Árdís - 01.01.1956, Síða 33
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
31
í sambandi við kirkjustarf hafa félagskonur gert sinn skerf í
að efla söngflokk safnaðarins. Sérstaklega viljum við minnast
félagskonunnar, sem lengst hefur verið organisti kirkjunnar. Hún
hefur gefið mikið af sínum tíma og kunnáttu, valið viðeigandi og
fagra kórsöngva, æft söngflokkinn og annað söngfólk, sem hefur
skemt okkur með söng við ýms tækifæri. Við þökkum þetta starf.
Kórsöngur er dýrmætur þáttur við allar guðsþjónustur.
Árlega er gefið til heiðingjatrúboðs og heimatrúboðs — The
World Lutheran Action. Til Jóns Bjarnasonar skóla meðan þess
var þörf. Til Betel, með fé úr sjóði og með samskotum, sem félagið
hefur gengist fyrir. í útvarpssjóð, Red Cross, glaðning til hermanna
á stríðsárunum, Canadian Needy Childrens Fund, Dental Clinic, í
sjóð kennarastólsins í íslenzkum fræðum við Manitobaháskólann.
Á þessu síðasta ári lagði félagið $200.00 1 byggingarsjóð fyrirhugaðs
samkomuhúss Árborgar. Frá því sjúkrahúsið var byggt hér í Ár-
borg 1950 hefur félagið styrkt það á margan hátt með peninga-
gjöfum og vinnu. Þrjár félagskonur vinna í sérstakri sjúkrahúss-
nefnd, sem í eiga sæti fulltrúar hinna ýmsu kvenfélaga byggðar-
innar. í félagi við safnaðarkvenfélag Víðir og Geysir kostaði það
innréttingu á einu herbergi sjúkrahússins.
Síðast en ekki sízt af óskabörnum félagsins eru Sumarbúðir
Bandalagsins. Mun það hafa verið Mrs. Ingibjörg J. Ólafsson, sem
var upphafsmaður að þeirri hugmynd. Var henni fyrst hreyft á
fundi í Árborg. Var Mrs. Ólafsson þá forseti félagsins. Sem önnur
félög innan Bandalagsins hefur þetta félag lagt eftir getu til
Sumarbúðanna og þráir að sjá sem mestan og heillavænlegastan
árangur af því starfi.
Svo langar mig með fáum orðum að minnast prestskonanna
okkar: —
Mrs. Helga Bjarnason var meðlimur Kvenfélagsins í kringum
20 ár. Hún var og er enn svo fríð ásýndum og framúrskarandi prúð í
allri framkomu. Stjórnsöm heimilismóðir, og tók einlægan þátt í
öllu starfi Kvenfélagsins.
Mrs. Ingibjörg J. ólafsson var forseti félagsins í mörg ár.
Skapfesta hennar og viljaþróttur átti sinn þátt í því að gjöra hana
að leiðtoga hvar sem starfssvið hennar var. Undir hennar hand-
leiðslu var okkur gefinn styrkur til að leggja okkar beztu krafta
fram til að styrkja kirkju vora og allan kristilegan félagsskap.