Árdís - 01.01.1936, Síða 12

Árdís - 01.01.1936, Síða 12
10 hvað umhverfið á alvarlegan þátt í að móta manninn, og hvað það er nauðsynlegt að þekkja alla eiginlegleika barnsins, til þess að geta uppöríað alla hina góðu, en reynt að sjá um að hinir fái engan styrk utanað, svo að þeir deyji út. Tökum til dæmis börn innan sjö ára aldurs. B'yrst skynja þau ósköp lítið nema um fæðu og hvort þaö fer vel eða illa um þau. En smátt og smátt greinist skilningurinn, um leið og þau læra að ganga og tala og leika sér. Strax í leikjum þeirra koma fram tilhneigingar, sem aðstandendur ættu að taka vandlega eftir og reyna að snúa þeim öllum inn á réttar leiðir. Börnin lifa í drauma heimi og þeir fullorðnu mega ekki skemma fegurð þess heims, heldur reyna að fylgjast með börnunum í hugmyndaflugi þeirra. Ef að barn, til dæmis, talar um sandhrúgu sem kastala, þá er sjálfsagt að samsinna þvlí, annars gæti hugur barnsins verið særður djúpu sári sem ef til vill greri aldrei. Alt ieir komið undir samhygðinni sem höíð er með börnunum. Á þessu tímabili ev gott að segja þeim álfasögur því að í þeim vinnur altaf það góða sigur. Oft vilja börn, með sterkt ímyndunarafl, ýkja þegar þau segja frá daglegum viðburðum. iForeldnar og kennarar verða þá með hógværð að leiðrétta þá tilhneiging. Sálarfræðingar hafa fullyrt, að ef barnið hefir haft réttan aga fyrstu sjö árin af æfinni, þá sé því borgið. Eftir það geti áhrifin utanað ekki brotið niður þann trausta varnarvegg, sem móðirin hefir bygt utan um ibarnið sitt. En þá yrði móðirin að hafa sér- staka hæfileika til að geta skilið hvað væri bezt fyrir barnið og sterkan vilja til að koma því í framkvæmd. Flestar mæður eiga í miklum önnum og þeim finst að til iþess séu skólarnir, að halda börnunum þeirna í skefjum og láta þau læra; en þær mega ekki gleyma því, að með hjálp þeirra geta úrslitin orðið svo mikið betri. Við skulum taka næst timabilið miilli áranna sjö og tíu. Þá byrjar skólagangan og börnin verða fyrir kröftugum áhrifum frá kennurum, ngmsgreinum og íirá öðrum börnum. Nú verða for- eldrarnir að vera á verði gegn öllum þeim vondu áhrifum, sem börnin geta orðið fyrir. Þeir ættu að ráðga sig við kennarana um hvað Ibarnið sé mest hneigt fyrir; hvernig aga það þarf mest við; og yfir höfuð alt sem lýtur að meðhöndlun þess. Hversu miklu auðveldara væri'starf kennarans ef þetta væri gert yfirleitt! — Meðvitundin um áhuga heimilanna mundi gefa honum byr undir báða vængi, og öll kenslan mundi verða léttari og fjörugiri. Á þessu aldursskeiði eru börnin mjög næm fyrir framkomu þeirra íullorðnu. Það kemur fram í leikjum þeirra — þau stæla alskon- ar störf sem þeir eldri rækja. Þá er Ibrýn nauðsyn að þeir upp- vöxnu séu góðar fyrirmyndir. Þá eru sögur um æfintýri og hetj- ur mjög meðtækilegar, og er nauðsynlegt að þær séu vel valdar. Svo næst er tímabilið milli tíu og tólf ára aldurs. Á þeim

x

Árdís

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.