Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri
Þrjú svefnherbergi (78 fm). Rúm fyrir
sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í s. 618-2800.
Húsnæði í boði
Stór tveggja herbergja íbúð á
fyrstu hæð í litlu fjölbýli í Kringlunni
með sérgarði. Íbúðin losnar 1. janúar
nk. Upplýsingar í s: 899-7012.
170 fm hæð með bílskúr
270 Mosfellsbæ
Til leigu hús í Súluhöfða með miklu
útsýni sem liggur við golfvöll.
3 svefnherbergi, stofa og sjónvarps-
hol. Leiguverð 195 þ. Laust strax.
S. 822-2550 Elli eða 822-2566.
Húsnæði óskast
Óska eftir að leigja tveggja íbúða
eign (einbýli/tvíbýli eða raðhús).
Upplýsingar í síma 822 0558 og
695 8023.
4ra herb. íbúð í 101 Rvík
Erum 3 vinkonur að leita að 4ra
herb. íbúð í 101 Rvík. Við erum
pottþéttir leigjendur (2 laga-
nemar og ein í viðskiptafræði)
og heitum skilvísum greiðslum.
Nánari upplýsingar í s. 866 0778.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Upledger höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð
1. áfanginn í Upledger höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð verður
haldinn í Reykjavík 7.-10. febrúar
2009. Uppl. og skráning á
www.upledger.is eða í s: 466-3090.
Málaskólinn Lingva ehf.
Námskeið í tungumálum á vorönn
2009. Ítalska, spænska, enska,
norska, þýska, gríska, japanska,
kínverska, arabíska. Icelandic for
foreigners. www.lingva.is,
Laugavegur 170, s. 561-0315.
Frábært, rafrænt námskeið í
netviðskiptum. Notaðu áhugamál
þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að
skapa þér góðar og vaxandi tekjur á
netinu. Við kennum þér hvernig!
Skoðaðu málið á
http://www.menntun.com
Þjónusta
Plexiform og bólstrun
Dugguvogi 11, 104
Fjöldaframleiðsla úr plexigleri og áli.
Sjá heimasíðu plexiform.is
Leðurbólstrun, sætaviðgerðir og
aukahlutir farartækja, skiltagerð.
Sími 555-3344, opið frá 9 til 17.
Ýmislegt
ÚT AÐ GANGA!
Eigum úrval af vönduðum
götuskóm úr leðri, skinnfóðraða,
fyrir dömur og herra.
Mjúkir og þægilegir leðurskór
á góðum gúmmísóla fyrir dömur.
Stærðir: 36 - 42. Litir: Rautt og svart.
Verð: 11.900.-
Mjúkir og þægilegir leðurskór
með stömum sóla fyrir dömur.
Stærðir: 36 - 42. Litir: svart.
Verð: 11.900.
Vandaðar og góðar herramokka-
síur úr leðri. Stærðir: 40 - 46.
Litir: Svartir og ljósir. Verð: 6.885.-
Flottir og sportlegir leðurskór
fyrir alvöru menn. Stærðir: 40 - 48.
Litir: Svart, brúnt og mislitt.
Verð: 9.985.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
NÝTT LÍF - HREYFUM OKKUR Á
NÝJU ÁRI
Íþróttahaldarinn sívinsæli í BCD
skálum Í SVÖRTU OG HVÍTU á kr.
3.850,- og aðhaldsbuxur í stíl í
stærðum S,M,L,XL á kr. 1.950,--
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bátar
Réttindanám fyrir skemmtibáta
Réttindanám fyrir báta undir 12
metrum og skemmtibáta. Fjarnám
við Framhaldsskólann í Austur-
Skaftafellssýslu. Skráning á vefnum:
www.fas.is og í síma 470-8070.
Umsóknarfrestur til 14. janúar 2009.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is
✝ Guðrún Sigurð-ardóttir fæddist
að Rauðuskriðu í
Suður-Þingeyj-
arsýslu þann 7.2.
