Morgunblaðið - 04.12.2008, Page 22

Morgunblaðið - 04.12.2008, Page 22
ÞAÐ verður aðventu- stemning og sveitaróm- antík í Eyja- fjarðarsveit á Aðventu- ævintýri á sunnudag- inn. Á bæn- um Öng- ulsstöðum, þar sem ferðaþjónustubóndinn Hrefna Ingólfsdóttir ræður ríkjum, geta fjölskyldur og vinir komið saman nk. sunnudag frá klukkan 13-17 og skorið út laufabrauð í sjarmerandi aðventustemningu. Skráning á netfanginu hrefna@on- gulsstadir.is. Laufabrauð skorið út 22 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008 JÓLATÓNLEIKAR kvennakórsins Kyrjanna verða haldnir í dag, fimmtudaginn 4. desember, kl. 20 í Seltjarnarneskirkju. „Kveikt er ljós við ljós“ er yfirskrift jólatón- leikanna að þessu sinni. Stjórnandi Kyrjanna er Sig- urbjörg Hv. Magnúsdóttir og píanó- leikari er Halldóra Aradóttir. Miða- sala við innganginn. Kyrjur á aðventu RAUÐI krossinn fékk um fjögur tonn af sparifatnaði í söfnun á dög- unum. Fatnaðurinn er seldur í verslunum RKÍ en einnig er fataút- hlutun á miðvikudögum milli kl. 10 og 14 á Laugavegi 116. Minnst safn- aðist af barnafötum og er fólki bent á að enn er hægt að gefa spariföt í Skútuvogi 1 í Reykjavík. Fjögur tonn af fötum KVENFÉLAGIÐ Hringurinn heldur sitt árlaga jólakaffi í Broadway nk. sunnudag, 7. des., kl. 13.30. Dagskráin er glæsileg að vanda, margir frábærir listamenn koma fram með hljóðfæraleik, söng, danssýningu og glens fyr- ir unga sem aldna. Allir gefa þeir vinnu sína. Þá verður happdrætti með góðum vinningum sem ýmis fyrirtæki hafa gefið. Allur ágóði rennur til veikra barna á Íslandi og aðstandenda þeirra. Hringskonur hafa með miklum dugnaði stutt Barna- spítala Hringsins í meira en fimmtíu ár. Þjóðin stendur því vissulega í þakkarskuld við Hringinn. Á árinu sem er að líða eru fimm ár liðin frá því að Barnaspítalinn flutti í núverandi húsnæði. Var þá stigið stórt skref til bættrar þjónustu við veik börn á Íslandi. „Öllum er ljóst að Hringskonur áttu hér stóran hlut að máli,“ segir Ásgeir Haraldsson, for- stöðumaður fræðasviðs Barnaspítala Hringsins. „Reyndar má færa fyrir því rök að Barnaspítalinn hefði ekki risið nema fyrir dugnað, eljusemi og markvissa vinnu Hringskvenna.“ Fjölbreytt dagskrá á glæsilegu jólakaffi Hringskvenna á sunnudag ÞAÐ verður líf og fjör á Þjóðminja- safninu á aðventunni. Jólasvein- arnir heimsækja safnið tuttugasta árið í röð, á sýningunni Sérkenni sveinanna býðst börnum að snerta gripi tengda jólasveinunum. Jóla- dagskráin hefst nk. sunnudag. Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn kíkja í heimsókn. Jólasveinarnir munu svo koma í safnið daglega frá 12. desember líkt og undanfarin ár. Grýla og Leppalúði í Þjóðminjasafni Morgunblaðið/Golli Í heimsókn Grýla hin góðlega gleð- ur börnin á safninu í fyrra. JÓLATÓNLEIKAR fyrir alla fjöl- skylduna, sem áheyrendur fá jafn- vel tækifæri til að taka þátt í, verða í Grafarvogskirkju á morgun, föstudag, kl. 20. Regína Ósk, Matti sax og Áslaug, Hjörleifur Valsson, Keith Reed, Gissur Páll og ýmsir kórar munu stíga þar fram og flytja jólasálma. Allir listamenn gefa vinnu sína til ágóða fyrir uppbygg- ingu heimavistar fyrir