Árdís - 01.01.1936, Síða 27

Árdís - 01.01.1936, Síða 27
25 að læra meira — að læra aö lifa. Við sem eldri erum, verðum að vera góð fyrirmynd en verðum um leið að treysta hinum yngri. Og ætlast ekki til, að það sem okkur finst hið eina rétta, líti eins út í augum æskulýðsins. Hvert stefnir? Þaö stefnir að bjartari og betri framtíð en nokkurtíma áður. Unga fólkið ekki síður en þeir eldri taka þátl í að koma til leiðar betra og kristilegra samkomulagi — og að hver íai að njóta sín sem bezt í straumi lífsins. Það virðist máske einfeldnislegt, að tala svona þegar maður les um ástandið í heiminum: atvinnuleysið, fátæktina og liungrið. Það er satt að það er grátlegt fyrir fólk, að horfa upp á eyrnd og vonleysi og geta ekki séð neina úrlausn. Það er erfitt fyrir ungl- mga sem hafa gert sér góðar vonir og náð háu mentastigi, aö geta ekki fengið neina arðberandi atvinnu. Þetta atvinnuleysis ástand sýnist vera óskiljanlegt, en úr því svona er komið, verður hver og einn að gera sitt bezta úr kringumstæðunum — veita og þiggja samúð og hjálpsemi með glöðu geði, til að jafna yfir þessar óisléttur, til að fylla upp þetta dýpi eymdar og örbirgðar, aö sníöa af liæstu tinda alsnægtar svo að millibilið verði ekki eins átakan- legt. Að gera þetta er hin kristilega stefna seín unga fólkið vill lilynna að um allan heim. 1 mínum augum er unga kynslóðin því að stelna í rétta átt. Það meiðir mig að heyra fólk spyrja: “Hvað verður úr unga fólkinu nú á dögum? Hvað hugsar það um nema að leika sér og láta aðra sjá fyrir sér? Það vill ekki hugsa um kristindóm eða neitt annað en gjálífi, gjálífii!” Við isem erum kornnar af unga. aldri, skulum bara leggja aftur augun og láta okkur dreyma. Við skulum láta okkur dreyma obkar eigin æsku. Heyrðum við þá ekki þessar sömu ásakanir klingja í eyrum? Þegar séra Matthías Jioahumsson var prestur á Akureyri fyrir sextíu árum, kvartaöi hann yfir að þurfa að prédika yfir tómum sætum og sjá út um gluggann hvar hópur af ungu fólki var að leika sér á svellinu fyrir neðan bæinn. Svona mun það hafa gengið hverja kynslóðina ef'tir aðra. Það er betra að vera ibjartsýnn og leita eftir hinu bezta, en að vera bölsýnn og ’búast við þvlí versta. Þó alt sé ekki eins og þú eða eg viljum hafa það, er gott að rnuna að það gæti verið miklu v,erra. Margir hinir eldri vantreysta æskunni og oft ber æskan enga virðingu fyrir ellinni. En eg vil bara horfa beint upp og út — leita að því bezta og finna það! Við megum ekk-i taka einstaklinginn heldur heldina. iStund- um sýnist lítið gert, og ef eittlivað fer aflaga eða einhver fellur, þá er þvií haldið á lofti, en góðverkin verða að vera svo stór og yfirgnæfandi ef' á að taka eftir þeim. Það er góð regla aö hlusta aldrei á óþarfa útásetningar og sjá ekki það sein er frekar ljótt,

x

Árdís

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.