Morgunblaðið - 14.02.2009, Page 42

Morgunblaðið - 14.02.2009, Page 42
42 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 METROPOLITAN-ÓPERAN í New York hefur gert dagskrá næsta starfsárs opinbera. Þar kemur fram að Kristinn Sigmundsson syngur í uppfærslu óperuhússins á Rósaridd- aranum eftir Richard Strauss, þar sem hann verður í hlutverki Ochs baróns. Með Kristni á sviðinu verða engir aukvisar í söngnum. Marskálks- frúna syngur Renée Fleming og Oc- tavian verður í höndum Súsönnu Graham. Meðal annarra söngstjarna í uppfærslunni verða Christina Schäfer, Ramón Vargas og Thomas Allen sem hélt ógleymanlega tón- leika í Gamla bíói fyrir allnokkrum árum. Stjórnandi verður kóngurinn í Metropolitan, James Levine. Þess má svo geta að Rósariddarinn verð- ur sendur út í bíóhús um allan heim 9. janúar 2010 og vonandi að enn verði beinar sendingar í bíó á Ís- landi. begga@mbl.is Kristinn í Metro- politan Syngur í Rósa- riddaranum Rósariddari Kristinn Sigmundsson syngur hlutverk Ochs baróns. BANDARÍSKA tónskáldið og hljómsveit- arstjórinn Lukas Foss er látinn, 86 ára að aldri. Foss kom hingað til lands árið 1995 og stjórnaði Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og Sinfóníuhljómsveit Íslands á tón- leikum í Hallgrímskirkju. Lukas Foss fæddist í Berlín, gyðingur, og flúði vestur um haf árið 1937 með fjölskyldu sinni. Hann er metinn meðal mestu frumkvöðla í amerísku tónlistarlífi á 20. öld. Um árabil kenndi hann tónsmíðar við Háskól- ann í Boston, og meðal nemenda hans þar voru íslensku tónskáldin Erik Mogensen og Mist Þorkels- dóttir. Lukas Foss látinn Lukas Foss Í DAG kl. 14 opnar Hulda Vil- hjálmsdóttir málverkasýningu í Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu 30. Hulda stundaði nám í málaradeild Listahá- skóla Íslands 1994-2000 og hef- ur haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis. Um myndlist sína segir hún: „Galdurinn hjá mér er sá að ég er stundum ekki manneskja. Ég er einhvers staðar annars staðar að skylmast við málverkið. Ein með æðri mætti. Málunin brýst áfram í einhverri blindni sem ég get varla höndlað.“ Sýningin í Reykjavík Art Gallery er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-17. Myndlist Skylmingar við málverkið Verk eftir Huldu. SÆUNN Þorsteinsdóttir opnar sýningu sína Veggs- kraut í DaLí Gallery á Ak- ureyri í dag kl. 14. Sæunn vinnur með hringformið sem hún segir sér hug- leikið en gamalt íslenskt munstur hefur oft veitt henni innblástur auk þess sem hún reynir að fanga munstur kviksjár. Litagleði og síbreytileg munst- ur kviksjárinnar eru kveikjan að þessari sýningu Sæunnar þar sem hún leikur sér að því að fanga kviksjá hugar síns. Myndirnar eru unnar á við með blandaðri tækni, tússi, vatnslitum, akrýllitum og lakki. Sýning Sæunnar stendur til 1. mars og eru allir velkomnir. Myndlist Kviksjár huga Sæunnar í DaLí Verk eftir Sæunni. ÁRLEGIR barnatónleikar Lúðrasveitar verkalýðsins verða haldnir í Óperunni í dag kl. 15. Á efnisskránni er margt spennandi og nægir þar að minnast á sjóræningja, skjóðu og stelpu með fléttur. Kynnar tónleikanna eru þeir Villi Nagl- bítur og Sveppi. Sérstakir gestir eru meðlimir Skóla- hljómsveitar Grafarvogs sem leikur