Árdís - 01.01.1956, Page 31
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
29
Brandson, Ingunn Fjelsted, Thorbjörg Jónasson, Violet Ingaldson,
Ingibjörg J. Ólafsson, Guðrún A. Erlendson, Hólmfríður Danielson,
Magnea Sigurdson, Guðfinna Carscadden, Guðrún Thorsteinsson,
Florence Paulson, Thora Johannson, Margrét Björnsson, Sigríður
Anderson, Alma Bjarnason, Guðrún Jóhannsson og Emily
Vigfússon.
Aðrar núverandi starfskonur félagsins eru þessar: —
Mrs. G. Alexander, Mrs. G. B. Björnsson, Mrs. S. S. Guðmunds-
son, Mrs. Svana Sveinsson, Mrs. Lóa Guðmundsson, Mrs. S. Einars-
son, Mrs. Rúna Oddleifsson, Mrs. Rikka Johnson, Mrs. Ruby Odd-
leifsson, Mrs. B. I. Sigvaldason, Mrs. S. I. Sigvaldason, Mrs. Laura
Goodman, Mrs. Josie Erlendson, Mrs. Guðrún Borgfjörð, Mrs. Helga
Johnson, Mrs. W. S. Eyolfson.
Núverandi stjórnarnefnd skipa: Magnea Sigurdson, forseti,
Sigríður Anderson, skirafri, Thora Johannson, féhirðir.
Mætti rita langt mál um fórnfýsi og einstakan dugnað þessara
kvenna, og margra annara félagssystra, sem hafa ekki verið nefndar
með nafni, en nöfn þeirra munu geymast í þakklátum hjörtum
samferðafólks og félagssystra.
Árið 1914 gekkst félagið fyrir stofnun Dorcas félags með
ógiftum og unglings stúlkum. Markmið þess var að styrkja söfnuð
og önnur góð málefni. Aðalhvatamaður þess var Mrs. Vilborg
Johnson. Starfaði það félag dyggilega í mörg ár, þó að það sé nú
liðið undir lok. Nokkrir meðlimir þess tilheyra nú Kvenfélagi
Árdalssafnaðar.
í desember 1949 var stofnað annað safnaðar-kvenfélag með
yngri og enskumælandi konum. Stofnendur voru 18. Mrs. Alma
Bjarnason var forgöngukona og með öðrum félagssystrum vann
hún að stofnun þess félagsskapar.
Margar kvenfélagskonur hafa lagt mikð á sig við Sunnudags-
skólastarf, bæði í Framnesi og Árborg sem stofnendur, forstöðu-
konur og kennarar; þær hafa líka uppfrætt ungmenni fyrir ferm-
ingu. Sunnudagaskólastarf er blessunarríkt, má segja að það sé
grundvöllur ekki aðeins kirkjunnar heldur fyrir alla framtíð.
Peninga til framkvæmda aflaði félagið með skemtisamkomum,
oftast tvær samkomur á ári. Var þar margt til skemtunar, svo sem
ræðuhöld, upplestur, kappræður og söngur. Einnig tombólur, köku-
skurður, kassauppboð og fleira. Undir eins á öðru starfsári félagsins
var sjónleikurinn „Misskilningur" sýndur; upp frá því annaðist