Morgunblaðið - 11.03.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ENGAN sakaði þegar eldur kom upp
á efstu hæð Síðumúla 34 í gærdag.
Fimmta hæð húsnæðisins þurrkaðist
svo gott sem út í brunanum en þar
var rúmgóð íbúð. Að auki urðu tölu-
verðar skemmdir af völdum vatns og
reyks á þriðju og fjórðu hæð. Elds-
voðann má rekja til viðgerða en
verkamenn voru að bræða dúk á þak-
ið skömmu áður en eldurinn blossaði
upp.
Nokkrum mínútum eftir að blaða-
maður mætti á vettvang sprakk gas-
kútur á þakinu og lenti á jörðinni,
skammt frá slökkviliðsmönnum við
störf. Fjöldi fólks hafði safnast sam-
an til að fylgjast með og því var veru-
leg hætta á ferðum enda fleiri gas-
kútar á þakinu. Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins,
hóf því upp raust sína og reyndi að
rýma svæðið næst brennandi húsinu.
Með hjálp undirmanna sinna tókst
honum á nokkrum mínútum að færa
öryggislínu lögreglunnar niður að
Grensásvegi, frá Síðumúla.
Missti búslóðina í eldinum
Eldtungur stóðu á tímabili marga
metra í loft upp enda eldsmatur tölu-
verður og gaskútarnir sprungu einn
af öðrum. Þrátt fyrir það gekk
slökkvistarf vel og var því að mestu
lokið fyrir klukkan fimm síðdegis.
Starfsfólk á fjórðu hæð hússins,
hjá Íslensku útflutningsmiðstöðinni
(ÍÚM), varð fyrst vart við óvenju-
mikla reykjarlykt upp úr klukkan
þrjú. „Það hafði verið dálítil tjöru-
stybba yfir daginn, þar sem þeir voru
að bræða eða eitthvað slíkt. Og svona
rétt fyrir hálffjögur þótti okkur ekki
eðlilegt hversu mikil lyktin var. Við
fórum upp og sáum svartan reyk
liggja út um íbúðina,“ segir Einar B.
Ingvarsson, starfsmaður ÍÚM og
leigjandi íbúðarinnar á fimmtu hæð.
Einar sá þegar að hann var að
horfa á eftir búslóðinni. Eldurinn var
þá orðinn svo mikill að hann gat ekki
sótt neitt af eigum sínum og fór hann
með samstarfsmönnum út úr bygg-
ingunni. Hann ræddi um tjón sitt
með miklu jafnaðargeði. „Svona get-
ur víst alltaf komið fyrir og maður
verður að taka því eins og hverju
öðru hundsbiti.“
Allmargir starfsmenn fyrirtækja í
húsinu biðu þar til slökkvilið lauk
störfum til að athuga um skemmdir.
Einar hélt hins vegar sína leið. „Ég
sé ekki mikla ástæðu til að bíða enda
nokkuð ljóst hvernig staðan er á
mínu innbúi. Þar er ekkert heillegt
nema kannski lyklar.“
Verkamenn neituðu sök
Húsið er í eigu sameignarfélags og
einn eigenda þess, Óttar Yngvason,
sem jafnframt er framkvæmdastjóri
ÍÚM, horfði á hús sitt brenna fyrir
utan. Óttar sagði að á milli 30 og 40
manns hefðu verið í húsinu en öllum
gefist góður tími til að yfirgefa það.
Og að aldrei hefði verið hætta á ferð-
um.
Óttar var nokkuð gagnrýninn á
störf slökkviliðsins. Hann sagði
slökkvilið hafa verið nokkuð snöggt á
vettvang en þegar kom að því að
koma vatnsslöngu upp á þak hefði
það tekið sinn tíma. „Það tók þá að
minnsta kosti fimmtán til tuttugu
mínútur að koma slöngu þarna upp.
Og alla vega tíu mínútur að koma á
vettvang,“ sagði Óttar sem taldi að
hægt hefði verið að koma slöngunni
upp mun fyrr.
