Árdís - 01.01.1956, Side 64

Árdís - 01.01.1956, Side 64
62 ÁRDÍS og settust að í Winnipeg, og þar dó ólafur um aldamótin; en Guðlín, er gifst hafði Jóni Hannessyni (bróður Kristjáns) andaðist þar, á bezta aldri, frá tveim kornungum börnum, nokkrum árum fyr. Móðir þeirra systra, Elín, var upp frá því hjá Sigríði til dánar- dægurs, er hlúði að hinni blindu og lasburða móður í tuttugu og fimm ár, af eindæma ást og trygð. Sigríður giftist 5. apríl 1891 Kristjáni Hannessyni, ættuðum frá Miðgörðum í Hnappadalssýslu, sómamanni til orða og verka, en hann missti hún 1942, eftir fimmtíu og eins árs sambúð í farsælu hjónabandi. Bjuggu þau alla tíð í Winnipeg og eru jarðsett, hvort við annars hlið í grafreit borgarinnar. Þeim varð tíu barna auðið, dóu tvö í æsku, en átta lifa foreldra sína; þau eru: Hannes, Ólafur, Tómas, Kristín, Sigurbjörg og Jórunn, öll í Winnipeg, Elín og Kári í British Columbia-fylki. Sannfæringin og trygðin héldust í hendur og entist alla daga. Þau Kristján og Sigríður voru ævilangt meðlimir Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg, þar voru þau gift, þar voru börn þeirra skírð og fermd og sum gift, og þaðan voru þau bæði lögð til hinztu hvíldar að loknum störfum. Hún var meðlimur í kvenfélagi safnað- arins í mörg ár. Sigríður elskaði blóm og alla náttúrufegurð, bar innilega samúð með dýrum og hugsaði um og hlúði að litlu vetrarfuglunum eins og henni hefði einni verið trúað fyrir að annast þá. Hún var gæfukona alla ævi; giftist ung ágætismanni, eignaðist mörg og efnileg börn og sá þau þroskast til manndómsára; var þess megnug að hlynna að foreldrum sínum, er heilsa þeirra þraut, og vera altaf veitandi en aldrei þurfandi. Lund hennar var hrein og drengileg, fáskiftin um aðra og dul á sína, sein til vináttu og vinmæla og leitaði heldur ekki eftir slíku hjá öðrum; en þeim sem hún tók trygð við, gleymdi hún aldrei, og var þá líka betri en engin, ef á reyndi. Á allri lítilmensku,seinlæti og leti, tildri og hégómaskap hafði hún óbeit. Hún var alvörugefin og trúrækin, tilfinningarnar næmar og djúpar, er komu löngum meira fram í athöfnum en orðum. Ég sá frænku síðast, samadaginn og ég lagði á stað í heimsókn til skyldmenna minna austur við haf. Sagðist hún þá vera þreytt og lá útaf. Reis samt upp og skrifaði nokkrar línur til Björns bróður míns og bað mig að færa honum, ásamt ástarkveðju til systkina
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.