Morgunblaðið - 14.02.2009, Side 44
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009
Fólk
FYRSTA plata BRAK, nýstofnaðs undirmerkis spútn-
ikútgáfunnar Kimi Records, kom út í fyrradag. Sam-
kvæmt Baldvini Einarssyni, framkvæmdastjóra Kima,
er útgáfunni ætlað að moka út sem mestu af tónlist
með eins litlum tilkostnaði og hægt er. T.a.m. verða
umslög útgáfunnar stöðluð. Plöturnar verða gefnar út í
takmörkuðu upplagi, númeraðar og framleiddar á Íslandi
og auk þess ódýrar í innkaupum. Allt er galopið hvað stíla
og stefnur varðar, og líka um úrvinnslu, og geta plöturnar
verið frá tveimur mínútum upp í tvö hundruð. Plötur munu
koma út reglubundið út árið en þeim verður svo safnað sam-
an í sérstaka öskju sem kemur út í nóvember. Fyrsta platan
er með listamanninum Carpet Show og kallast Music From
Soul. Á bakvið verkefnið stendur hinn sautján ára gamli
Brynjar Helgason. Brynjar hefur unnið tónlist undir
þessum formerkjum í nokkur ár og hefur hún tekið á
sig ýmsar myndir, allt frá drungalegu rokki og róli yfir
í viðkvæmnislegar kassagítarlegnar sellóstemmur.
Í þetta sinni er tónlistin hins vegar lágstemmd, ný-
bylgjuskotin þjóðlagatónlist í anda Daniels Johnstons
og The Microphones. Brynjar tók plötuna upp sjálfur
og sá einnig um hljóðblöndun. Platan verður til sölu í
völdum plötubúðum en einnig er hægt að nálgast hana á
grapewire.net. Aðrir listamenn í startholum BRAK eru
Létt á bárunni og Skelkur í bringu.| www.kimirecords.-
net
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Nýjasta plata U2, No Line On
The Horizon, kemur út í byrjun
mars ef guð lofar en platan hefur
verið í smíðum í rúm fjögur ár, sem
mun vera met í sögu sveitarinnar.
Bandaríski upptökustjórinn Rick
Rubin – sem blés eftirminnilega í
glæður Johnnys Cash og Neils Dia-
monds – var fenginn til að stýra
upptökum á plötunni en svo virðist
sem sú samvinna hafi ekki gengið
upp því U2 leitaði aftur í smiðjur
gamalla vina, þeirra Brians Enos,
Daniels Lanois og Steves Lillywhi-
tes.
Blaðamaður írska dagblaðsins
The Independent fékk forskot á
sæluna á dögunum og birti dóm
sinn í blaðinu í gær. Segir hann
sveitina hafa endurnýjað sig og það
sé ekki vafi í hans huga að platan
eigi eftir að slá í gegn.
Sérstaka athygli vekur að gagn-
rýnandinn, John Meagher, segir að
upphaf lagsins „White As Snow“
minni á tónlist Sigur Rósar.
U2 undir áhrifum
frá Sigur Rós?
Nú þeg-
ar líða fer
að próf-
kjörum
stjórn-
málaflokk-
anna fara
vænt-
anlegir
frambjóð-
endur að
verða meira áberandi í fjölmiðlum
en áður. Segja má að ákveðið fjöl-
miðlastríð sé að hefjast, þar sem
frambjóðendurnir keppast um
hvern dálksentimetra í dag-
blöðum, og hverja sekúndu í út-
varpi og sjónvarpi. Þannig er lík-
legt að slíkir frambjóðendur verði
áberandi í hinum ýmsu „yf-
irheyrslum“ í dagblöðunum á
næstunni, verði duglegir að bjóða
sig fram sem álitsgjafa o.s.frv. Þá
beita sumir frambjóðendur öðrum
ráðum til þess að vekja á sér at-
hygli, til dæmis með því að stofna
bloggsíðu á áberandi stað eins og
Bryndís Gunnlaugsdóttir sem
byrjaði að blogga á Eyjunni í gær,
en hún sækist eftir 2. sæti á lista
Framsóknarflokksins í Suður-
kjördæmi. Bryndís hefur verið
fremur lítt áberandi í fjölmiðlum,
en spurning hvort blogg á Eyjunni
breyti því.