Þorvaldur Geirsson, varðstjóri hjá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins,
blés á gagnrýnina og sagði menn sína
hafa verið mjög snögga upp, og að
verklagið hefði verið til fyrirmyndar.
Stefán Eiríksson tók undir orð Þor-
valdar og sagðist hafa fylgst vel með
störfum slökkviliðs.
Óttar sagði einnig ljóst að verka-
mennirnir hefðu skroppið í kaffi og á
meðan hefði eldurinn blossað upp.
Hann vildi þó ekki geta sér til um
með hvaða hætti það hefði orðið.
Hann benti blaðamanni á verka-
mennina, en þeir stóðu álengdar.
Mennirnir töluðu ensku fremur illa
og eftir að blaðamaður kynnti sig
sóru þeir af sér öll tengsl við eldsvoð-
ann og viðgerðirnar á þakinu.
Morgunblaðið/Júlíus
Í ljósum logum Á fimmtu hæð hússins gjöreyðilagðist íbúð og reyk- og vatnsskemmdir urðu á þriðju og fjórðu hæð.
Hætta af fljúgandi gaskútum
Starfsmönnum í
húsinu gafst góð-
ur tími til að flýja
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
KARLMAÐUR liggur á gjörgæsludeild Landspítala
eftir að hann ók bíl sínum á brúarstólpa á mótum Breið-
holtsbrautar og Reykjanesbrautar um klukkan hálfsjö í
gærkvöldi. Maðurinn hafði ekið háskalega og veitti lög-
regla honum eftirför þegar slysið varð. Að sögn læknis
er maðurinn ekki í lífshættu og ástand hans stöðugt.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hóf eftirför vegna
tilkynningar frá lögreglunni á Suðurnesjum um að mað-
urinn hefði ekið bíl sínum á annan kyrrstæðan og væri
að því virtist í miklu tilfinningalegu uppnámi. Þótti því
ástæða til að óttast um öryggi annarra í umferðinni.
Eftirförin hófst sunnan við Hafnarfjörð og gaf lög-
regla manninum merki um að stöðva. Hann sinnti ekki
stöðvunarmerkjum og þegar mest lét voru sex lög-
reglubílar á eftir honum.
Að sögn lögreglu var ekki um ofsaakstur að ræða,
þ.e. hraðakstur, en maðurinn ók hins vegar þrisvar
sinnum utan í lögreglubíla við eftirförina. Maðurinn,
sem ók stórum, breyttum jeppa, missti loks stjórn á bíl
sínum og lenti á brúarstólpa Breiðholtsbrúar. Árekst-
urinn var mjög harður og skemmdist bíllinn mikið.
Nota þurfti klippur til að ná manninum úr flakinu og
var hann í kjölfarið fluttur á slysadeild. Vakt var yfir
honum í nótt.
Loka þurfti Reykjanesbraut til norðurs um tíma og
var umferð beint um hjáleið.
Ók bíl sínum á brúarstólpa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flak Maðurinn missti stjórn á stórum, breyttum jeppa
sínum og hafnaði á brúarstólpa Breiðholtsbrúar.
ALÞINGI samþykkti í gær ný lög
sem heimila lífeyrissjóðum að
greiða út séreignarsparnað ef fólk
óskar eftir því. Hægt er að fá eina
milljón króna greidda út, eigi mað-
ur hana, en upphæðin skiptist í níu
mánaðarlegar jafngreiðslur. Ef
upphæðin er minni en milljón stytt-
ist útgreiðslutíminn í réttu hlutfalli
við það. Heimildin er tímabundin
og gildir til 1. október 2010.