1931. Hún lést að
heimili sínu þann 27.
desember síðastlið-
inn.
Þann 20. ágúst ár-
ið 1955 gekk Guðrún
í hjónaband með
Gesti Hjaltasyni
fæddum á Rúts-
stöðum í Eyjafirði
26.1.1931. Börn
þeirra eru: Hulda f. 23.4. 1955,
Sigurður f.21.8. 1957, Hjalti f. 3.9.
1962 og Sverrir f. 30.4. 1971.
Barnabörnin eru 14
og barnabarnabörn-
in 4
Guðrún ólst upp í
stórum barnahópi að
Rauðuskriðu en fór
til náms að Hús-
mæðraskólanum að
Laugum þar sem
hún stundaði hús-
mæðranám á ár-
unum 1951 til 1952.
Guðrún og Gestur
hófu búskap á Ak-
ureyri í águst 1955
þar sem þau hafa
búið síðan.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
klukkan 13.30.
Elsku Rúna.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guð geymi þig og takk fyrir allt.
Hólmfríður systir.
Í nýbyggðu húsi á Byggðavegi 137
á Akureyri bjuggu tvær ungar fjöl-
skyldur. Þetta var á árunum 1957 til
um 1960. Bræðurnir Aðalsteinn og
Gestur Hjaltasynir ásamt eiginkon-
um sínum Kristbjörgu Björnsdóttur
og Guðrúnu Sigurðardóttur og fimm
ungum börnum voru nýflutt inn í
húsið sem bræðurnir höfðu byggt
saman. Bræðurnir Aðalsteinn og
Gestur gerðu nánast allt saman.
Fyrst byggðu þeir húsið á Byggða-
veginum og síðan húsið Stafholt 12
sem við fluttum í um 1960. Á árunum
á Byggðaveginum ríkti gleði og
ánægja á meðal ungu foreldranna og
barnanna og mjög góð tengsl voru
mynduð sem aldrei hafa rofnað.
Ég og fjölskylda mín höfum alla
tíð haft mikið og náið samband við
Rúnu eins og hún var kölluð í dag-
legu lífi. Rúna hefur verið stór þáttur
í mínu lífi og kveð ég hana í dag með
söknuði. Á öllum ferðum mínum til
Akureyrar hef ég ávallt bankað upp
á hjá Rúnu og Gesti. Það tilheyrði
góðri heimsókn. Rúna var ákaflega
gestrisin og var unun að koma til
hennar. Rúna var ekki spör á sitt
hlýlega viðmót og fallegt bros henn-
ar var alltaf einlægt og eftir hverja
heimsókn langaði mann til þess að
staldra við lengur.
Rúna var ákaflega handlagin og
eru það ansi margar flíkurnar sem
hún hannaði og saumaði á börnin sín
á uppvaxtarárum þeirra. Ótalin eru
einnig hin mörgu veisluborð sem
Rúna hefur átt heiðurinn af. Nú
seinni árin hefur hún einnig verið
ötul við að mála á postulín. Rúna var
glæsileg kona sem helgaði líf sitt um-
hyggju fjölskyldu sinnar sem hún
var ákaflega stolt af. Hún var stolt af
börnum sínum og barnabörnum og
ekki síst eiginmanni sínum, honum
Gesti.
Rúna og Gestur voru mjög sam-
hent hjón og var ánægjulegt að sjá
hve dugleg þau hafa verið seinni árin
að nota stundirnar við hina ýmsu
skemmtun. Á bátnum sínum hafa
þau margoft farið á sjó sér til
skemmtunar til að veiða í soðið og
notið þess að sigla um Eyjafjarðar-
svæðið og einnig hafa þau verið ötul
að ferðast um á húsbílnum sínum vítt
og breitt um landið.
Ég vil þakka Rúnu samferðina og
vináttu alla tíð. Gesti frænda, börn-
um og aðstandendum öllum sendi ég
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Rúnu.
Anna Aðalsteinsdóttir.
Það er gangur lífsins að koma og
fara. Hinn 27. desember var Rúna
eins og hún oftast var nefnd að fara.
