Morgunblaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 13
Ármúla 30 | 108 Reykjavík | Sími 560 1600 | www.borgun.is
Borgun er eina fyrirtækið á landinu sem býður
heildarlausn í færsluhirðingu. Fyrirtæki sem
eru með öll kortaviðskipti hjá Borgun njóta
betri kjara og fá betri yfirsýn yfir tekjur með
einu uppgjöri fyrir öll kortaviðskipti.
Með Borgun tekur þú við öllum kortum.
AUÐVELDAR VIÐSKIPTI
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
„VIÐ höfum lengi stefnt að því að efla þátttöku
ungs fólks í samfélaginu. Samkvæmt Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á
því að láta skoðanir sínar í ljós og að á þau sé
hlustað,“ segir Hólmfríður Anna Baldursdótt-
ir, sem hefur umsjón með fréttaritaraþjálfun
Unicef fyrir ungt fólk á aldrinum 13-16 ára.
Þjálfunin fer fram í samstarfi við Morgun-
blaðið og Ríkisútvarpið og hefst hinn 12. mars
á Ísafirði. Í kjölfarið verða ungmenni þjálfuð í
Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum.
Þjálfunin tekur þrjá daga og verður hafist
handa á fimmtudögum eftir skóla og haldið
áfram fram á laugardag. Unnið verður frétta-
efni fyrir RÚV og Morgunblaðið á meðan á
þjálfuninni stendur og því verður svo útvarpað
eða það birt.
Þjálfað í öllum landshlutum
„Okkur þótti mikilvægt að fara í alla lands-
hluta til þess að gefa öllum jöfn tækifæri á að
láta til sín taka. Það eru örugglega önnur mál
sem hvíla á ungu fólki á landsbyggðinni en
þeim sem búa í Reykjavík og við vonumst til að
fá þátttakendur sem víðast að,“ segir Hólm-
fríður. Hún segir að umsóknum fjölgi stöðugt
en hvetur jafnframt fólk til að sækja um því
enn séu laus pláss. Hægt er að sækja um og
nálgast upplýsingar á vefsíðunni unicef.is.
Hólmfríður segir að með tilkomu efnahags-
kreppunnar hafi nauðsyn þess að raddir ungs
fólks heyrist aukist til muna og að þess vegna
hafi verkefninu verið hrundið í framkvæmd.
Þær samfélagslegu breytingar sem standi fyr-
ir dyrum snerti framtíð ungs fólks og með
verkefninu sé vonast til þess að raddir þeirra
og viðhorf heyrist í auknum mæli.
Verkefninu var ýtt úr vör hinn 1. mars síð-
astliðinn á Heimsdegi barna í fjölmiðlum en
þann dag leggur Unicef um allan heim áherslu
á þátttöku barna og ungmenna í fjölmiðlum.
jmv@mbl.is
Unicef þjálfar unga fréttaritara um allt land
Morgunblaðið og RÚV taka þátt í að efla raddir ungs fólks með þjálfun þeirra í fréttavinnslu
Þjálfunin fer fram víða um land og eru ungmenni á aldrinum 13-16 ára hvött til þátttöku í verkefninu
Reuters
Þjálfun Unicef ýtir undir aukna þátttöku ung-
menna í samfélaginu með fréttaritaraþjálfun.