Árdís - 01.01.1936, Side 14

Árdís - 01.01.1936, Side 14
12 urnar í svo fagran og skemtilegan 'búning, að börnin fái reglu- lega ást á lærdómnum og hlakki til að halda áfram. Hugsið þiö ykkur milli fjörutíu og fimtíu Ibörn frá algerlega mismunandi lieimilum, og öll með mismunandi skaplyndi, mörg af þeim óvið- ráðanleg heima, komin saman í eitt herbergi, sitjandi kyr og þögul í iangan tíma!1, Haldið þið ekki að það taki býisna mikla hæfileika, þolinmæði og þrek að venja þessar litlu sálir við að lærajOg haga sér vel? Þegar eg var í kennaraskóla, þá voru tíu af okkur nemend- unum sendir út í Norwood, til að kynnast kensluaðferðum þar. Við vorum einn dag í herbergi sem Miss Fitzgerald nokkur kendi —I grade 1. Eg var nú ung og óvön þá og full af glæsilegum hugmyndum, hvað eg ætlaði að framkvæma þegar eg væri orðin kennari. Það hefir, ef til vill, átt einhvern þátt í þeirri hrifning, sem eg varð fyrir við að hlusta á þessa gráhærðu, hógværu konu kenna. Hún talaði svo lágt og þó skýrt og hógvært við börnin, og hún. brosti svo innilega og svo oft; og ibörnin voru öll svo glaðleg og horfðu svo hugfangin á hana. Svona á það að vera, andirúms- loftið ,í fyrsta bekk skólans. Þið eruð að hugsa, að í flestum til- íellum sé það ólíkt þessu, en hafið þið gert ykkur far um að kynn- ast því? Eg veit, að því miður eru sumir kennarar sem taka að sér litlu börnin, algerlega óhæfir fyrir þá stööu, en kanske þar yrði breyting á, ef sérstakar kröfur í þessa átt vœru gerðar til þessara kennara, ef að þeim væri ekki altaf borgað minst; og, ef foreldr- arnir sýndu meiri áhuga fyrir hvað er að gerast á skólunum. Allar skólabækur eru valdar með því augnamiði,, að efla hæfileika barnsins, svo að það geti betur mætt kröfum lífsins og notið betur fegurðar þess. Þær eru kosnar fyrir hvern bekk eftir því, á hvaða menningarstigi börn á því aldursskeiði eru, og altaf eru þær gerðar betur og betur við hæfi hvers bekks. Það er til dæmis, ný landafræðisibók í fjórða bekk sem er sérstaklega vel úr garði gerð. Hún er útsett eins og saga um börn og kennara, sem ferðast til allra landa og stanza og skoða alt það1 merkilegasta í hverjum stað. Börnin geta ekki annað en verið hrifin af þessu íerðalagi, sem þeim finst þau séu sjálf að takast á hendur, og myndirnar í bókinni gera það mjög verulegt. Mig langar til að minnast á, í stuttu máli, helztu námsgreinar sem kendar eru í hærri bekkjunum, og hvers vegna þær eru kend- ar. Það er þá fyrst og fremst reikningur, sem er lífsnauðsynleg- ur fy.rir hvern mann að kunna, til þess að geta skilið og tekið þátt í daglegri starfsemi — kaupurn og sölum — allir taka þátt í því meira og minna. Svo æfir reikningslistin hugann til að hugsa hratt og skýrt. Sögu þurfa allir að hafa lesið, ef þeir eiga á annað borð að geta skilið nokkuö í heims ástandinu, eins og það er þann dag í dag. Sagan skýrir frá frelsis baráttu þjóöanna á móti afturliald-

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.