappírsstöð þar sem
jólakettir, kort og óróar voru fram-
leidd í miklu magni.
Kaffi, ávaxtadrykkir og pip-
arkökur voru á boðstólum og virt-
ust allir mjög ánægðir með þessa
tilbreytingu í skólastarfinu.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Þrætt Bjarni Höskuldsson var upptekinn við að þræða nál fyrir dóttur sína
Jönu Valborgu og svo átti að sauma saman skreytingarnar.
Árlegur föndurdagur í Hafralækjarskóla
ÁRLEG jólaráðstefna Skýrslu-
tæknifélags Íslands fer fram að
Engjateigi 9 á morgun, föstudag,
frá kl. 14.30 til 17. Ráðstefnan, sem
verður undir yfirskriftinni Upp-
bygging til framtíðar, mun fjalla
um hvernig fólk og fyrirtæki í upp-
lýsingatækni geta mætt nýjum að-
stæðum og byggt sig upp til fram-
tíðar. Sviptingar í efnahagslífinu að
undanförnu hafa haft mikil áhrif á
starfsöryggi í upplýsingatækninni
og er ætlun fundarins að finna
réttu tólin til aðstoðar.
Uppbygging til
framtíðar
HALDNIR verða styrktartónleikar fyrir krabbameins-
sjúk börn í Háskólabíói fimmtudaginn 27. desember og
hefjast þeir kl. 16. Miðasala er hafin á www.midi.is.
Árlega greinast að meðaltali um 10-12 börn og ung-
lingar með krabbamein á Íslandi. Markmiðið með stofn-
un Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna var m.a. að
styðja við bakið á þeim og aðstandendum þeirra, bæði
fjárhagslega og félagslega. Þetta er tíunda árið í röð
sem tónleikar til styrktar krabbameinssjúkum börnum
eru haldnir og á þeim tíma hafa safnast rúmar 25 millj-
ónir í aðgangseyri.
Allir tónlistarmenn og öll fyrirtæki sem að tónleik-
unum koma gefa vinnu sína. Fram koma Sálin hans Jóns míns, Sprengju-
höllin, Skítamórall, Bubbi Morthens, Stuðmenn, Lay Low, Páll Óskar,
Ragga Gröndal, Friðrik Ómar og Regína, Ingó og Veðurguðirnir, Klauf-
arnir og Helgi Björnsson.
Tónleikar fyrir krabbameinssjúk börn
Bubbi Morthens
FAIR Trade-verslunin hefur verið
opnuð á nýjan leik, nú í samstarfi
við natturan.is. Í búðinni er að
finna fjölbreytt úrval af vörum sem
bera Fair Trade-vottun.
Fair Trade er nokkurs konar sið-
gæðisvottun sem er staðfesting á að
vara er unnin á siðferðislegan og
sanngjarnan hátt án skaðlegra
áhrifa fyrir starfsmenn og að þeir
fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína.
Með því að kaupa slíkar vörur er
fólk hvatt til lífrænnar ræktunar,
stuðnings við lýðræðisþróun og
baráttu gegn barnaþrælkun og mis-
rétti vegna kyns, húðlitar og trúar.
Fair Trade á Íslandi
STUTT
OPINN fyrirlestur um hlutverk og
framtíð frjálsra félagasamtaka á
krepputímum fer fram í Háskóla Ís-
lands, á morgun, föstudaginn 5.
desember milli kl. 14.30 og 15.30 í
Odda, stofu 101.
Fyrirlesari verður dr. Helmut K.
Anheier, prófessor við Heidelberg-
háskóla í Þýskalandi og London
School of Economics. Nauðsynlegt
er að skrá þátttöku og er hægt að
gera það í gegnum www.hi.is. Að
fyrirlestrinum standa félagsráð-
gjafar- og stjórnmálafræðideild HÍ,
Almannaheill, Rannsóknasetur um
barna- og fjölskylduvernd og Rann-
sóknastöð um þjóðmál.
Hlutverk félaga-
samtaka í kreppu
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
44
39
1
11
/0
8
JÓLAGJÖFIN
SEM FLÝGUR ÚT
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
VERÐ FRÁ 26.900 KR.
+ Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 31. mars 2009.
+ Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign
upp í fargjöld með Icelandair.
+ Pantaðu jólapakkann á www.icelandair.is
I EF ÞÚ BORGAR JÓLAPAKKANN MEÐ VILDARKORTI VISA
OG ICELANDAIR FÆRÐU 5.000 AUKA VILDARPUNKTA.
I ATHUGIÐ AÐ HÆGT ER AÐ GREIÐA FYRIR HÓTELGISTINGU MEÐ VILDARPUNKTUM,
FRÁ 14.000 PUNKTUM Á NÓTT FYRIR TVO.