Fjölmiðlastríð í
aðdraganda prófkjara
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA á að vera fjölbreytt, bæði
alvöru umræða en líka skemmtun,“
segir Sölvi Tryggvason um nýjan
sjónvarpsþátt sinn, Spjallið með
Sölva, sem hefur göngu sína á Skjá
einum á laugardaginn eftir viku.
„Hugmyndin er sú að spyrja
spurninganna sem fólkið heima í
stofu myndi spyrja. Þetta er bara
spurning um að hafa djörfung til að
spyrja að öllu, algjörlega umbúða-
laust. Mig langar að vera heið-
arlegur við viðmælendur, og ég gef
þeim tækifæri til að svara. Þetta er
sem sagt ekkert mjög ágengt, en ég
mun spyrja óþægilegra spurninga,
og vonandi spurninga sem menn
hafa ekki mikið spurt áður,“ segir
Sölvi sem ætlar í sumum tilfellum að
hafa einn viðmælanda í viðtali, en
stundum fleiri í einu.
Á meðal viðmælenda Sölva á
næstu vikum verða líklega Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir, Össur
Skarphéðinsson, Guðni Ágústsson,
Jóhannes eftirherma, Logi Geirs-
son, Katrín Jakobsdóttir, Lára Óm-
arsdóttir og Ómar Ragnarsson.
„En svo verður svona ný tegund
af viðtölum, sem eiga kannski eftir
að koma svolítið á óvart,“ segir Sölvi
sem ætlar að bregða á leik með Þor-
leifi Arnarssyni leikara sem mun
bregða sér í hlutverk hinna ýmsu
manna sem Sölvi mun svo taka „há-
alvarleg“ viðtöl við.
Hver þáttur er um klukkutími og
verður á laugardagskvöldum kl. 20.
Hann mun því skarast við Spaug-
stofuna. „En hún er nú búin fimm
mínútur yfir átta, þannig að þetta
sleppur alveg,“ segir Sölvi og hlær.
Spyr spurninganna sem
fólkið heima í stofu vill spyrja
Morgunblaðið/Golli
Spyrill Sölvi mætir með nýþvegnar og straujaðar skyrtur í vinnuna.
Spjallið með Sölva hefur göngu sína á Skjá einum eftir viku
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ ætlum að gera alveg nýtt
Faust, verkið verður bara byggt á
þjóðsögunni um manninn sem selur
djöflinum sálu sína. Þetta stefnir í að
verða nokkurs konar rokk-ópera, þó
svo að þetta eigi eftir að fara í gegn-
um margar síur fram að frumsýn-
ingu. Enda vinnst þetta ekki af fullri
alvöru fyrr en ég mæti þessu með
leikurunum,“ segir Gísli Örn Garð-
arsson, leikstjóri og leikari sem vinn-
ur nú hörðum höndum að leikgerð-
inni. „Þetta er nú bara klassískt
viðfangsefni og Goethe eða Marlowe
eiga það ekkert frekar en einhver
annar,“ segir Gísli, en stefnt er að
frumsýningu verksins hér á landi í
haust. Leikgerðina vinnur Gísli
ásamt hinum heimsþekkta ástralska
tónlistarmanni Nick Cave, sem hefur
áður unnið með Gísla og Vesturporti,
að tónlistinni fyrir Hamskiptin og
Woyzeck. Cave semur einnig lög
ásamt Warren Ellis og texta fyrir
Faust og mun hann fara ásamt hljóm-
sveit sinni The Bad Seeds í hljóðver í
sumar til að taka upp tónlistina úr
verkinu, auk tónlistarinnar úr Ham-
skiptunum og Woyzeck. Í kjölfarið
verður tónlistin svo öll gefin út í ein-
um pakka.
