Morgunblaðið - 14.02.2009, Page 23

Morgunblaðið - 14.02.2009, Page 23
verður hjá Evrópusambandinu því þar eru menn meðvitaðir um lýð- ræðishallann innan sambandsins. Ákvarðanir eru að mestu leyti teknar af framkvæmdastjórninni, þingið hefur verið í ráðgjafa- hlutverki og áhrif almennings á ákvarðanir eru ekki sérstaklega mikil.“ Er ekki eðlilegt að þjóðin kjósi um það hvort sækja eigi um aðild? „Mér finnst það vel koma til greina. Þetta mál verður að útkljá með lýðræðislegri niðurstöðu.“ Gengið á höfuðstólinn Þið í Vinstri-grænum hafið verið sökuð um að vera afturhaldssöm og einangrunarsinnuð. Hvað seg- irðu um þá gagnrýni? „Við vorum mjög hörð í stjórn- arandstöðu og þá fengum við þennan „á móti“-stimpil – á sama tíma vorum við auðvitað með öðru. Við höfum alltaf verið fylgjandi því að byggja fjölbreyttar und- irstöður undir efnahagslífið. Það hefur ríkt taumleysi í íslensku við- skiptalífi og við höfum verið reglu- sinnar hvað það varðar. Þetta hef- ur verið kallað afturhald sem við erum ekki. Það er ekki sanngjarnt að ræða um okkur sem afl sem boði afturhvarf til fortíðar. Stefna okkar er nátengd sígildri vinstri- stefnu og snýst um framtíðarsýn. Hún snýst um að ganga ekki á höfuðstólinn, hvort sem er í efna- hagslífinu, umhverfinu eða sam- félaginu. Vegferð íslenskra stjórn- valda var allt of lengi sú að meta allt út frá efnahagsþættinum og ganga á höfuðstólinn. Það varð þjóðinni að falli.“ Langar þig til að verða formað- ur Vinstri-grænna? „Það er mér ekkert sérstaklega ofarlega í huga einmitt þessa stundina. Formaður er alltaf á vaktinni og þótt ég hafi gríð- arlegan áhuga á pólitík og mér þyki nýja starfið afar spennandi þá verð ég að horfast í augu við það að ég á lítil börn og ég hef skyldur gagnvart þeim sem mér finnst mikilvægt að sinna. Maður á ekki að taka meira að sér en maður getur sinnt.“ Finnst þér að Steingrímur J. Sigfússon eigi að sitja áfram sem formaður nú þegar mikil krafa er um endurnýjun í stjórnmálaflokk- um? „Steingrímur hefur staðið sig geysilega vel. Nú eru Vinstri- græn komin á glænýjan stað, í ríkisstjórn, og það er mikill áfangi. Við erum í sókn sem flokk- ur og því held ég að Steingrímur geti vel haldið áfram enn um sinn. En auðvitað metur hann það best sjálfur.“ Skipti ekki um karakter Þú ert ansi ungleg, lítur út eins og menntaskólastelpa og ert allt í einu orðin ráðherra. Finnst þér þú þurfa að setja þig í sérstakar ráð- herrastellingar? „Nei, ég hef ekki gert það. Ég skipti ekkert um karakter þótt ég verði ráðherra. En á fyrstu dög- unum þegar fólk í ráðuneytinu var að spyrja hvort ráðherrann vildi þetta eða hitt þá horfði ég í kring- um mig til að koma auga á þennan ráðherra. Ég er orðin svo vön því að fólki finnist ég vera miklu yngri en ég er, næstum því eins konar barn. Þegar ég var kennari var algengt að fólk héldi að ég væri nemandi og þegar ég hélt erindi var ég stundum beðin að ná í kaffi fyrir fyrirlesarann. Ég hef alltaf tekið þessu ósköp rólega og ekkert ver- ið að æsa mig.“ Hvernig er að hafa allt í einu fullt af fólki sem gerir hlutina fyr- ir mann, bílstjóra sem keyrir mann hvert sem er og fólk sem nær í kaffið fyrir mann? „Það er óskaplega skrýtið. Ég velti því fyrir mér hvort ég þyrfti nokkuð á bílstjóra að halda. Svo sá ég dagskrá dagsins og ég átti að vera í Mosfellsbæ klukkan tólf og í Hafnarfirði klukkan eitt. Þá áttaði ég mig á því að það gæti verið ágætt að hafa bílstjóra en samt fannst mér það skrýtið. Að ég tali nú ekki um það þegar að- stoðarmaður minn opnaði fyrir mig bíldyrnar um daginn. Þá datt af mér andlitið. Ég hef alltaf séð um mig sjálf og lifað hversdagslegu lífi og mér finnst mikilvægt að ég haldi því áfram. Maður má ekki venjast hinu góða lífi of vel.“ Þú ert íslenskufræðingur að mennt og mikil bókakona. Hef- urðu nokkurn tíma til að lesa núna þegar þú ert komin í annasamt starf? „Ég les alltaf á kvöldin áður en ég fer að sofa. Ég hef alltaf lesið mjög mikið og reyni að halda því áfram, sleppi þá fremur sjónvarp- inu. Áður en ég varð ráðherra var ég búin að taka að mér að kenna leshring í Endurmenntun Háskóla Íslands og þar voru jólabækur á leslista. Svo kom upp sú staða að ég var allt í einu orðin ráðherra. Ég var beðin um að halda áfram með námskeiðið og ákvað að gera það og þá hef ég afsökun fyrir því að lesa á kvöldin.“ Þú hlýtur að vilja halda áfram í starfi menntamálaráðherra eftir kosningar? „Áhugi minn í pólitík snýr ekki síst að mennta- og menningar- málum. Auðvitað vil ég fá tæki- færi til að sinna þessum mála- flokkum, það væri hræsni að segja annað.“ Þannig að þú sérð fyrir þér að pólitík verði þitt ævistarf? „Það er ég ekki viss um. Mér finnst ákaflega gaman að kenna og kannski á ég eftir að snúa mér aftur að því. Þegar maður byrjar ungur í pólitík er erfitt að ákveða að stjórnmálin verði ævistarfið. Það var aldrei draumur minn að fara í pólitík. Þegar ég var krakki vissi ég ekkert hallærislegra en stjórnmálamenn. Nú er ég orðin ein af þeim.“ í pólitík Morgunblaðið/Kristinn MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.