Traustur
íslenskur ferðafélagi
* Innifalið: Flug fram og til baka, skattar og önnur gjöld. Sölutímabil er til 24. des. 2008 kl. 18:00. Bókunartímabil er frá 22. desember til og með 23. jan. 2009.
Jólapakkatilboð gildir til Boston, New York, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Oslóar, London, Manchester, Frankfurt, Parísar og Amsterdam.
Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 750–11.200 Vildarpunkta.
„ÁKVÖRÐUN Kjararáðs kemur
ekki á óvart miðað við þann laga-
ramma sem ráðinu ber að starfa eft-
ir. Hins vegar er reynsla fyrir því að
Alþingi breyti þeim lögum sem
launakjörin varða þegar því þykja
aðstæður kalla á breytingar og kynni
sú leið að verða farin nú,“ segir
Haukur Ingibergsson, forstjóri
Fasteignamats ríkisins og formaður
Félags forstöðumanna ríkisstofn-
ana. Hann segir jafnframt að Félag
forstöðumanna ríkisstofnana sé ekki
stéttarfélag og hafi ekki mótað af-
stöðu varðandi lækkun launa for-
stöðumanna. „Forstöðumenn eru
hópur með mikla samfélagsvitund
þar sem þeir stýra daglegri starf-
semi þeirrar stjórnsýslu og þjónustu
sem Alþingi hefur ákveðið að ríkið
skuli veita og eru sér því vel meðvit-
aðir um hlutverk sitt og skyldur,
jafnt í góðæri sem á erfiðleikatímum
þegar miklar kröfur eru gerðar til
opinberrar starfsemi,“ segir Hauk-
ur.
Taka því sem að höndum ber
Anna Birna Þráinsdóttir, sýslu-
maður í Vík og formaður Félags
sýslumanna, segir að lækkun launa
hafi ekki verið rædd innan félagsins.
„Við bara tökum því sem að höndum
ber,“ segir Anna Birna.
Kjararáð hefur úrskurðað, eins og
kunnugt er, að ekki sé unnt að fara
að tilmælum Geirs H. Haarde for-
sætisráðherra um að það ákveði
tímabundið launalækkanir á bilinu 5-
15% hjá þeim sem heyra undir ráðið.
Í lögum um kjararáð segir m.a. að
við úrlausn mála skuli ráðið gæta
„innbyrðis samræmis í starfskjörum
þeim sem það ákveður og að þau séu
á hverjum tíma í samræmi við laun í
þjóðfélaginu hjá þeim sem sambæri-
legir geta talist með tilliti til starfa
og ábyrgðar“. Þar segir jafnframt í
10. grein: „Kjararáð skal taka mál til
meðferðar þegar því þykir þurfa og
ætíð ef orðið hafa verulegar breyt-
ingar á þeim launum í þjóðfélaginu
sem höfð skulu til viðmiðunar …“.
Kjararáð fer með launamál æðstu
stjórnenda á vegum ríkisins og má í
því samhengi nefna laun forseta Ís-
lands, þingfararkaup alþingismanna,
launakjör ráðherra, hæstaréttar-
dómara og héraðsdómara auk for-
stöðumanna ríkisstofnana.
sia@mbl.is
Formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana
Ákvörðun kjararáðs
kemur ekki á óvart
Í HNOTSKURN
»Kjararáð skilaði nýlegaþví áliti til stjórnvalda að
ekki væri hægt að lækka laun
embættismanna án lagabreyt-
ingar.
»Félag forstöðumanna rík-isstofnana hefur ekki mót-
að afstöðu til ákvörðunar kjar-
aráðs.
Morgunblaðið/Golli
TUTTUGU ár eru á morgun liðin
frá stofnun HIV-Ísland alnæm-
issamtakanna. Af þessu tilefni verð-
ur efnt til dagskrár félagsfólks,
heilbrigðisstarfsmanna og vel-
unnara í Þjóðmenningarhúsinu við
Hverfisgötu á morgun kl. 16.30-
18.30. Þar mun Guðlaugur Þór
Þórðarson, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, formlega opna
nýja heimasíðu félagsins á slóðinni:
www.hiv-island.is auk þess sem
flutt verða erindi og tónlist.
Samkvæmt upplýsingum frá
samtökunum var meginverkefni fé-
lagsins í upphafi að styðja HIV-
smitaða, alnæmissjúka og aðstand-
endur þeirra auk þess að standa
fyrir fræðslu og forvörnum. „Sem
betur fer heyrir það til undantekn-
inga seinni árin að fólk hérlendis
veikist eða látist af völdum alnæm-
is, þökk sé þeim lyfjum sem komu á
markaðinn fyrir rúmum áratug.
Það er öllum mikið áfall að greinast
með HIV og hefur það mikil áhrif á
líf viðkomandi. Því miður eru enn
ríkjandi miklir fordómar gagnvart
þessum sjúkdómi,“ segir m.a. í til-
kynningu frá samtökunum.
HIV-Ísland 20 ára á morgun