Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Eftir Birnu G. Konráðsdóttur Borgarbyggð | Öflug ferðaþjónusta er rekin í Reykholti í Borgarfirði og fæstir gera sér líklega grein fyrir því hversu margir gestir sækja stað- inn heim árlega, en sú tala slagar upp í um eitt hundrað þúsund. Þar af nýta um 15.000 manns sér aðstöðu Snorrastofu í Reykholti og Reyk- holtskirkju, ásamt því að njóta sýn- inga. Mikið hefur breyst á þeim rúm- lega tíu árum sem liðin eru síðan Snorrastofa var sett á laggirnar, enda almenningur farinn að vita hvað og hvar Snorrastofa er. Að sögn Bergs Þorgeirssonar, forstöðu- manns Snorrastofu, hefur mikil upp- bygging átt sér stað á svæðinu til að laða að ferðamenn og gera umhverf- ið þannig að fólk vilji leggja þangað leið sína. Snorrastofa var formlega stofnuð árið 1995, en hóf reglu- bundna starfsemi fyrir tíu árum. Á sama tíma hófst starfræksla heils- árshótels, sem nú ber heitið Foss- hótel Reykholt. Starfsemi Snorra- stofu er fjölbreytt, allt frá því að koma að hinum ýmsu rannsóknum til þess að taka á móti ferðamönn- um. Bergur segir móttöku gesta byggða á persónulegri þjónustu hvort sem um er að ræða ferðamenn lega sé Reykholt safn án veggja. „Fólk getur sest niður í einhvern lund og borðað nestið sitt og þá er um leið verið að nýta þá aðstöðu sem komið var upp í þeim tilgangi. Heim- sóknir í Reykholt eru um 100 þús- und gestir á ári sem kemur til af því að peningar hafa verið settir í að styrkja allt svæðið.“ Draumur starfsmanna Snorrastofu er að í framtíðinni geti þau skartað stærri verslun, kaffihúsi bæði til að selja einstaklingum og hópum kaffi, ásamt því að bæta móttökuna í Snorrastofu og efla sýningarsalinn. Send hafa verið erindi til yfirvalda um stuðning við frekari uppbygg- ingu á staðnum og er sú málaleitan í skoðun. Hins vegar eru staðarhald- arar í Reykholti bjartsýnir á að aft- ur komi sól í heiði með blóm í haga. Heill hugmyndapakki er tilbúinn varðandi ferðaþjónustu þegar vorar á ný í íslensku efnahagslífi. „Trú manna hér er sú að Reykholt geti aldrei orðið undir í kreppu þar sem staðurinn er þjóðmenningar- staður. Það virðist þó brenna við að Íslendingar geri sér ekki grein fyrir því hversu stórt nafn Snorra Sturlu- sonar er í útlöndum. Það að hann bjó í Reykholti tryggir heimsóknir fjölda ferðamanna hingað um ókomna tíð,“ segir Bergur Þorgeirs- son. staðurinn hafi upp á að bjóða, hvort sem það sé á svæðinu úti eða í sýn- ingarsalnum, versluninni, ráðstefnu- aðstöðunni eða kirkjunni. Reykholt, safn án veggja „Smátt og smátt hefur staðurinn verið byggður upp til að vera betur í stakk búinn til að taka á móti ferða- mönnum. Mikið hefur verið lagt í stígagerð og gefið hefur verið út göngukort af svæðinu og Snorra- stofa kemur að öllu þessu.“ Bergur segir jafnframt að eigin- eða aðra þá sem hafa not af þeirri aðstöðu sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Fleiri ferðamenn Prestarnir á staðnum og síðan starfsmenn gestamóttökunnar undir forystu Dagnýjar Emilsdóttur hafi tekið á móti hópum og sagt frá kirkj- unni og staðnum en draumurinn sé að tvinna saman margmiðlun og per- sónulega þjónustu. „Við höfum á til- finningunni að ferðamönnum sem koma í Reykholt hafi fjölgað meira á síðasta ári en árinu 2007 þótt við séum ekki búin að taka nákvæmlega saman tölur þar um. Aðsóknin hefur aukist jafnt og þétt og einnig hefur tímabil ferðamennskunar lengst. Straumurinn byrjar fyrr og endar síðar. Hér áður fyrr var mest um að hópar kæmu hingað eða ferðirnar væru skipulagðar, en svo er ekki lengur. Nú er meira um að fólk komi á eigin vegum, fólk sem hefur meiri tíma til að skoða og njóta en þeir sem koma í skipulögðum ferðum.“ Bergur segir ennfremur að hug- myndafræðin á bak við starfsemina í Reykholti sé sú að fólk gefi sér tíma til að stoppa og koma aftur. Gestir hafi bæði gagn og gaman af að dvelja í Reykholti og njóti þess sem Reykholt er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins Í HNOTSKURN »Í Reykholti er hægt aðskoða margt annað en hús- byggingar. Komið hefur verið upp borðum og bekkjum í notalegum lundum hér og hvar á staðnum. »Þar geta ferðalangar sestniður með kaffið sitt og nesti og notið fegurðar Reyk- holtsstaðar. Morgunblaðið/Birna G. Konráðsdóttir Kirkja Saga Snorra Sturlusonar tryggir áhuga ferðamanna á Reykholti. Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ómar ÞRETTÁNDI mótmælafundurinn í röð var haldinn á Austurvelli á laug- ardag, en yfirskrift mótmælanna er „Breiðfylking gegn ástandinu“. Marg- ir lögðu leið sína á Austurvöll að þessu sinni til að sýna vilja sinni í verki og hlusta á ræðumenn. Ræðumenn voru Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir kenn- ari, Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Dagný Dimmblá Jóhanns- dóttir, 8 ára skólastúlka. Dagný flutti ræðu sína af skörungsskap. Fund- armenn létu heyra vel í sér. Þeirra á meðal var Birna Þórðardóttir sem hefur verið dugleg að sækja mótmælafundi í gegnum árin. Hún var með rauða hanska og klappaði ákaft fyrir ræðumönnum. Dagný Dimmblá sló í gegn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.