Morgunblaðið - 04.12.2008, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
FORSÝND Í KVÖLD
ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK, AKUREYRI OG SELFOSSI KL. 20:00
OG Í KRINGLUNNI KL. 22:10
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA
MYNDIN SEM GERÐI
ALLT BRJÁLAÐ Í USA
Laugavegi 54, sími 552 5201
Ullarjakkar
og
stuttkápur
kr. 14.990
Stærðir 36-48
Margar gerðir
Hlý jólagjöf
ÁTTUM okkur strax á því að plötur
sem búið er að byggja upp stjarn-
fræðilegar væntingar um geta ekki,
eðli málsins
samkvæmt,
staðið undir
þeim. Gæði
platnanna skipta
þar engu máli.
Þó að Chinese
Democracy væri
tímamótaverk í
rokki græfist sú staðreynd undir allri
spennunni sem er búin að hlaðast upp
í þau fjórtán ár sem fólk hefur verið
að bíða. Chinese Democracy, heims-
methafinn í rokkplötutöfum, á því
ekki séns að þessu leytinu til.
Þessi blessaða plata hefur fætt gul-
ar síður tónlistarblaðanna í árafjöld
og maður fær nánast tómleikatilfinn-
ingu við það að handfjatla fullkláraða
plötuna. Þessi magnaða saga, sem
fyllt gæti fjölda binda, er búin. Og þá
er bara eitt að gera: hlusta. Eigum
við nú ekki að sýna Axl gamla (hann á
það nú skilið blessaður) að hlusta, op-
ið og fordómalaust. Ruglið er að baki
(eða eins langt og það nær) og í eyr-
unum er fjórtán laga rokkplata. Setj-
um hana því undir sama mæliker og
aðrar plötur af þeim toga og spyrjum
einfaldlega: Er platan góð? Eða ekki?
Eða öllu heldur … rokkar hún? Eða
ekki?
Svarið er hins vegar að sjálfsögðu
hið hrútleiðinlega: Já og nei. Þetta er
fjarri því að vera eitthvert meist-
arastykki en alslæmt er þetta ekki
heldur, nokkuð sem gagnrýnendur
virðast nokkuð ásáttir um. Það kem-
ur næstum því á óvart að svo virðist
sem menn hafi ekki beðið eftir því að
rífa grey Axl í sig. En menn láta held-
ur ekki glepjast af því að fjórtán ára
vinna við eitthvað gerir það ekki sjálf-
virkt betra en eitthvað sem styttri
tíma er eytt í.
Tónlistin stendur langt frá hinu
hráa og rífandi rokki sem einkenndi
Appetite … og í raun má segja að um
nokkurs konar konar framhald af
Use Your Illusion-epíkinni sé að
ræða, einkanlega séu dramabombur
eins og „November Rain“ hafðar til
hliðsjónar. Það er nánast ómögulegt
að koma auga á einhverja hittara, ein-
faldlega af því að hvert og eitt lag er
gjörsamlega að kikna undan öllum
mýgrútnum af hljóðrásum. Platan
ber þess eðlilega merki að hafa velkst
um í fjórtán ár en hljóðverin sem eru
nefnd í upplýsingabæklingi eru jafn-
mörg árunum. Platan er því „þung“ í
þeim skilningi, lögin dragnast dálítið
áfram en, furðulegt nokk, þessi áferð
virkar vel í sumum tilfellum. Í nokkr-
um lögum text Axl að búa til sannfær-
andi dramatísk rokkverk sem hlykkj-
ast áfram með alls kyns dýfingum og
snúningum og í „Scraped“ og „Shac-
kler’s Revenge“ nálgast hann meira
að segja eitthvað sem kalla mætti
hráleika. Honum er ekki alls varnað
eftir allt saman.
Ég veit til þess að margir harðir
Guns N’ Roses-aðdáendur – og af
þeim er nóg – þora varla að opna
geisladiskahulstrið, hvað þá hlusta á
sjálfa tónlistina. Þetta eru skilj-
anlegar tilfinningar, nema hvað. Ég
vil því endilega benda þeim á það að
öllu er óhætt. Axl kemst, þegar allt er
saman tekið, glettilega vel frá þessu
öllu saman.
Og þá er þetta loksins frá Axl
minn. Nú geturðu tekið til við að særa
restina af djöflunum í burtu …
Tímans tár
Tónlist
Geisladiskur
Guns N’ Roses – Chinese Democracy
Reuters
Mikið var! Axl Rose hefur bjástrað við plötuna Chinese Democracy í fjórtán
ár og haldið soltnum aðdáendum í herkví spennu og væntinga.
Arnar Eggert Thoroddsen
Á TÍMAMÓTUM sem þessum
er ekki annað hægt en að
bægja mistri tímans frá og
rifja aðeins upp fyrri plötur
Guns N’Roses …
Appetite for Destruction (1987)
Meist-
araverkið.
Plata sem
endurreisti
trú margra á
berstrípuðu
rokki án alls kjaftæðis.
G N’ R Lies (1988)
m
Samansafn af
gömlu og nýju
efni sem var
hraðað út til
að hamra
járnið heita.
Ballöðurnar standa upp úr.
Use Your Illusion I (1991)
Þessi plötu-
tvenna er
þannig séð
lítt síðri en
frumburður-
inn, það eina
sem skortir er nýjabrumið.
Use Your Illusion II (1991)
Þessi annar
hluti plötu-
tvennunnar
er jafnan tal-
inn ögn betri
en sá fyrri.
The Spaghetti Incident? (1993)
Plata með
tökulögum,
gefin út til að
kaupa tíma.
Lítt merki-
leg.
Afrek og axarsköft
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn