Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 5. J A N Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
3. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Leikhúsin
í landinu >> 37
KOLBRÁ BRAGADÓTTIR
FLAUMUR EFNA
OG EFNAHERNAÐUR
STÆRSTA BYGGÐASAFNIÐ?
Ferð til Færeyja er
öllum ógleymanleg
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
DAVÍÐ Þór Björgvinsson, dómari
við Mannréttindadómstól Evrópu
og prófessor við Háskólann í
Reykjavík, segir að Íslendingar geti
velt því fyrir sér hvort setja eigi í
stjórnarskrána ákvæði sem tæki
sérstaklega á yfirráðum Íslendinga
yfir auðlindum hafsins í kringum
landið, t.d. þannig að endanleg yf-
irráð yfir þeim væru áréttuð þótt
meðferð valds til að kveða á um
nýtingu þeirra yrði að einhverju
leyti deilt með Evrópusambandinu
eins og sjávarútvegsstefna sam-
bandsins geri ráð fyrir.
Hann segir jafnframt að hugtakið
fullveldi hafi verið misnotað í um-
ræðunni um ESB.
22 kaflar af 35
Með aðildinni að Evrópska efna-
hagssvæðinu hefur Ísland tekið upp
stóran hluta af löggjöf ESB. Ein
aðferðin við að meta hversu stór
hluti ESB er kominn í íslenskan
rétt er að skoða þá kafla sem samið
er um í aðildarviðræðum ríkja.
Samkvæmt þeim mælikvarða hefur
Ísland tekið upp 22 kafla af 35. Í
sumum málaflokkum hefur Ísland
tekið nánast alla löggjöf ESB upp
en minna í öðrum málaflokkum.
En ESB snýst um meira en
málaflokka. Sumir hafa miklar
áhyggjur af fullveldinu, m.a. Ragn-
ar Arnalds, sem segir að fullveld-
isskerðingin sem fælist í aðild að
ESB yrði enn djúpstæðari fyrir Ís-
lendinga en aðra vegna þess að yf-
irráðin yfir landhelginni væru svo
veigamikill þáttur í íslensku sjálf-
stæði. | 14-16
Ísland hefur þegar tekið upp stóran hluta af löggjöf ESB en margt stendur út af
Yfirráð yfir miðunum í stjórnarskrá
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
RÍKISSKATTSTJÓRI er að athuga
hverjir séu raunverulegir eigendur
um 300 stærstu hlutafélaga hér á
landi. Skúli Eggert Þórðarson rík-
isskattstjóri vonast til þess að athug-
uninni ljúki undir lok þessa mánaðar
en rúmur mánuður er síðan hún
hófst. Athugunin miðar m.a. að því
að upplýsa hve stór hluti af eignar-
haldi íslenskra hlutafélaga er hér
innanlands. Einnig að komast að því
hverjir eiga þá eignarhluta sem
skráðir eru á útlensk félög og hve
stór hluti þeirra er í raun og veru í
eigu Íslendinga með einum eða öðr-
um hætti.
Skúli segir það hafa færst í vöxt að
útlend félög séu skráð eigendur í ís-
lenskum félögum. Svo virðist sem að
þróun í þessa átt hafi byrjað svo um
munaði fyrir um áratug. Það getur
reynst flókið að rekja halarófu þar
sem eitt félag er í eigu annars og svo
koll af kolli. Þessi félög eru gjarnan
skráð til heimilis í ýmsum skatta-
skjólum heimsins og stundum er
komið að lokuðum dyrum.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að flók-
ið eignarhald félaga geti skapað
vandkvæði við eftirlit. Það dragi úr
gegnsæi og flæki stjórnsýslulega
meðferð mála. Samkeppniseftirlitið,
líkt og aðrar eftirlitsstofnanir, hafi
þurft í ýmsum málum að grafast fyr-
ir um eignarhald félaga. Í flestum til-
vikum hafi stofnunin komist að nið-
urstöðu um raunverulegt
eignarhald, en þetta hafi krafist fyr-
irspurna og eftirgrennslana. | 4
Rekja eigendaflækjur
Íslenskar eftirlitsstofnanir hafa þurft að
grafast fyrir um eignarhald hlutafélaga
Í HNOTSKURN
»Við skráningu félags í Fyr-irtækjaskrá, sem er til
húsa hjá Ríkisskattstjóra, þarf
að gera grein fyrir eign-
arhaldi félagsins.
»Málið flækist oft þegar út-lent félag, gjarnan skráð í
skattaskjóli, er hluthafi.
»Við nánari eftirgrennslankemur stundum í ljós að
það er í eigu annars félags og
svo koll af kolli.
ÁLAG á sjúkrahús á Gaza-svæðinu hefur aukist til mikilla muna eftir að
Ísraelar hófu landárásir á svæðinu um helgina en linnulausar loftárásir
hafa staðið yfir í eina viku. Sjúkrahús á svæðinu voru illa búin fyrir árás-
irnar og nú berast þeim vistir seint og illa. Að sögn lækna hamla herdeildir
Ísraela við Gaza-borg umferð sjúkrabíla og þar af leiðandi deyr fjölmargt
fólk áður en það kemst undir læknishendur. | 17
Neyð íbúanna á Gaza eykst
Reuters
Ábendingar vegna verðhækkana
fyrir útsölu verslana tínast inn á
borð Neytendastofu. Þetta segir
Tryggvi Axelsson, forstjóri
Neytendastofu. Hann segir ástæð-
una geta verið að verslunareig-
endur séu gjarnari á að breyta
verðmerkingum eða að neytendur
séu duglegri að láta vita.
Ásta Kristín Pálmadóttir reyndi
hið fyrrnefnda. Hún vildi kaupa
málningu í byggingavöruversl-
uninni Byko og bauðst hún á 3.490
krónur einn daginn og sjö þúsund
krónur á netinu þann næsta. | 2
Kvarta til Neytendastofu
ÍSLENSK
stjórnsýsla er
ágæt þegar lífið
gengur sinn
vanagang en
þegar kemur að
því að bregðast
við einhvers kon-
ar áföllum er hún
mjög veik, að
mati Sigurbjargar Sigurgeirs-
dóttur stjórnsýslufræðings.
Sigurbjörg segir skipulagt
ákvarðanatökukerfi ekki vera fyrir
hendi en að á tímum sem þessum
verði allar ákvarðanir að vera
gagnsæjar og ljóst hvernig þær
voru teknar og við hverja var haft
samráð. | 9
Veik stjórnsýsla og ekk-
ert ákvarðanatökukerfi
Jón Margeir Sverrisson hlaut sjó-
mannabikarinn á Nýárssundmóti
barna og unglinga hjá Íþróttafélagi
fatlaðra sem fram fór í gær.
ÍÞRÓTTIR
Jón Margeir fékk
sjómannabikarinn
Íslandsmeistarinn í skvassi, Kim
Magnús Nielsen, flýgur til Eng-
lands tvisvar í mánuði til að keppa
með enska liðinu Heart.
Íslandsmeistarinn
á ferð og flugi