framhalds- skóla í Pókot í Keníu. Tónleikar fyrir alla í Grafarvogskirkju UM helgina, 6. og 7. des- ember, verð- ur opið hús í glerblást- ursverkstæð- inu á Kjal- arnesi. Opið frá 10 til 15. Gestablás- ararnir Amy Kruger og Jonatan Wallin frá Dan- mörku, ásamt Laura Puska frá Finnlandi munu ásamt Sigrúnu og Ólöfu Einarsdætrum sýna gler- blástur. Verkstæðið er milli Klé- bergsskóla og Grundarhverfis. Blásið í gler Fjölmargt er hægt að gera sér til skemmtunar og fróðleiks í að- draganda jóla og mögulegt að næra skilningarvitin með ýmsum hætti. Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. 20 dagar til jóla STUTT JÓLAKORT Barnaheilla 2008 eru komin í sölu. Með kaupum á jólakortunum er verið að styðja starf í þágu barna bæði hérlendis og erlendis. Jólakortasala er mikilvæg fjáröfl- unarleið fyrir verkefni Barnaheilla. Í boði eru nokkrar gerðir korta. Nánari upplýsingar eru á www.barnaheill.is þar sem m.a. er hægt að panta kortin. Kortin er einnig hægt að kaupa á skrifstofu sam- takanna og í fjölda verslana. Framundan er stórt verkefni en Barnaheill stefna að því á fyrra hluta ársins 2009 að opna upplýsinga- og stuðningslínu fyrir börn og unglinga á aldrinum 7-18 ára. Síma- og netsvörun verður á íslensku og tungumálum fjölmennustu innflytjendahópanna. Erlendis styðja Barnaheill á Íslandi menntun barna í stríðshrjáðum héruðum Kambódíu og Norður-Úganda. Jólakort Barnaheilla á Íslandi komið út 1 2 4 3 5 TVEIR stúdentar við Háskóla Íslands, Páll Þór Sig- urjónsson og Sigríður Björnsdóttir, hlutu á alþjóðadegi fatlaðra í gær styrk úr Þórsteinssjóði en styrkurinn er ætlaður blindum og sjónskertum nemendum við skól- ann. Hvor styrkhafi hlaut 500 þúsund krónur. Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs, af- henti styrkina við hátíðlega athöfn en Páll Þór stundar BA-nám í kínverskum fræðum og Sigríður BA-nám í norsku. Bæði leggja þau stund á nám við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda sem tilheyrir Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Þórsteinssjóður var stofnaður af Blindravinafélagi Íslands fyrir tveimur árum og er til minningar um Þór- stein Bjarnason, stofnanda Blindravinafélags Íslands. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja blinda og sjón- skerta til náms við Háskóla Íslands. Hlutverk og til- gangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins, sem fæddist 3. desember árið 1900. Hann stofnaði Blindravinafélag Íslands þann 24. jan- úar 1932 og var það fyrsti vísir að félagi til stuðnings fötluðu fólki á Íslandi. Þórsteinn helgaði líf sitt blindum og sjónskertum á Íslandi á 20. öld án þess að taka nokkru sinni laun fyrir og lagði hann félaginu til fé úr eigin vasa, eins og fram kemur í fréttatilkynningu. Páll Þór og Sigríður fengu styrki úr Þórsteinssjóði á degi fatlaðra Styrkir Stjórn Þórsteinssjóðs ásamt styrkþegum, f.v. Arnfríður Ólafsdóttir, Rannveig Traustadóttir, Helga Ey- steinsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, sem hlaut styrk, Katla Leósdóttir, móðir Páls Þórs Sigurjónssonar, sem hlaut styrk, og Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.