Árdís - 01.01.1936, Side 58

Árdís - 01.01.1936, Side 58
56 Testamenti meö góðum stíl voru keypt og send til þriggja skóla, þar sem kristindóms kensla hefir farið fram og verða þau eign skólans. Mörg innileg bréf hafa komið frá börnunum sjálfum þakkandi fyrir hlýleik og kærleik Bandalagsins. Aðallega hafa þrír skólar: Vogar, Bay End og Hayland haldið uppi með reglu kristindóms kenslu og ber oss að þakka af hjarta þessum kennur- um fyrir þeirra dygga starf: Vigdís Sigurðsson, Secilia Halldórsson og Sigrún ÍGuðmundsson. Engan kennara var mögulegt að senda 1 fyrrasumar til Poplar Park, en s.skóla blöð og bækur voru sendar. Þetta hefir okkur reynst erfitt pláss, mestmegnis vegna þess að engin leiðtogi fæst til að halda áfram neinu starfi þar. Það er að sönnu Angliean sunnudagsskóli þar part af árinu en okkar íslenzku börn sækja hann ekki. Sumarið 1934 voru tvær stúlkur, Dísa Anderson og Lára Oleson sendar til Arnes til að kenna og stofna s.skóla. En árið 1935 var engin kennari sendur, en Mrs. H. Sigurdson sem þar á heima og Thora Oliver sem kendi þar nálægt, héldu uppi s.skóla að svo miklu leyti sem í þeirra valdi stóð. Vegna þess að þetta svæði tilheyrir prestakalli hefir nefndin aðeins sent lexíuiblöð og bækur þegar þess hefir verið æskt. Uppörfandi bréf frá börnum, kennurum og mæðrum hefi)- nefndin meðtekiö og lýsir 'þakklæti fyrir. Ein nióðir segir meðal annars: “Mig langar til að þakka innilega B. L. K. fyrir þeirra mkila og kærleiksríka verk fyrir börnin hér í bygðinni. Eg er tólf barna móðir og á svo annríkt að eg hefi lítin tíma afgangs að upp fræða börnin mín. Þessvegna er eg ykkur svo þakklát f'yrir ykkar tilraunir til að hjálpa upp á okkur.” Fjörutíu bréf hafa verið skrifuð og send út á árinu í sambandi við sunnudagsskóla starfið. Að endingu viljum við þakka öllum sem greiddu götu Miss Guttormsson í fyrra sumar og sýndu henni alúð og hlýleik og aðstoð á ýmsan hátt. Guð er kærleikur; og því að eins megum við vonast eftir að sjá auglit hans, að við reynum að breyta eftir boðum hans og rétta hjálparhönd hinum minstu af þessum hans börnum. Þjóðbjörg Henrickson Margrét Stephensen

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.