Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Australia kl. 6:30 - 10 B.i. 12 ára The day the earth... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára Zack and Miri ... kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára Saw 5 kl. 10:20 B.i. 16 ára Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 HEIMSFRUMSÝNG Á MAGNAÐRI STÓRMYND Í ANDA INDEPENDENCE DAY BYGGÐ Á EINUM BESTA VÍSINDATRYLLI ALLRA TÍMA! SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Four Christmases kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 áraAustralia kl. 5:30 - 9 B.i. 12 ára Skoppa og Skrítla í bíó kl. 6 LEYFÐ Inkheart kl. 5:40 - 8 -10:20 B.i. 10 ára Taken kl. 8 - 10 B.i. 16 ára 650k r. ÆVINTÝRAMYND AF BESTU GERÐ Bráðskemmtileg mynd þar sem heimur galdra og ævintýra lifnar við SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Stórkostlegt meistaraverk frá leikstjóra Moulin Rouge! - S.V., MBL SÝND Í SMÁRABÍÓI ,,ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND” -VJV -TOPP5.IS/FBL Australia kl. 8 B.i.12 ára Inkheart kl. 6 - 8 B.i. 10 ára Skoppa og Skrítla í bíó kl. 6 LEYFÐ The Day the Earth stood still kl. 10 B.i.12 ára „HÖRKU HASAR MEÐ JASON STATHAM Í AÐALHLUTVERKI“ -S.V. - MBL Fyrir sum verkefni þarftu einfaldlega atvinnumann 650k r. Stærsta BOND-mynd allra tíma! 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM 650k r. 650k r. LEIKURINN HELDUR ÁFRAM... ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú Eftir Heimi Snorrason heimirsnorrason@yahoo.com Good bye eftir Yoshihiro Tatsumi Yoshihiro Tatsumi var mjög lítið þekkt- ur í Japan fram á þetta árþúsund. Hann hefur þó verið ötull við að teikna og skrifa frá 7. áratug síð- ustu aldar. Helst virðast það hafa verið umfjöllunarefni hans sem stóðu honum fyrir þrifum í hinu myndasögubrjálaða Japan. Þögul örvænting og tilfinningalegur sárs- auki hins venjubundna japanska karlmanns kallar ekki endilega á metsölu. En hann hafði ávallt sterk- an sess meðal japanskra neðanjarð- armyndasöguunnenda og nú upp á síðkastið hefur hagur hans vænkast og er hann jafnvel titlaður guðfaðir neðanjarðarmanga í dag. Við á Vesturlöndum höfum svo fengið að njóta verka hans í þýðingum und- anfarin ár, sem er mikil mildi því um er að ræða hrein meistaraverk hins daglega hryllings. Mér telst til að út séu komin þrjú bindi verka hans frá tímabilinu í kringum 1970. Tatsumi er ágætur teiknari en þó frekar flatur. Andlitshrif persón- anna sem oftast eru svo mikilvæg í svona tilfinningaþrungnum sögum geta verið einhæf hjá honum og jafnvel má segja að aðalpersónur mismunandi smásagna séu með sömu andlitsdrætti. Í flestum sög- um væri um last að ræða en hjá Tatsumi nýtist þessi einfaldleiki til annars framúrskarandi mynda- sögu. Bourbon Island 1730 eftir Lewis Trondheim og Appollo Lewis Trond- heim er einn þekktasti myndasöguhöf- undur Frakka og með eindæmum afkastamikill. Und- anfarið hefur hann getið sér hvað best orð fyrir Dungeon-grínfant- asíuna en önnur verk hans fara einnig mikið inn á sjálfsævisögu- legar úttektir og tilvistarlegar pæl- ingar. Í Bourbon Island vinnur hann í samstarfi við höfund sem kallar sig því lítilláta nafni Apollo. Sagan fjallar um franska fuglafræð- inga í leit að hinum sjaldséða Dodo- Myndasögur ársins 2008 Myndasaga ársins Úr Good bye eftir Yoshihiro Tatsumi, sem gagnrýnandi segir ótrúlega magnað verk. Besta uppskeran af myndasöguakrinum » Í flestum sögum væri um last að ræða en hjá Tatsumi nýtist þessi einfald- leiki til að næra upp- lifun lesandans. Sög- urnar fá að standa fyrir sínu og líða áfram eins og góðu manga er einu lagið. Svipmyndir tilfinningalegrar ör- birgðar og innibyrgðra tilfinninga. að næra upplifun lesandans. Sög- urnar fá að standa fyrir sínu og líða áfram eins og góðu manga er einu lagið. Svipmyndir tilfinningalegrar örbirgðar og innibyrgðra tilfinn- inga. Good bye er ótrúlega magnað verk og er vel að því komið að hljóta titilinn besta myndasaga ársins. The Joker eft- ir Brian Azz- arello og Lee Bermejo Í kjölfar vin- sælda nýjustu Batman-mynd- arinnar og ekki síst leiksigurs Heaths Ledger heitins sem Jókerinn mátti búast við holskeflu myndasagna þar sem reynt yrði að nýta þennan tíma- bundna áhuga almennings. Skýr- asta dæmið um þetta er bókin The fugli. Þeir ferðast til Bourbon-eyju í Indlandshafi og koma þar inn í flók- ið samfélag í mótun. Eyjan er ný- lenda jarðeigenda og uppgjafasjó- ræningja sem búa saman í brothættri sátt en báðir flokkarnir eiga í erjum við skæruliðasveitir brottflúinna þræla. Yfirborðsátökin eru þó aðeins leiktjöld fyrir bak- tjaldamakkið og hin samfélagslega vísun leggur sviðið fyrir einstaka þátttakendur. Þrátt fyrir viðfangs- efnið láta Apollo og Trondheim húmorinn ráða ferðinni. Frásögnin er létt og dregur fram það hvers- dagslega í samskiptum persónanna sem öðlast síðan dýpri merkingu með vísan í sögusviðið. Teiknistíll Trondheims er mjög laus, litir eru engir og skyggingar notaðar spar- lega. Þrátt fyrir þessa spartönsku tækni nær hann fram ótrúlegu lífi og margbreytileika í teikningum sínum. Gamaldags frágangur á bók- Joker eftir þá Brian Azzarello og Lee Bermejo þar sem kastljósinu er beint að vonda kallinum. Þessu hefði verið svo auðvelt að klúðra en Azzarello, sem margsinnis hefur tekist að sanna sig sem frábær sögumaður í 100 bullets og Hellbla- zer, nær að fanga geðveikina í Jó- kernum á undraverðan hátt þannig að hver klisja verður sem ný í hans höndum. Eins og í myndinni nær hann fram hinu skipulagða kaosi í atferli Jókersins, þar sem andúð á kennisetningum mannlegs siðferðis drífur hann áfram í handahófs- kenndu ofbeldi. Textinn dregur söguna áfram milli ramma eins og Azzarello er svo tamt þar sem hvert orð er útspekúlerað. Lee Bermejo er gríðarlega nákvæmur og fín- gerður teiknari sem nær að fanga stillimyndir frábærlega en er ekki sérlega hreyfanlegur í teiknistíl sín- um sem er helsti lösturinn á þessari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.