Reyndar var það svo að þegar hana
bar á góma kom nafn Gests líka upp í
hugann. Gestur og Rúna voru svo
fast meitluð saman í hugum okkar.
Við fluttum suður haustið 1956.
Æskuheimili Gests og Rósu, Rúts-
staðir í Eyjafirði, var fastur við-
komustaður okkar fram á miðjan ní-
unda tuginn á meðan foreldrar
þeirra, Anna og Hjalti, bjuggu þar.
Samverustundir okkar með Gesti og
Rúnu voru margar bæði fyrir norðan
og sunnan. Heimilið á Byggðaveg-
inum var öruggt skjól og þar var gott
að koma. Þar komu líka margir.
Rúna var góð kona og það var gott að
vera í návist hennar. Allar okkar
minningar um Rúnu eru bjartar og
hlýjar. Við áttum oft samleið sem
geymist í minningunni, t.d. ættarmót
í Eyjafirðinum, ferð í Hrísey, nokkr-
ir berjadagar og harmonikkudans-
leikirnir svo eitthvað sé nefnt. Síðast
kom Rúna í heimsókn til okkar í
sveitina í Eyjafjörðinn á fallegum
degi sl. sumar og þar nutum við nátt-
úrufegurðarinnar og samverunnar.
Síðustu árin voru erfið þar sem hún
átti í baráttu við illkynja sjúkdóm.
Við þökkum fyrir allar stundirnar
sem við áttum með Rúnu um leið og
við kveðjum hana með söknuði. Við
vottum Gesti og afkomendum þeirra
samúð okkar.
Rósa og Örn Smári.
Guðrún Sigurðardóttir
Nú hefur þú kvatt okkur, elsku
amma Rúna eins og við öll köll-
uðum þig.
Það er sárt að sjá á eftir þér,
elsku Rúna mín. Yndislegri
tengdamömmu er varla hægt að
hugsa sér. Viðmót þitt alltaf það
sama, ljúf og góð.
Það er margs að minnast, sér-
staklega áranna sem við bjuggum
á neðri hæðinni hjá ykkur afa í
Byggðaveginum. Þar var mikið
fjör oft á tíðum, sérstaklega þegar
Gestur og Torfi fóru að stækka.
Þú varst alveg einstaklega lagin
við börn, gast jafnvel komið í þau
mat sem enginn annar gat gert, þú
notaðir þína töfra til þess.
Svo varst þú heimsins besti
kokkur svo maður tali nú ekki um
kökurnar sem þú gast reitt fram
án nokkurs fyrirvara, og hafðir
gaman af, enda alltaf verið gest-
kvæmt hjá ykkur afa í Byggðaveg-
inum, og þú naust þess svo að vera
innan um fólk.
Listakona bjó líka í þér, nokkra
fallega muni á ég eftir þig sem þú
ýmist málaðir á eða mótaðir úr
leir. Það er svo ótalmargt sem ég
gæti sagt frá á þeim tæpu tuttugu
árum sem ég fékk að njóta sam-
vista við þig. En ég ætla að stoppa
hér og geyma þær dásamlegu
minningar í hjarta mínu um
ókomna tíð. Takk fyrir að hafa
fengið að kynnast þér og fyrir að
hafa verið drengjunum okkar
Hjalta, Gesti Torfa Magna og Orra
heimsins besta amma. Elsku afi,
vinur, það verða viðbrigði fyrir þig
að hafa hana ömmu okkar ekki hjá
þér, en svona er nú víst lífið. Megi
guð gefa þér, afi minn, og okkur
öllum sem áttum hana ömmu Rúnu
okkar styrk á þessum erfiðu tím-
um. Kveð þig með söknuði, elsku
Rúna mín.
Lítið ljóð sendi ég þér
um fallega minningu
sem býr í brjósti mér
Hún þessi minning
minnir mig svo ákaft á þig
Hún er bara um mig og þig
(Viska 1985.)
Þín,
Aníta.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Minningargreinar