undir stjórn Einars Jónssonar. Stjórnandi Lúðrasveitar verkalýðsins er Snorri Heimisson. Barnatónleikarnir eru hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík og að venju er ókeypis inn á þá. Tónlist Barnatónleikar lúðrasveitar Snorri Heimisson Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „ÞARNA er verið að velta upp mjög spennandi hugmyndum um sam- starf, sem felur í sér fullt sjálfstæði hverrar stofnunar en samstarf um húsnæði,“ segir Nína Magnúsdóttir, formaður stjórnar Nýlistasafnsins, þegar hún er spurð um aðkomu safnsins að þeim hugmyndum sem greint hefur verið frá, um einskonar listamiðstöð í húsunum við Sætún 8. Stofnun Francescu von Habsburg, Thyssen-Bornemisza Art Contem- porary, og dánarbú Dieters Roth koma einnig að málinu. „Ann- arsvegar eru þessar þrjár myndlist- areiningar, sem þurfa rými undir verk og sýningar, og síðan hús þar sem í sambýli eru nýsköpun, þekk- ingariðnaður og listamenn,“ segir Nína. „Við í Nýlistasafninu erum full bjartsýni og til í að skoða alla mögu- leika sem koma myndlistinni hér vel, og gera framtíð hennar bjartari.“ Ekkert í hendi Nína ítrekar að verkefnið sé enn á hugmyndastigi. „Við höfum verið að velta á möguleikum á milli okkar og erum að forma hvernig við myndum vilja sjá þetta þróast. Við í Nýlistasafninu, og aðrir sem koma að þessu, sjáum möguleika á að þarna opnist fyrir umferð mynd- listar sem hefur varla verið hérna áður. Tenging okkar við Björn Roth og dánarbú Dieters væri til að mynda mjög lífræn, þar sem Dieter gaf Nýlistasafninu mikið af verkum og þau mynda stærsta hlutann af okkar safneign. Það væri stórkost- legt að sjá verk Dieters Roth í fastri sýningu á Íslandi. Stofnun Francescu von Habsburg myndi síðan sýna hér verk eftir kunna samtímalistamenn, og Ný- listasafnið myndi halda áfram að vera það sem það hefur alltaf verið.“ Þegar Nína er spurð hvort rætt hafi verið um að Nýlistasafnið hefði ákveðið rými fyrir sýningar og einn- ig fyrir verk úr safneign sinni, segir hún að safneign Nýlistasafnsins kynni að fara þarna í samræðu við hin söfnin. „Vitaskuld færi það eftir rýmum – það er ekkert í hendi, þetta eru hugmyndir um eitthvað sem gæti gerst, og það er fullur vilji hjá öllum aðilum til að sjá það gerast. Þarna væri líka möguleiki fyrir Nýlistasafnið að halda áfram að vinna í og sýna safneignina, jafn- framt því að vera með sýningar þar sem það vill vera hverju sinni.“ Síðasta árið hefur Nýlistasafnið verið lagt undir viðamikið verkefni, þar sem m.a. hefur verið farið yfir safneignina og hún skráð. Hefur skýrst hvað verkin eru mörg? „Við erum búin að komast að því að þau eru að minnsta kosti 1200, þótt þau gætu verið fleiri. Safn- eignin hefur stækkað stórkostlega í þessari vinnu, því talið var að verkin væru tæplega 800,“ segir Nína. Skoða alla möguleika  Formaður stjórnar Nýlistasafnsins segir hugmyndir um nýja listamiðstöð spennandi  Byggja á fullu sjálfstæði stofnananna en samstarf um húsnæði Morgunblaðið/RAX Listamiðstöð? Húsin á lóðinni Sætúni 8 eru hátt í 8.000 fermetrar. Margir hafa rætt við eigendurna, Landsfestar, um notkun á þeim, en fulltrúi þeirra segir viðræðurnar um hugmyndir Francescu von Habsburg komnar lengst. Á UPPBOÐUM hjá uppboðshúsinu Philips & Pury á fimmtudagskvöld og aftur í gærdag voru meðal annars boðin upp á þriðja tug samtímaverka úr eigu stofnunar Francescu von Habsburg, Thyssen-Bornemisza Art Contemporary. Andvirði verkanna hyggst von Habsburg nota til að styðja við íslenska listsköpun og menningu, m.a. í nýrri liststofnun sem hún hefur hug á að koma á fót í samstarfi við dánarbú Dieters Roth, með þátttöku Nýlistasafnsins. Einnig hefur hún pantað verk eftir sjö ís- lenska listamenn, sem þeir vinna á næstu sex mánuðum, undir heitinu „The Situation“. Endanleg niðurstaða úr uppboð- unum lá ekki fyrir seint í gær, en ljóst er að gott verð fékkst fyrir verkin. Til að mynda seldist verk eftir bandaríska listamanninn Robert Longo fyrir 102.000 pund, um 16,5 milljónir króna, sem er talsvert yfir matsvirði. Verk eftir Jenny Holzer, metið á 25-35.000 pund, seldist á 96.000 pund, sem telst afar gott verð, og verk eftir Ugo Rondinone seldist á 38.500 pund, sem var einnig nokkuð yfir matsverði. Uppboð gekk vel Aldan Stór teikning Roberts Longos var seld fyrir102.000 pund. Myndir von Habsburg yfir matsverði EITT af elstu óperuhúsum í Banda- ríkjunum, Connecticut-óperan hefur látið undan oki kreppunnar og verð- ur lokað eftir 67 ára samfelldan rekstur. Öllum starfsmönnum óper- unnar, sem hefur aðsetur í Hartford, hefur verið sagt upp störfum og hætt hefur verið við tvær upp- færslur sem áttu að vera á dagskrá í vor. Þá verður ekki hægt að endur- greiða þeim 2.000 manns sem búnir voru að kaupa miða á sýningarnar. Gjaldþrota óperuhús En svo verður svona ný tegund af við- tölum, sem eiga kannski eftir að koma svolítið á óvart.44 » Jónas Þorvaldsson er fram- kvæmdastjóri Landsfesta, félags sem er í eigu Nýja Kaupþings og fer með fasteignir í eigu bankans. Þar á meðal eru húseignirnar á lóðinni Sætúni 8. „Við höfum verið í viðræðum við þessa aðila, ásamt fleirum, á und- anförnum vikum,“ segir Jónas. „Við höfum vissulega áhuga á að koma þessum tæplega 8.000 fer- metrum í nýtingu.“ Jónas segir skrifstofuhúsnæðið, þar sem verslun Heimilistækja var, vera rúma 4.000 fermetra, vöru- geymsla er um 1.500 og kaffi- brennsluhúsið er hátt í 2.000. „Það hefur verið mikil ásókn í þessar eignir. Við höfum því talað við ýmsa, en hvað mest þá sem tengjast hugmyndum Francescu von Habsburg. Þetta er á við- ræðustigi og hefur verið hnikað áfram í nokkrar vikur. Við höfum áhuga á að þetta geti gengið upp, en það er á þeirra höndum að leita eftir stuðningi sem verkefnið þarf á að halda, til að þetta sé vænlegt fyrir húseigandann.“ Hlutverk Landsfesta er að skapa verðmæti úr eignum félagsins og Jónas segir það ekki vera á þeirra hendi að veita brautargengi hug- myndum sem byggjast á samstarfi liststofnana við hið opinbera. „Við höfum sett á þetta eðlileg- an leiguverðsmiða. Húsnæðið hef- ur verið tómt lengi, er í nokkuð döpru ástandi og verðið tekur mið af því. Samt er þetta talsverð upp- hæð, enda eignin stór.“ Fastlega má búast við því að kostnaður á borð við fast- eignagjöld, tryggingar, rafmagn og hita af svo stórum fasteignum sé vel á þriðja tug milljóna á ári. „Höfum áhuga á að þetta geti gengið upp“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.