„Ég veit reyndar ekki alveg hve-
nær þeir ætla að gefa pakkann út,
vonandi í kringum frumsýningu hjá
okkur,“ segir Gísli, en Cave mun
syngja öll lögin sjálfur, og líkur eru á
því að hann muni fá góða gesti til að
syngja með sér í einhverjum þeirra.
Nóg að gera
Aðspurður segir Gísli útgáfuna
vissulega geta vakið enn frekari at-
hygli á Vesturporti um allan heim,
enda Nick Cave risi í bransanum. „Já,
það má alveg búast við því, annars er
manni nú fyrst og fremst heiður að
þessu samstarfi. Þetta er ekkert lítið
gefandi, svo maður taki vægt til
orða,“ segir hann. Meðframleiðendur
Vesturports eru Deutsches Teater
Berlin, Hamburg Schauspieler
Hause og The Young Vic Theatre í
London, en þar naut Rómeó og
Júlía í uppfærslu Vesturports
einmitt töluverðra vinsælda
fyrir nokkrum misserum. Nýver-
ið veitti leiklistarráð Vesturporti átta
milljóna króna styrk vegna verksins,
og segir Gísli slíkan styrk skipta hóp-
inn miklu máli. Það sé mikilvægt
gagnvart erlendu leikhúsunum að
geta sýnt fram á stuðning heimanfrá.
Gísli mun sjálfur leikstýra verkinu,
en ekkert hefur enn verið ákveðið
með aðalhlutverkin. Í kjölfar frum-
sýningar verksins hér á landi er
svo stefnt að því að sýna það
a.m.k í Berlín, Hamburg og
London.
Það er annars að frétta af
Gísla að hann er í Bretlandi
um þessar mundir þar sem
hann hefur verið á miklu ferðalagi
með leikverkið Don John sem hann
leikur titilhlutverkið í. Þegar blaða-
maður náði tali af Gísla var hann
staddur í hafnarborginni Plymouth.
„Við erum búin að vera á löngu ferða-
lagi með þetta og setja tugi sýninga
upp. Maður er orðinn hálf-heilaþveg-
inn af þessu en þetta hefur allt gengið
mjög vel og viðtökur verið góðar,“
segir Gísli, en eiginkona hans, Nína
Dögg Filippusdóttir, leikur einnig í
verkinu. Í maí verður verkið sett upp
í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum,
og munu þau fara með verkinu þang-
að, en áður en að því kemur fer Gísli
þó til Hong Kong þar sem Ham-
skiptin verða sýnd í fjórgang,
og svo til Ástralíu. „Og svo
má náttúrlega ekki gleyma
Dubbeldusch, sem er í
Hafnarfjarðarleikhúsinu
um þessar mundir,“ seg-
ir Gísli að lokum.
Vesturport á hátindinum
Eins og fram hefur komið fer
Gísli með eitt af aðalhlutverk-
unum í bandarísku stórmynd-
inni Prince of Persia: The
Sands of Time, en þar leikur
hann á móti stjörnum á borð
við Jake Gyllenhaal og Ben
Kingsley. „Þeir voru að stefna
að því að frumsýna hana í
sumar, en það náðist ekki.
Þannig að þeir stefna að því
að þetta verði aðals-
umarmyndin 2010,“ segir
Gísli sem hefur farið í nokkr-
ar prufur vegna kvikmynda í
kjölfarið, þótt ekki sé búið að
ráða hann í neina mynd enn
sem komið er. „En það var
gaman að prófa þetta, maður
komst allavega einu sinni til
Hollywood,“ segir hann.
Sumarmyndin 2010
Nick Cave & The Bad Seeds gefa út tónlistina úr þremur sýningum Vestur-
ports Nick Cave og Gísli Örn Garðarsson vinna að leikgerð byggðri á Faust
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Vesturportsvinur Tónlistarmaðurinn Nick Cave vinnur að Faust með Vest-
urporti og gefur út tónlistina sem hann hefur unnið fyrir leikhópinn.
Upptekinn
Gísli Örn
hefur í nógu
að snúast.
Ferskt Brynjar Helgason er ekki nema sautján
vetra en á nú að baki eitt stykki breiðskífu.
BRAK ríður á vaðið með 17 ára tónlistarmanni