Ekki er gerð krafa um að þeir
sem fá séreignina greidda út eigi í
fjárhagsvanda. Allar úttektir sam-
kvæmt lögunum eru skattskyldar
eins og um atvinnutekjur væri að
ræða. Eftir skatt er hámarksúttekt
því 628 þúsund krónur eða tæplega
70 þúsund á mánuði. Greiðslur
skerða hins vegar ekki opinberar
bætur. Skuldheimtumenn geta ekki
krafið fólk um að taka út séreign-
arsparnað. onundur@mbl.is
Ný lög leyfa
fólki að taka
út séreignina
HÆSTIRÉTTUR
felldi í gær úr
gildi farbanns-
úrskurð yfir
fyrrverandi
framkvæmda-
stjóra Verð-
bréfaþjónustu
sparisjóðanna
(VSP), Viggó
Þóri Þórissyni,
en hann er grun-
aður um stórfelld efnahagsbrot í
starfi. Engu að síður skal hann
leggja fram 10 milljóna króna
tryggingu fyrir því að hann mæti
hjá lögreglu til skýrslugjafar.
Þangað til tryggingin er sett er
honum bönnuð brottför frá landinu.
Framkvæmdastjórinn fyrrver-
andi hefur sætt farbanni í 23 mán-
uði og hefur lögmaður hans, Sveinn
Andri Sveinsson, gagnrýnt úr-
skurði héraðsdóms og Hæstaréttar
harðlega. „Við erum mjög ánægðir
með þetta. Droparnir hafa loksins
náð að hola steininn.“
Hæstiréttur hefur ítrekað gert
athugasemdir um að rannsókn
málsins hafi ekki verið nægilega
markviss og tafir ekki réttlættar að
fullu. Felldi rétturinn úrskurðinn
úr gildi að virtum þeim gögnum og
upplýsingum „um ómarkvissar að-
gerðir við rannsókn málsins“ sem
lagðar voru fyrir. andri@mbl.is
Farbanni
aflétt eftir
23 mánuði
Sveinn Andri
Sveinsson
„Starfsmaður hjá mér fór klukkan
fjögur og þá var reykur úti á gang-
inum. Ég sagði honum að halda fyr-
ir vitin og fara niður. Ég ætlaði að
vera áfram,“ segir Sigfríður Björns-
dóttir, framkvæmdastjóri Íslensku
tónverkamiðstöðvarinnar (ITM),
sem er með aðsetur á þriðju hæð.
Sigríður var svo nánast dregin út
af öðrum starfsmönnum í húsinu
en hún ætlaði að klára öryggis-
afritun gagna áður. „Ég ætlaði bara
að loka dyrunum og halda áfram.
Ég hélt að þetta væri bara smámál.
Svo kom ég út og fékk áfall þegar
ég sá hversu mikill eldur var.“
Hjá ITM eru geymdar nótur átta
þúsund tónverka á pappír. Á und-
anförnum árum hefur verið unnið
að því að afrita nóturnar á rafrænt
form og hafa þegar um fimm þús-
und verk verið afrituð.
Þar sem eldurinn var staðbund-
inn við þakið þótti ekki mikil hætta
á að hann næði niður á þriðju hæð.
Hins vegar var veruleg hætta á að
vatn leitaði niður vegna slökkvi-
starfa og því voru nóturnar í stór-
hættu. „Nóturnar eru margar hverj-
ar í pappírsmöppum og því ryksuga
á raka,“ segir Sigfríður.
Töluvert vatn komst niður á skrif-
stofu ITM en Sigfríður þakkar
slökkviliðinu það sérstaklega að
ekki fór illa, enda breiddu þeir yfir
nóturnar áður en vatni var sprautað
á húsið. Hún vann við þurrkun og
kælingu í gærkvöldi.
Átta þúsund tónverk í stórhættu
STERKA KONU
Í FORYSTU!
www.olofnordal.is
Kjósum Ólöfu Nordal í 2.-3. sæti
í prófkjöri sjálfstæðismanna 13.-14. mars 2009
Verið velkomin á kosningaskrifstofu mína að Laugavegi 178, 4. hæð.
Sími 840-6464 - Opið frá 14-21.
Stórhættulegar gassprengingar
MBL.IS | SJÓNVARP