Morgunblaðið - 11.03.2009, Side 21

Morgunblaðið - 11.03.2009, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009 Í sektarpásu Vonandi höfðu stöðumælaverðirnir tveir ekki sektarkennd þegar þeir settust að snæðingi á Bæjarins bestu í miðborginni í gær. Golli Friðrik Þór Guðmundsson | 10. mars Blaðamenn fá á sig þrefaldan brotsjó Ofan á þá skömm, að hafa „flotið sofandi að feigðarósi“ fyrir hrun efnahagslífsins, sofið við sitt úthlutaða aðhalds- hlutverk, hafa blaðamenn nú fengið þrjár nýjar blautar tuskur í andlitið. Svo alvarleg eru þessi áföll að þau kalla á sérstakar að- gerðir og ályktanir af hálfu Blaðamanna- félags Íslands, Félags fréttamanna og Fjölmiðlasambands Íslands. Af þessum blautu tuskum nefni ég fyrst uppsagnir 80 til 100 blaðamanna undanfarið. Blaðamönnum er sagt upp eins og öðrum í samdrætti, en ólíkt þeim vinnuveitendum sem láta starfsaldur, reynslu og orðstír ráða nokkru þá virðast vinnuveitendur á fjölmiðlasviðinu helst segja upp „dýrum“ blaðamönnum, þ.e. reyndum mönnum með uppsafnaða þekkingu, en halda frekar í ódýra og reynslulitla. Þetta bætist ofan á þann at- gervisflótta sem fyrir var. Næsta blauta tuska er dómurinn í Viku-málinu, þar sem klámbúllukóng- urinn Ásgeir Þór Davíðsson hafði það af, með dyggri hjálp fyrrum blaðamannsins Sveins Andra Sveinssonar, að nauðga og misþyrma tjáningarfrelsinu svo enn bergmálar í sölum réttvísinnar. . . . Meira: lillo.blog.is Einar Áskelsson | 10. mars Færeysk innrás í stað íslenskrar útrásar? – Markaðssetning Sjálfstæðisflokks Aukin samkeppni á trygg- ingamarkaði getur verið af hinu góða ef það lækk- ar iðgjöld. En Færeyska tryggingafélagið kemur ekki inn á þennan markað af góðmennsku einni saman. Um það snúast ekki viðskipti. Sjálfsagt finnst okkur eðlilegt að Fær- eyingar eigi að bera virðingu fyrir „stóra bróður“ í norðri. Svipað og Dönum leið þegar við „réðumst“ þangað. Færeysk innrás í Ísland eins og íslenska útrásin til Danmerkur. Við höfum kannski gott af því. Þá kannski upplifum við vanmátt okkar og lærum af því betri manna- og viðskiptasiði. Í allt annað. Frambjóðendur Sjálf- stæðisflokks eru áberandi vel kynntir fjölmiðlum. Reyndar með langbestu upplýsingar og aðgengi að frambjóð- endum á heimasíðu sinni. Nýta tengsl- anet eins og Facebook vel. Kunna að tengjast fólki sem skiptir miklu máli. Ég er stöðugt að fá boð um að mæta á við- burði hjá frambjóðendum Sjálfstæð- isflokks. Með þessu áframhaldi endar það með því að ég kýs Sjálfstæðisflokk- inn. Ómeðvitað. Eins og þeir vilja. Mættu aðrir læra af. En þetta kostar, hver borgar? Meira: eask.blog.is Á LAUGARDAG- INN birti Morg- unblaðið frétt um töl- ur sem blaðinu hafði borist frá ótil- greindum aðilum úr trúnaðargögnum frá Kaupþingi banka. Við lestur þessarar fréttar er ekki við öðru að búast en fólk fyllist tortryggni og gremju, enda þeirri mynd brugðið upp að eigendur Kaupþings hafi mergsogið fé út úr bankanum. En ef rýnt er í tölurnar í Morg- unblaðinu sýna þær hins vegar svart á hvítu að viðskipti fyr- irtækja sem tengjast okkur bræðrum við Kaupþing eru bæði eðlileg og auðskýranleg. Exista ekki fjármagnað af Kaupþingi Öll eign okkar bræðra í Kaup- þingi hefur verið í gegnum eign- arhlut okkar í skráðu almennings- hlutafélagi, Exista. Mikilvægt er að gera skýran greinarmun á milli fjármögnunar Exista annars vegar og fjármála okkar bræðra hins