Morgunblaðið - 14.02.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 14.02.2009, Qupperneq 20
20 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 FLUGVÉL frá Continental-félaginu hrapaði á íbúðarhús í nágrenni Buff- alo í New York-ríki aðfaranótt föstudags. 50 manns fórust að sögn yf- irvalda og þar af einn íbúi hússins en mikill eldur blossaði upp á slysstað. Mildi þykir að ekki hafi kviknað í næstu húsum. Vélin var á leið frá New Jersey til Buffalo þegar hún hrapaði aðeins fáum mínútum fyrir lendingu. AP Brotlenti á íbúðarhúsi KÍNVERJINN He Pingping nýt- ur þess í krepp- unni að vera með matgrennri mönnum. Ping- ping dugar þann- ig að eigin sögn aðeins einn „kjúklingamoli“ í mat á dag, eða sem svarar einum ríflegum munn- bita af kjöti fyrir venjulegan mann. Pingping, sem er tvítugur, er 74,1 sentimetra hár og því lægsti maður heims samkvæmt Heimsmetabók Guinness. Hann vegur um sjö kíló. Pingping er nú á ferð um Japan og lét þar þau orð falla í viðtali að hann öfundaði ekki hávaxið fólk, enda ætti það, ólíkt sér, ekki alltaf hægt um vik með að ferðast. baldura@mbl.is Saddur af einum bita He Pingping Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is MIKLAR breytingar munu senn verða á fiskistofnum í heiminum vegna loftslagsbreytinga verði þær að veruleika. Munu þúsundir teg- unda flýja hækkandi hita og flytja sig nær pólsvæðunum, að því er seg- ir í grein vísindamanna í ritinu Fish and Fisheries en niðurstöður þeirra voru kynntar á ráðstefnu í Chicago. Notuð voru tölvumódel til að spá fyrir um áhrif hlýnandi loftslags á 1.066 mikilvægar veiðitegundir í höf- um heimsins. Fram kemur í frétt á vefsíðu BBC að gera megi ráð fyrir að sumir þorskstofnar sem banda- rískir sjómenn við austurströndina minnki um 50%. Víða geti orðið mikil röskun í lífríkinu vegna innrása nýrra tegunda. „Við verðum að grípa strax til ráð- stafana til að aðlaga fiskveiðistjórn- un okkar og verndunarstefnu og draga þannig eins og unnt er úr tjón- inu fyrir sjávarlíf og samfélag okk- ar,“ sagði dr. William Cheung, aðal- höfundur greinarinnar, en hann kennir við háskólann í Austur- Anglíu í Bretlandi. Hitt er þó ljóst að sums staðar mun fiskgengd aukast mikið og er m.a. spáð batnandi ástandi í Norður- sjónum. En sjómenn í mörgum hita- beltislöndum munu verða fyrir miklu tjóni vegna samdráttar í veiði. Gætu félagslegar og pólitískar af- leiðingar slíkra breytinga orðið mjög slæmar, að því er segir í annarri skýrslu sem birt var nýlega í Fish and Fisheries enda oftast um að ræða fátæk þróunarlönd. Fiskurinn mun flýja hitann Talið að loftslagsbreytingar muni reka margar tegundir í átt til pólsvæðanna Reuters Matur Þorskur á skoskum markaði. Hefur hlýnun þegar áhrif? Vísindamenn telja að svo sé þótt erf- itt sé að slá því föstu hvað valdi breytingum í lífríki sjávar. Makríll er nú farinn að veiðast í meira mæli en áður við Ísland, að sögn vegna breyt- inga á hitafari sjávar. Er fiskveiðum ógnað? Ofveiði er þegar vaxandi vandamál og vitað að fjölmargar tegundir eru í hættu. Evrópuríki hafa gert veiði- samninga við Afríkuríki til að bæta sér upp minnkandi afla á heimaslóð- um og stunda þar víða rányrkju. S&S Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is NEÐRI deild þýska þingsins sam- þykkti í gær tillögu ríkisstjórnarinn- ar um 50 milljarða evra aðgerða- pakka. Pakkanum er ætlað að lyfta þýsku efnahags- lífi upp úr þreng- ingum sem eru þær verstu frá lokum seinni heimsstyrjaldar- innar. Tillagan fer nú til umfjöll- unar í efri deild- inni þar sem kos- ið verður um hana 20. febrúar næstkomandi. Aðgerðirnar, sem eru þær um- svifamestu frá stríðslokum, inni- halda m.a. miklar fjárfestingar af hálfu ríkisins í sambandsríkjum og sveitarfélögum landsins. Þá kemur til skattalækkana og aðgerða sem miða að því að hvetja til bílakaupa í því skyni að koma til móts við stóran bílaframleiðslumarkað landsins. Ríkið aldrei skuldsettara Með björgunaraðgerðunum eykst skuldsetning þýska ríkisins sem aldrei fyrr eða um 36,8 milljarða evra skv. upplýsingum vefsíðu Der Spiegel. Þýski fjármálaráðherrann, Peer