Ársrit Vélstjórafélags Íslands - 01.01.1926, Side 38
36
greinin verður að stílast upp og ritast með meir
viðeigandi orðum.
Virðingarfylst
í gerðardómsnefnd Vjelstjórafjelags Islands,
ritað í júlí 1924.
Ellert Árnason, Pjetur Jóhannsison
Haraldur Andrjesson.
Ofanritaður gerðardómur hefði að rjettu lagi átt
að birtast í skýrslu fjelagsins síðastliðið ár, en af
sjerstökum ástæðum fórst það fyrir; eru hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar á því.
Með neðanskráðri breytingu á 12. gr. skýrslunnar
frá 1921, höfum vjer reynt að uppfylla þau skilyrði,
en nefndur gerðardómur setur oss.
12. gr. með breytingunni:
Samningur við F. í. B.: „Samningnum 1921 er hald-
ið óbreyttum til 1. okt. þrátt fyrir margítrekaðar til-
raunir frá útgerðarfjelagsinsi hálfu, að fá þeim
breytt ossi í óhag. í október takast umræður um
samningana fyrir árið 1922. Átti fjelagið í hörðum
deilum útaf samningunum. Eru þeir til umræðu á sjö
fjelagsfundum og fjórum stjórnarfundum. Formað-
ur hjelt fast fram þeim kröfum, sem hlutaðeigandi
meðlimir höfðu samþykt á fjelagsfundum, að falla
aldrei frá, en standa um þær sem einn maður. Eftir
langar umræður hafði hann von um að koma flestum
kröfum þeirra inn í samningana. En er svo var kom-
ið, notuðu útgerðarmenn fjarveru hans til þess að
rægja hann á svívirðilegan hátt við fjelag vort, og