vegar. Exista var langstærsti eig- andi Kaupþings með um 25% hlut og annað stærsta almennings- hlutafélag landsins mælt í eigin fé, stærra en bæði Glitnir og Lands- bankinn. Félagið var að litlu leyti fjármagnað af Kaupþingi heldur fyrst og fremst á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Samkvæmt tölunum sem birtar voru í Morgunblaðinu námu úti- standandi lán Kaupþings til Exista (skammtímalán og langtímalán) um 94 milljörðum króna hinn 30. júní 2008. Þessi fjárhæð sam- svarar um 16% af heildarskuldum Exista og einungis um 11% af heildareignum félagsins í lok júní. Stærstu lánin voru vegna yfirtöku Exista á skuldbindingum Lýsingar sem voru fyrir í bankanum þegar Exista tók fyrirtækið og fjár- mögnun þess yfir árið 2006. Útlán Kaupþings til viðskiptamanna námu samtals 4.169 milljörðum króna hinn 30. júní 2008 svo lán til Exista voru einungis brot af útlán- um bankans og innan allra eðli- legra viðmiða. Í fyrrgreindum töl- um eru ekki dregin frá veð og eignir á móti þessum lánum, svo sem inneignir hjá bankanum. Þess má geta að innlán Exista og tengdra fyrirtækja hjá Kaupþingi námu um 50 milljörðum króna við fall bankans í október. Því má svo bæta við að frá miðju ári 2008 til falls íslenska bankakerfisins í október endur- greiddi Exista um 20 milljarða króna nettó til Kaupþings. Lækk- uðu því skuldir félagsins við bank- ann sem því nemur eftir dagsetn- ingu talnanna sem birtar voru í Morgunblaðinu. Exista vinnur um þessar mundir að því að semja um endurgreiðslur lána hér á landi og erlendis, m.a. við um 40 alþjóðlega banka, í kjölfar þess að fjórðungs- hlutur Exista í Kaupþingi hvarf svo að segja á einni nóttu í októ- ber síðastliðnum. Komið í veg fyrir krosseignarhald Í grein Morgunblaðsins kemur jafnframt fram að bankinn hafi veitt félagi í persónulegri eigu okkar bræðra, Bakkabræður Holding, lánafyrirgreiðslu sem nemur liðlega 30 milljörðum króna. Krosseignarhald hefur töluvert verið til umræðu hér á landi og erlendis og hefur áhersla verið lögð á að hindra að kross- eignartengsl mynduðust á milli Kaupþings og Exista, m.a. þegar Skipti var tekið af hlutabréfa- markaði á fyrri hluta árs 2008. Ljóst var að Kaupþing, sem átti um 27% í Skiptum, fengi greitt fyrir með hlutabréfum í Exista og hefðu þá myndast gagnkvæm eignartengsl á milli Kaupþings og Exista sem ekki voru til staðar. Til þess að koma í veg fyrir að þessi eignartengsl mynduðust, tókum við bræður það á okkur að taka yfir hlutabréf Kaupþings í Exista og veðsettum á móti eignir okkar. Þannig sýndum við í verki trú okkar á framtíð Exista og leystum jafnframt óæskilega stöðu fyrir Kaupþing. Við fall Kaup- þings misstum við þessar eignir okkar til bankans. Í tölunum sem birtar eru í Morgunblaðinu er blandað saman persónulegum félögum okkar bræðra, almenningshlutafélaginu Exista, dótturfélögum Exista og öðrum tengdum fyrirtækjum. Hnoðað er saman lánveitingum, ónotuðum lánalínum, afleiðusamn- ingum, hlutabréfum og skulda- bréfum, væntanlega til þess að blása tölur upp eins og hægt er. Ekkert er vikið að tryggingum og inneignum á móti þessum skuld- bindingum eins og eðlilegt væri, eða hvort um var að ræða veltu- bókarviðskipti eða lánafyr- irgreiðslur. Það er ekkert laun- ungarmál að við bræður höfum snúið okkar persónulegu við- skiptum fyrst og fremst til Kaup- þings, enda er vart hægt að telja það