Morgunblaðið - 14.02.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÞETTA var óþægileg tilfinning; ég
var dálítið hræddur á leiðinni niður,“
sagði Friðrik Marinó Ragnarsson,
15 ára Húsvíkingur, í samtali við
Morgunblaðið í gær, eftir að hann
lenti í snjóflóði ofan bæjarins.
Þeir voru tveir saman á leið upp
Húsavíkurfjall, skammt norðan við
skíðasvæðið. Hjörvar Jónmundsson
var á undan en snjórinn brotnaði
undan Friðriki Marinó, sem barst
dágóðan spöl með flóðinu. Það náði
honum upp undir hendur þegar
hann stöðvaðist. „Það var reyndar
ekkert mál að losna,“ sagði hann.
Þeir félagar kipptu sér ekki mikið
upp við óhappið fyrst í stað því Frið-
rik gekk sem leið lá upp brekkuna á
ný til Hjörvars og þeir renndu sér
niður á brettunum sínum eins og til
stóð. Héldu síðan beint á æfingu 10.
bekkinga í Borgarhólsskóla á frum-
sömdum söngleik sem bráðum á að
frumsýna en í gær var frjáls dagur í
skólanum.
„Við vorum í rólegheitum að æfa á
sviðinu þegar hringt var hingað og
við beðin að staðfesta að strákarnir
væru hér,“ sagði Kristjana María
Kristjánsdóttir, leikstjóri krakk-
anna, við Morgunblaðið. Þá voru
þeir ekki komnir, og það var ekki
fyrr en strákarnir mættu á æfingu
að þeir áttuðu sig á því að þeirra
væri leitað.
„Þá eru krakkarnir alveg skelf-
ingu lostnir og spyrja hvort þeir séu
búnir að láta vita að þeir séu fundn-
ir,“ sagði Ragnar Þór Jónsson, faðir
Friðriks, við mbl.is í gær. Um hálf-
tími leið frá því leit hófst þar til pilt-
arnir áttuðu sig á því að verið væri
að leita að þeim. „Þetta var mjög erf-
iður hálftími,“ sagði Ragnar.
Flóðið varð í Dagmálalág. „Það er
algengt að þarna falli smáspýjur en
þó ekki þannig að menn hafi áhyggj-
ur af því,“ sagði Guðbergur Æg-
isson, formaður björgunarsveit-
arinnar Garðars, við Morgunblaðið.
skapti@mbl.is
„Ég var dálítið hræddur“
15 ára lenti í snjó-
flóði við Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Heppnir Félagarnir Friðrik Marinó Ragnarsson, til vinstri, og Hjörvar Jón-
mundsson á æfingu með félögum sínum í 10. bekk skömmu eftir óhappið.
FJÖLDI manns lagði leið sína niður í Nauthóls-
vík í Reykjavík til að synda sjósund með glóandi
ljós síðdegis í gær í tilefni Vetrarhátíðar sem
hófst í gær og lýkur seint í kvöld.
Góð stemning var í hópi sjósundkappanna, en
jafnt vönum sem óvönum köppum var velkomið
að vera með, því leiðbeinendur voru á staðnum.
Að sjósundinu loknu gafst þátttakendum kostur
á að dýfa sér í heitan pott á svæðinu til þess að
jafna sig eftir veruna í köldum sjónum. Einnig
var boðið upp á rjúkandi heitt kaffi til þess að
orna sundfólkinu.
Ljósið kemur langt og mjótt yfir hafið á Vetrarhátíð
Morgunblaðið/hag
Metþátttaka í sjósundi
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
SAMKVÆMT lögum ber fjármála-
fyrirtækjum og öðrum að tilkynna
grun um peningaþvætti til Fjár-
málaeftirlitsins og sérstakrar pen-
ingaþvættisskrifstofu hjá embætti
ríkislögreglustjóra. Helgi Magnús
Gunnarsson, saksóknari á efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra, segir
engar ábendingar hafa borist emb-
ættinu sem styðji það sem Boris
Berezovsky hélt fram í viðtali á Sky
um peningaþvætti rússneskra auð-
manna á Íslandi.
„Hins vegar getur svona starfsemi
vel hafa farið fram án þess að við
fréttum af því,“ segir Helgi.
Hann óttast að fjármálafyrirtæki
hafi á síðustu árum ekki sinnt skyldu
sinni að tilkynna grun um umfangs-
mikið peningaþvætti eða verið á
varðbergi gagnvart vafasömum við-
skiptum og millifærslum milli landa.
Meira hafi verið tilkynnt um smærri
mál með litlum fjárhæðum tengdum
fíkniefnaviðskiptum, þegar komið
hefur verið í útibú með plastpoka
fulla af peningum.
