Morgunblaðið - 04.12.2008, Síða 29
Fréttir 29ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
Henrik Mortensen handleikur flugustöngina af mikilli list og er geysivinsæll og dugmikill kennari.
Hann heldur námskeið fyrir veiðimenn út um víða veröld og er árviss gestur á Íslandi.
Hann hefur nú skrifað bók fyrir alla þá sem vilja læra að koma flugunni til fiskanna undir öllum kringumstæðum. – Glæsileg bók
með um 370 skýringarteikningum og litljósmyndum, fjölmörgum teknum á Íslandi. Gísli Helgason frá Blómsturvöllum íslenskaði.
Óskabók veiðimannsins
þeir róast sem fiska!
www.ormstunga.is
E
i
n
n
,
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
6
.0
1
6
HEIMSINS frægasti hvítabjörn,
hann Knútur litli, mesta aðdrátt-
arafl dýragarðsins í Berlín, er lík-
lega á förum þaðan. Vegna fjár-
málakreppunnar þarf garðurinn að
skera niður og hefur sagt Knúti
upp húsnæðinu.
Knútur verður tveggja ára á
morgun en ekki stendur til að halda
upp á afmælið í garðinum sjálfum.
Aðdáendur hans ætla hins vegar að
slá upp veislu gegnt garðinum og
tugþúsundir manna hafa skrifað
undir áskorun um, að Knútur fái að
vera um kyrrt. Er ferðaiðnaðurinn
í Berlín mjög óánægður með að
missa „einn af bestu fulltrúum
borgarinnar“ og reiknað hefur ver-
ið út, að hann hafi aukið tekjur
hennar um 10 millj. evra. Garð-
stjórnin segir aftur á móti, að kom-
ið sé að því að stækka við Knút og
hugsanlegan maka hans og það
muni kosta níu millj. evra. Nú bend-
ir margt til, að Knútur hafni í dýra-
garði í Svíþjóð. svs@mbl.is
Knútur
of dýr í
kreppunni
Ef til vill fluttur frá
Berlín til Svíþjóðar
Reuters
Eftirlætið Knútur í mars í fyrra, þá
rúmlega þriggja mánaða.
SAMNINGAMENN 190 ríkja sam-
þykktu fyrir ári að ganga frá nýjum
samningi í loftslagsmálum fyrir lok
næsta árs til að knýja ríki heims til
að draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Svo virðist nú sem sá frestur
sé of skammur og að það taki lengri
tíma að ljúka samningaviðræðunum.
„Þetta var of bjartsýnt í upphafi,“
sagði Eileen Claussen, formaður
Pew-miðstöðvarinnar um loftslags-
breytingar.
Embættismenn frá nær öllum
ríkjum heims sitja ráðstefnu í pólsku
borginni Poznan til að ræða leiðir til
að sporna við frekari hlýnun jarðar
og undirbúa nýjan samning sem á að
taka við af Kýótó-bókuninni þegar
gildistími hennar lýkur árið 2012.
Margir á ráðstefnunni efast nú um
að hægt verði að ganga frá samn-
ingnum fyrir næsta fund um lofts-
lagsmál í Kaupmannahöfn í desem-
ber á næsta ári.
Yvo de Boer, framkvæmdastjóri
Rammasamnings Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar, efast
um að samningurinn geti legið fyrir
á tilsettum tíma en segir að mjög
mikilvægt sé að ná samkomulagi um
meginatriði samningsins fyrir fund-
inn í Kaupmannahöfn. Umhverfis-
verndarsamtök segja hins vegar að
það myndi hafa mjög alvarlegar af-
leiðingar ef samningnum yrði slegið
á frest. bogi@mbl.is
Samningi slegið á frest?
Reuters
Á rökstólum Fulltrúar hlýða á ræðu á 12 daga loftslagsráðstefnu í Poznan.
Útlit fyrir að ekki takist að ganga frá nýjum samningi um
loftslagsmál fyrir lok næsta árs eins og stefnt hefur verið að
MICHELIN-rafbíllinn er búinn raf-
mótor í hvoru framhjóli og kostnað-
ur við 100 km akstur er ekki nema
rúmlega 300 ísl. kr. Hann er nú í
reynsluakstri í Frakklandi en á að
vera kominn á almennan markað
innan tveggja ára.
Bíllinn minnir mest á Opel Agila
en sé litið undir vélarhlífina er þar
ekkert að sjá. Eins og fyrr segir eru
mótorarnir í framhjólunum og þeir
eru drifnir af liþín-rafhlöðum, sem
geta dugað í allt að 400 km akstur.
Tilraunabíllinn, sem kallast „Heu-
liez Will“, er 41 hestafl í venjulegri
keyrslu en getur farið í 82 í stuttan
tíma. Mótorarnir eru einnig rafall og
byltingarkenndir að því leyti að sögn
höfundanna, að þegar bíllinn er í
lausagangi, hleðst inn á rafgeymana.
Fleiri eru nýjungarnar og þar sem
hann er laus við sprengihreyfil, kúp-
lingu, gírkassa og pústkerfi er hann
léttari en aðrir jafnstórir bílar.
svs@mbl.is
Byltingar-
kenndur
rafmagnsbíll