Morgunblaðið - 04.12.2008, Page 27
Morgunblaðið/Golli
Stund milli stríða
Á hillum og á gólfi bíða pokarnir í röð og reglu eftir því að komast í hendur þeirra sem þurfa á þeim að halda. Eftir
ófá handtök við að skipta vörum í jafna hluta gefst tími til að fá sér kaffisopa og bakkelsi, sem konurnar hafa útbúið
heima við. Skömmu síðar hefst ný törn, við að taka á móti gestum og afhenda þeim poka í hundraðatali.
Ragnhildur segir umsækjendur úr
öllum stéttum þjóðfélagsins. „Þetta
eru öryrkjar, eldri borgarar, ungt
skólafólk, einstæðir karlmenn, feður
og svo einstæðar mæður sem eru
stærsti hópurinn hjá okkur. Og núna
sjáum við mikið fólk sem hefur misst
vinnuna. Í dag komu t.d. nokkrar
konur úr bönkunum en flestir þeirra
sem nýlega eru orðnir atvinnulausir
unnu áður í byggingariðnaðinum.
Erlendum karlmönnum úr þeim hópi
hefur fjölgað mikið og sömuleiðis er-
lendum, einstæðum mæðrum.“
Flestir hafa húsaskjól en einn og
einn er „óstaðsettur í hús“.“
Mannlegt eðli kemur í ljós
Þegar líða tekur á úthlutun dags-
ins kemur eitt tonn af rófum í hús,
sem að stórum hluta eru samstundis
drifnar út til gestanna. Þetta eru
vænar rófur, frá Þórisholti í Vík í
Mýrdal. Og rétt áður en blaðamaður
kveður berast þær fréttir að sjálf
Þjóðarskútan verði eign Mæðra-
styrksnefndar innan skamms. Gef-
andinn, Víkurverk, sem hefur unnið
við smíði hennar að undanförnu,
stingur upp á að í hana verði safnað
framlögum til nefndarinnar, nú eða
hún seld. Hvort heldur sem verður er
gjöfin vel þegin.
Þegar hurðinni er hallað þennan
daginn hafa 338 gestir komið við í
Hátúninu og þegið poka. „Við höfum
ekki áður séð svo marga strax eftir
mánaðamót,“ segir Ragnhildur og
bætir við að svo lengi lærir sem lifir.
„Þó að við konurnar hérna séum
flestar komnar til nokkurs þroska og
höfum starfað við þetta lengi erum
við alltaf að upplifa eitthvað nýtt.
Enda kemur mannlegt eðli afar vel í
ljós við slíkar aðstæður.“
Skammturinn „Þetta er hugsað sem ein góð grunnmáltíð,“ segir Ragnhildur en að þessu sinni fara bananar, kjötmeti, kartöflur, mjólk, brauð, klósett-
pappír og niðursuðudós í pokann. „Þetta er í rýrara lagi því við erum að safna fyrir jólaúthlutunina og einnig þarf að dreifa matnum á fleiri en venjulega.“
gefa
27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
Mæðrastyrksnefnd úthlutar
mat og fatnaði á miðviku-
dögum milli klukkan 14 og 17
allt árið um kring. Nefndin er
til húsa í Hátúni 12b í Reykja-
vík, og er gengið inn á jarð-
hæð á hlið hússins. Þeir sem
þurfa á úthlutun að halda geta
einfaldlega mætt þar á ofan-
greindum tíma.
Sýna þarf persónuskilríki
við komu. „Það er það eina
sem við biðjum fólk að hafa
með sér,“ útskýrir Ragnhild-
ur. „Við flettum því svo upp til
að sjá fjölskyldustærðina og
meira þurfum við eiginlega
ekki að vita. Við erum ekkert
að snuðra í neinu öðru.“
Sérstök jólaúthlutun er í
samstarfi Mæðrastyrks-
nefndar, Hjálparstarfs kirkj-
unnar og Rauða krossins.
Sækja þarf sérstaklega um
hana fyrirfram og verður síð-
asti skráningardagur nefnd-
arinnar næstkomandi þriðju-
dag milli klukkan 10 og 14.
„Við höfum þennan háttinn á,
aðallega til að koma í veg fyrir
endalausar biðraðir,“ segir
Ragnhildur. „Fólk fær þá að
vita dagsetningu og klukkan
hvað það á að mæta til að
sækja jólapakkann. Ég á von á
því að jólapokarnir í ár verði
dálítið myndarlegir því fyr-
irtæki og einstaklingar hafa
gefið rausnarlega að und-
anförnu.“
Við jólaúthlutunina fær fólk
ekki aðeins mat til hátíðanna
heldur einnig gjafir, s.s. leik-
föng og fleira til að gleðja
börnin. Gjafirnar koma að
stórum hluta frá fyrirtækjum
en einnig frá einstaklingum
sem hafa sett þær undir
jólatré í verslunarmið-
stöðvum. Ragnhildur tekur
fram að skoðað sé í alla pakka
áður en þeim er úthlutað. „Við
höfum því miður lent í því að
þeir hafi innihaldið hálfgert
drasl og við viljum tryggja að
slíkt lendi ekki hjá þeim sem
síst skyldi.“
Jólaúthlutunin byrjar 15.
desember en þá verður hafist
handa við að senda varning til
fólks á landsbyggðinni. Fólk á
höfuðborgarsvæðinu sækir
jólaglaðninginn hins vegar í
Borgartún 25, á þeim tíma
sem tilgreindur hefur verið
við umsókn.
Þeir sem vilja koma gjöfum,
mat eða öðrum varningi á
framfæri við Mæðrastyrks-
nefnd geta hringt í síma 551
4349 alla virka daga. Einnig
má hafa samband í gegnum
netfangið maedur@simnet.is
auk þess sem nánari upplýs-
ingar er að finna á heimasíð-
unni www.maedur.is.
Mikið sótt
í úthlutun
fyrir jólin