Árdís - 01.01.1956, Blaðsíða 30
28
ÁRDÍS
konuna, sem á lengri starfsferil í félaginu en nokkur önnur — Mrs.
Guðrún Borgfjörð. Hún hefur verið gjaldandi meðlimur kven-
félagsins allt frá fyrstu tíð og fram á þennan dag, þó að hún væri
gjörð að heiðursmeðlim fyrir mörgum árum. Hún var starfandi
meðlimur og sótti helzt alla fundi meðan kraftar leyfðu, og hún
hefur ávalt verið sérstaklega rausnarleg með allt tillag til félagsins,
bæði peningalega og með ýmsri annari hjálp. Við óskum að æfi-
kvöld hennar megi vera bjart og fagurt og að við megum njóta
hennar sem lengst. Við þökkum þér, Guðrún, fyrir samvinnuna.
Aðeins tveir afkomenda þessara stofnenda kvenfélagsins til-
heyra félaginu nú, eru það Mrs. Lóa Guðmundsson og ég.
Einn aðalstofnandi félagsins og fyrsti forseti var Hólmfríður
Ingaldson; vann hún með framúrskarandi alúð og áhuga meðan
kraftar leyfðu, oftast í stjórn þess, og heiðursforseti frá 1937 til
æfiloka eða 1946.
Heiðursmeðlimir: Steinunn Stefánsson, Guðrún Guðmundsson,
Þórey Oddleifsson og Guðrún Borgfjörð. Stjórn félagsins hafa
þessar konur skipað um lengri eða skemmri tíma: Hólmfríður
Ingaldson, Solveig Bjarnason, Kristveig Jóhannesson, Sesselja Guð-
mundsson, Ragnheiður Gunnarsson, Vilborg Jónsson, Sigríður
Ólafsson, Elízabet Hallgrímsson, Kristveig G. Jóhannesson, Sesselja
Oddson, Helga Bjarnason, Jóna Sigurdson, Guðrún Reykdal, Jódís
félagið um sýningu á íslenzkum sjónleik á hverju ári við góðan
orðstír til 1940, að sá góði siður lagðist niður. Mun það vera ein-
göngu því að kenna, að leikendur eru ófáanlegir. Við þökkum öllum
þeim konum, sem áttu þátt í að undirbúa sjónleiki, bæði sem
stjórnendur og leikkonur. Við geymum minningar af mörgum
ánægjustundum sem við nutum við að sjá þessa sjónleiki. Um-
hverfi á leiksviði var svo hrífandi að í huganum var maður kominn
á þann stað og á þeim tíma, sem leikritið táknaði. Mörg þessi leikrit
eru okkur ógleymanleg og við lítum til baka með virðingu til með-
lima félagsins okkar, sem léku af sérstakri list. Nú í seinni tíð
hefur félagið aflað sér fjár með því að hafa útsölu á ýmsum heima-
unnum munum, sem félagssystur hafa unnið og gefið, og að selja
kaffiveitingar og mat við ýms tækifæri, svo sem á samkomum, í
samsætum, veizlum o. s. frv. Hefur það oft borið góðan arð.
Eitt aðalstarfssvið félagsins hefur verið líknarstarfssemi. Á
fyrsta ári gekkst félagið fyrir stofnun sjúkrasjóðs, og myndaði sér-
stök lög. Hverri sængurkonu voru ætlaðir $3.00 úr sjóði. Var það