„Við höfum oft velt fyrir okkur
hvort næg áhersla hafi verið lögð á
stóra viðskiptavini bankanna hvað
þetta varðar. Við höfum ekki fengið
margar ábendingar um stórar milli-
færslur á milli landa. Við erum háðir
tilkynningum um slíkar færslur þar
sem þetta eru viðskipti sem fara
fram inni í bönkunum. Við erum að
frétta af því fyrst núna hvað mikið
hefur verið af svona færslum í afla-
ndsfélögum,“ segir Helgi Magnús en
embætti hans hefur haldið mörg
námskeið með starfsfólki fjármála-
fyrirtækja um peningaþvætti og
hvernig beri að bregðast við því.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari vegna bankahrunsins,
segir að ásakanir Berezovskys geti í
fljótu bragði ekki hafa skipt miklu
máli um hrun bankanna. Komi fram
frekari ábendingar eða gögn þá muni
embætti hans að sjálfsögðu taka þau
til skoðunar.
„Stórþvætti“ sloppið í gegn?
Saksóknari efnahagsbrota óttast að fjármálafyrirtæki hafi gefið smærri málum meiri gaum en þeim
stærri vegna gruns um peningaþvætti Rússneskir auðmenn ekki komið til kasta íslenskra yfirvalda
Í HNOTSKURN
»Eftir að fyrstu lög um að-gerðir gegn peningaþvætti
tóku gildi árið 1993 hefur
fjöldi tilkynninga um grun um
peningaþvætti margfaldast.
»Upphæðir á bak við þaumál hafa einnig aukist,
voru 960 milljónir króna 2007.
KARLMAÐUR lést þegar verið var
að þrýstiprófa síló á vinnusvæði í
Bæjarhrauni í Hafnarfirði um
fimmleytið á fimmtudag.
Að sögn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu fékk maðurinn, sem
er íslenskur og fæddur árið 1949,
lok í höfuðið með þeim afleiðingum
að hann lét lífið.
Banaslys á
vinnusvæði
VERULEG verð-
hækkun er á
áburði milli ára.
Þetta kemur
fram á fréttavef
Bændablaðsins
þar sem greint er
frá því að Fóð-
urblandan hafi
sent við-
skiptavinum sín-
um verðlista yfir
áburð fyrir árið 2009.
Tonn af Magna 1 kostaði fyrir ári
38.500 kr. en kostar nú 59.800 kr.
og er það 55,3% hækkun. Tonn af
Græði 9 kostaði 49.400 kr. í fyrra
en 72.390 kr. nú, en það er 46,5%
hækkun. Í öllum tilfellum er 10%
pöntunarafsláttur reiknaður inn í
dæmin.
Áburður hækkar
Þungi Áburður
í tonnatali.
STUÐNINGUR við Sjálfstæðis-
flokk og Samfylkingu hefur aukist
á ný, en fylgi Vinstri grænna
dregist saman. Kemur þetta fram
í könnun MMR á fylgi flokkanna.
Fylgi Samfylkingarinnar
mælist nú 24,1% og er það veru-
leg aukning frá síðustu könnun
MMR, en þá mældist fylgi flokks-
ins einungis 16,7%. Þá dalar fylgi
Vinstri grænna nokkuð milli
kannana og mælist nú 23,4%, en
var 28,5%. Fylgi Sjálfstæð-
isflokksins eykst hins vegar um
tæp 5%, fer úr 24,3% í 29% og
mælist flokkurinn enn á ný
stærsti stjórnmálaflokkurinn.
Fylgi Framsóknarflokksins dalar
heldur og mælist nú 14,9% en var
17,2%.
Þeim sem sögðust myndu kjósa
aðra stjórnmálaflokka en buðu
fram síðast fækkar úr 7,9% frá í
janúar í 6,6% nú.
Sjálfstæðis-
flokkurinn
stærstur á ný
Fylgi Vinstri grænna
dregst saman
ÞARNA er verið að velta upp mjög
spennandi hugmyndum um sam-
starf, sem felur í sér fullt sjálfstæði
hverrar stofnunar, en samstarf um
húsnæði,“ segir Nína Magnúsdóttir,
formaður stjórnar Nýlistasafnsins,
um hugmyndirnar um listamiðstöð
í byggingunum við Sætún 8. Einnig
koma dánarbú Dieters Roth og
stofnun Francescu von Habsburg
að fyrirhuguðu samstarfi.
Von Habsburg telur samvinnu
hópanna hafa burði til að verða ein-
stök á heimsvísu. | 42, Lesbók
Einstakt á
heimsvísu
RADDIR fólksins standa fyrir 19.
mótmælafundi sínum í röð á Aust-
urvelli í dag kl. 15. Sem fyrr er yf-
irskrift fundarins: „Breiðfylking
gegn ástandinu“ en krafan nú er sú
að stjórn Seðlabankans víki.
Talsmenn Radda fólksins áttu í
víkunni fundi með viðskiptaráð-
herra, forseta ASÍ og forsætisráð-
herra þar sem staða Seðlabankans
var rædd. Ræðumenn dagsins eru
Elísabet Jónsdóttir ellilífeyrisþegi
og Ágúst Guðmundsson leikstjóri.
Fundarstjóri er Hörður Torfason.
19. mótmælafund-
urinn á Austurvelli