Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Side 26
24
Auk ofanritaðra kr. 12980,00 hefir safnast til
ekkjunnar sjálfrar kr. 5200,00. Er sumt af því fje
frá utanfjelag'smönnum, t. d. kr. 2000,00 frá Geir
Thorsteinsson framkv.stj., en sumt frá meðlimum
vorum, sem skýrt tóku það fram, að þeir æsktu eft-
ir að tillög þeirra gengu beint til ekkjunnar. Fje
þetta alt hefur þó verið notað til að greiða af eign-
inni, og því alls igreitt af henni kr. 10974,04.
Þess skal getið að vjer höfum verið í ráðum með
ekkjunni í öllu því, sem að eigninni lýtur, en tekið
fult tillit til óska hennar á því aðriði, enda skal það
sagt henni til maklegs lofs, að vilji hennar í þessu
hefir ætíð verið samrýmanlegur vilja vorum.
Nefndin heldur enn áfram að efla sjóð þennan í því
augnamiði að nota hann er líkt stendur á og hjer,
og mun innan skams leggja fram reglugerð fyrir
sjóðinn, væntir hún þess, að hver meðlimur, sem eigi
hefir verið enn með að leggja honum fje, láti eitt-
hvað af mörkum til hans. Flytjum vjer öllum þeim,
sem studdu að þessu vorar bestu þakkir fyrir drengi-
lega framkomu, sem vjer fullyrðum að tengt hafi
oss betur saman en nokkurt annað málefni, er fje-
lagið hefir barist fyrir.
í samskotasjóðsnefnd.
Gísli Jónsson. Ágúst Guðmnndsson. G. J. Fossberg.