óeðlilegt. Þau viðskipti hafa öll farið fram í samræmi við regl- ur bankans og þar höfum við mætt sömu kröfum um tryggingar og kjör eins og aðrir við- skiptavinir. Í þessu sambandi má benda á það að í tölunum sem birtar voru í Morgunblaðinu er hvergi að sjá nafn þess fyrirtækis sem við bræður erum jafnan kenndir við, Bakkavör. Ástæða þess er einföld: Bakkavör er nán- ast ekkert fjármagnað af Kaup- þingi og hefur svo verið um árabil. Viðskiptaferill okkar bræðra spannar yfir 20 ár og samstarf fyrirtækja okkar við Kaupþing á sér 12 ára sögu. Það samstarf hef- ur byggst á gagnkvæmum hags- munum þar sem bankinn hefur notið mikilla tekna, ekki síst í formi ráðgjafarþóknana. Undirróður gegn Kaupþingi Um þessar mundir fer fram skipulagður undirróður þar sem gögnum um Kaupþing er mark- visst „lekið“ til fjölmiðla. Augljóst er að lög hafa verið brotin með því að koma villandi upplýsingum úr trúnaðargögnum til fjölmiðla og verður það mál án efa rannsakað sérstaklega. Þessi „smjörklípuað- ferð“ hefur þrifist í skjóli þess að rannsóknarskýrslur um bankana hafa enn ekki verið birtar op- inberlega og skapað kjörinn jarð- veg fyrir tortryggni og söguburð. Fáir myndu fagna meira birt- ingu rannsóknarskýrslu um að- draganda að falli bankanna en við bræður, enda höfum við tapað gíf- urlegum fjármunum á ákvörð- unum í aðdraganda og í kjölfar bankahrunsins. Eignir okkar eru að mestu tapaðar, þótt við berum það ekki saman við vanda þeirra sem standa frammi fyrir atvinnu- missi eða gjaldþroti. Sem stjórn- endur og forsvarsmenn stórra fyr- irtækja tökum við ábyrgð á okkar þætti í þessari atburðarás. Sú ábyrgð verður hins vegar ekki leidd í ljós af þeim öflum sem nú beita óvönduðum meðulum til þess að hylja eigin mistök og freista þess að gera einstaklinga sem tengjast Kaupþingi að sakamönn- um í augum almennings. Það sem við öll þurfum mest á að halda er heiðarlegt uppgjör sem byggist á raunverulegum rannsókn- argögnum. Á þeim vettvangi mun ekki standa á okkur bræðrum að svara til þeirrar ábyrgðar sem að okkur snýr. Eftir Lýð og Ágúst Guðmundssyni » Lánin til Exista sam- svara einungis um 11% af heildareignum félagsins í lok júní Ágúst Guðmundsson Eðlileg viðskipti við Kaupþing Höfundar eru Bakkavararbræður. Lýður Guðmundsson BLOG.IS Einar Sveinbjörnsson | 10. mars Svifrykstoppur í morgunsárið Klassískt „svifryksveður“ á höfuðborgarsvæðinu hugsaði ég með mér þeg- ar ég kom út snemma í morgun um leið og ég andaði að mér svölu loft- inu. Hægur vindur og hitahvarf við jörð eru þeir þættir sem ráða mestu um uppsöfnun svifryks í lofti ásamt vitanlega sjálfum umferðarþung- anum á höfuðborgarsvæðinu. Við eigum væntanlega eftir að sjá mæld gildi við Grensásveginn á milli 50 til 100 míkróg- römm á bilinu um kl. 10 til 11. Í hægum A-andvaranum er verður dálítil tregða, hæstu gildin á mælistöðinni verða yf- irleitt lítið eitt síðar en mesti umferð- arþunginn. Í raun er ótrúlega auðvelt að sjá fyrir uppsöfnun svifryks á höfuðborg- arsvæðinu. ... Uppsöfnunin á sér nær eingöngu stað þegar vindur í 10 metra hæð er mjög hægur ( 2 m/s eða minni) og það kalt að hitahvarf er við jörðu, a.m.k. að morgni. Um leið og vindur yf- irstígur þröskuld 2-3 m/s fer af stað lóð- rétt blöndun loftlaganna og þéttni svif- ryks minnkar strax í kjölfarið. ... Meira: esv.blog.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.