Steinbrück hefur sagt að á næsta ári muni Þýskaland ekki upp- fylla skilyrði Evrópusambandsins um fjárlagahalla. Nýr viðskiptaráðherra Þýska- lands, Karl-Theodor zu Guttenberg, mælti fyrir frumvarpinu í fyrstu ræðu sinni sem ráðherra í þýska þinginu. Guttenberg kemur úr röð- um CSU, systurflokks CDU, kristi- legra demókrata Angelu Merkel kanslara. Viðskiptaráðherrann sagði viðtek- ið að ríkið þyrfti að grípa inn í nú þegar „markaðurinn er hjálparvana vegna synda fárra manna“ sem hafi látið stjórnast af græðgi. Þýskaland, stærsta útflutnings- land heims, hagnaðist mikið á út- flutningi bíla og annarrar iðnaðar- vöru í uppsveiflu síðustu ára. Efnahagskreppa heims hefur því komið harkalega niður á Þjóðverjum þar sem eftirspurn eftir útflutnings- vörum hefur minnkað verulega. Spár fyrir yfirstandandi ár sýna að efnahagurinn muni skreppa sam- an um 2,25% og að atvinnuleysi muni ná 8,4% en það var 7,8% á síðasta ári. Þýska ríkið á leið í skuldafen Karl-Theodor zu Guttenberg Í HNOTSKURN »Samkvæmt nýjum tölumfrá Eurostat varð mestur samdráttur í Þýskalandi af öll- um ESB-löndunum á síðasta ársfjórðungi síðasta árs. Þá dróst þýska landsframleiðslan saman um 2,1%. »Samdráttur á fjórða árs-fjórðungi síðasta árs var sá mesti á evrusvæðinu allt frá því að evran var sett í umferð árið 1999. Aðeins varð vöxtur á Grikklandi, Kýpur og Sló- vakíu. Fornleifafundurinn í þrepa-píramídanum í Sakkara þykir merkilegur en þar fundust í vikunni allt að 30 múmíur frá mismunandi tímabilum. Þeirra á meðal var múmía í kalksteinskistu sem er talin vera frá 26. konungsveldi faraóa eða rúmlega 4.000 ára gömul. Fornleifafræðingarnir telja að múmían hafi varð- veist í mjög góðu ástandi en slíkt mun vera sjaldgæft á þessum slóðum þar sem uppgröftur hefur staðið yfir í áratugi. Að sögn Zahi Hawass, yfirfornleifafræðings Egyptalands, eru um 70% af fornum stórvirkjum Egyptalands enn grafin í jörðu. jmv@mbl.is Heimildir: National Geographic, Lost Civilizations: Egypt FUNDU ÓSNORTNA MÚMÍU Egypskir fornleifafræðingar fundu ósnortna múmíu frá faraóatímabilinu er þeir opnuðu innsiglaða kalksteinskistu í vikunni. Múmían fannst í elsta þrepa-píramída heims í borginni Sakkara. Sakkara Ný uppgötvun Konungleg útför U.þ.b. 30 múmíur fundust í greftrunarherbergi á 11 metra dýpi Þar á meðal tvær viðarkistur og ein innsigluð kalksteinskista Kista úr kalksteini Innsigluð með steypublöndu. Lokið var aftur þó í því væru sprungur. Múmía Fannst ósnortin og er talin vera af þeim sem herbergið var tileinkað Verndargripir úr gulli Múmían gæti verið með verndargripi úr gulli innan í vafningunum, sem eiga að tryggja aðgang að framhaldslífinu Forsaga Forn greftrunarstaður hinnar fornu höfuðborgar Egyptalands, Memfis Þar er elsti þrepa-píramídi heims, Djoser Í júní fundu fornleifafræðingar píramída sem er talinn tilheyra móður faraós sem réð ríkjum fyrir meira en 4.000 árum Faraóar og aðrir konungbornir voru oft greftraðir samkvæmt flóknum siðum Ferlið eins og var hjá Tútankamún Útfarar- gríma Innsta kistan Skíragull Múmía Önnur kista Ysta kistan Steinkista Búin til úr rauðu kvarsíti og rauðu graníti Helgiskrín Stundum eru mörg helgiskrín utan um steinkistuna EGYPTALAND Níl Gíza Þeba Kaíró Sakkara 200 km Múmía fundin eftir 4000 ár í jörðu ÖRYGGISSVEITIR í Simbabve handtóku í gær háttsettan mann í MDC, flokki Morgans Tsvangirais, rétt áður en Tsvangirai átti að sverja eið sem nýr forsætisráðherra. At- höfnin fór þó fram en ljóst þykir að handtakan geti valdið mikilli spennu. Hinn handtekni heitir Roy Benn- ett og á að verða aðstoðarlandbún- aðarráðherra í stjórn Tsvangirais. MDC sagði að hann hefði verið flutt- ur í fangelsi sem væri „alræmd mið- stöð pyntinga og yfirheyrslna“. Tsvangirai tekur við embættinu í kjölfar þess að samkomulag náðist loks eftir marga mánaða togstreitu um skiptingu valda milli hans og Ro- berts Mugabes, hins einráða forseta landsins undanfarna áratugi. Efna- hagurinn er í rúst og milljónir manna hafa þegar flúið land. kjon@mbl.is Handtóku ráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.