Morgunblaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009 Sjálfstæðisflokkurinn Kynnið ykkur málin á www.profkjor.is Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins kynna sig og sín stefnumál á nýjum vef flokksins, www.profkjor.is. Hver frambjóðandi hefur sína undirsíðu á vefnum þar sem hann kynnir sig og sín helstu stefnumál auk þess sem hægt er að horfa á stutt myndband með hverjum frambjóðenda. Þar að auki eru á vefnum ýmsar upplýsingar um framkvæmd prófkjörsins. Við hvetjum alla til að fara á vefinn og kynna sér málin. MINNST 33 létu lífið og 46 særðust þegar sjálfsmorðs- árásarmaður ók bíl hlöðnum sprengiefni í hóp fólks sem sótti friðarráðstefnu í Abu Ghraib vestur af Bagdad í gær. Meðal hinna látnu eru ættbálkahöfðingjar sem ætl- uðu að heilsa upp á fólk á nálægum útimarkaði. Ódæðið er þriðja mannskæða árásin í Írak á síðustu dögum en á sunnudag biðu 28 manna bana og tugir særðust í árás á ráðningarstöð fyrir lögregluþjóna í Bag- dad. Þá létu 10 lífið í árás í Babelhéraði á fimmtudag, auk þess sem tveir féllu og sex særðust í árás í nágrenni borgarinnar Kirkuk í gær. Þrátt fyrir að dregið hafi úr árásum í landinu eru ofbeldisverk nánast daglegt brauð í Bagdad. Fórnarlamb árásar á sunnudag Blóðbað í Bagdad HÓPUR vísinda- manna spáði því í gær að sjáv- arborð myndi hækka miklu meira en gert væri ráð fyrir í skýrslu vísinda- nefndar Samein- uðu þjóðanna um loftslagsbreyt- ingar (IPCC) árið 2007. Nefndin áætlaði að sjávarborð heimshafanna myndi hækka um 18- 59 sentímetra. Vísindamenn á ráð- stefnu í Kaupmannahöfn sögðu að í skýrslunni væri ekki gert ráð fyrir hraðri bráðnun íss á heimskaut- unum. Einn þeirra, Stefan Rahm- storf, sagði að samkvæmt nýjum rannsóknum kynni sjávarborðið að hækka um 75 til 190 sentímetra fyr- ir næstu aldamót. Jafnvel þótt dregið yrði stórlega úr losun gróð- urhúsalofttegunda kynni sjáv- arborðið að hækka um metra. bogi@mbl.is Spá enn hærra sjávarmáli Telja að sjávarborð hækki um metra Stefan Rahmstorf Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Í DAG fer því nærri að trúnni, menningunni, tungumálinu og þjóðareinkennun- um, sem kynslóð- ir af Tíbetum hafa talið dýrmætari en eigið líf, hafi verið útrýmt – í stuttu máli þá er litið á Tíbeta sem glæpamenn sem eiga það skilið að verða líflátnir,“ sagði Dalai Lama, hinn útlægi and- legi leiðtogi Tíbeta, í ræðu í tilefni þess að í gær var hálf öld liðin frá uppreisn Tíbeta sem var kæfð í blóði. Ber ábyrgð á dauða þúsunda Leiðtoginn þótti óvenju harðorður í ræðu sinni þar sem hann sagði stéttabaráttu, menningarbyltingu Maós formanns og þjóðernislega „endurmenntun“ Kínverja hafa sökkt Tíbetum í slíkt hyldýpi þján- inga og erfiðleika að þeir byggju við helvíti á jörðu. Stöðugur ótti væri hlutskipti Tíbeta og jafnframt væri tortryggni Kínastjórnar viðvarandi. Þá sakaði Dalai Lama Kínastjórn um að bera ábyrgð á dauða hundraða þúsunda Tíbeta, ásamt því að leggja þúsundir klaustra í rúst. Framkvæmdir Kínastjórnar í Tíb- et sem gerðar hefðu verið undir því yfirskini að stuðla að framförum hefðu í raun haft það að markmiði að auka áhrif hennar. Leiðtoginn horfði einnig fram á veginn með þeim orðum að krafa Tíbeta væri að öðlast sjálfsstjórn innan kínverska ríkisins. Tíbetar búa við „helvíti á jörðu“ Óvenju hörð gagnrýni Dalai Lama á Kínastjórn Í HNOTSKURN »Á mánudag hvatti HuJintao Kínaforseti til þess að reistur yrði Kínamúr gegn aðskilnaðarstefnu Tíbeta. »Ma Zhaoxu, talsmaður kín-verska utanríkisráðuneyt- isins, var ómyrkur í máli og sagði ræðu Dalai Lama byggða á lygum. »Lýðræðisumbætur Kína-stjórnar í Tíbet væru þær umfangsmestu í tíbeskri sögu. Dalai Lama HANN hafði í nógu að snúast við að raða upp kjörkössunum, þessi opinberi starfsmaður í Indónesíu í gær. Til stóð að dreifa kjörkössunum um héraðið Surabaya í tæka tíð fyrir þingkosningarnar 9. apríl næstkomandi. Þremur mánuðum síðar, hinn 8. júlí, fara svo fram forsetakosningar í landinu. Framkvæmd kosninga er óvíða umfangsmeiri, enda eru íbúar landsins hátt í 240 milljónir, meirihlutinn múslímar. baldura@mbl.is Reuters Innan um kjörkassana VALDIS Dombrovskis, verðandi forsætisráðherra Lettlands, segir Letta stefna í þjóðargjaldþrot inn- an þriggja mánaða verði ekki gripið til róttæks niðurskurðar í ríkis- rekstrinum. Að öðrum kosti verði ekki unnt að uppfylla skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og annarra lánveitenda um frekari að- stoð í formi lána til ríkisins. Stendur til að lækka laun op- inberra starfsmanna um a.m.k. 10 prósent og að hækka skatta til að stoppa upp í gatið á ríkisfjárlögum. Lettar fengu 7,5 milljarða Banda- ríkjadala, eða sem svarar um 840 milljörðum króna, í lán frá AGS, Evrópusambandinu og öðrum lán- veitendum í desember og fylgdi lán- inu það skilyrði að halli af rekstri ríkisins færi ekki yfir 5 prósent af vergri þjóðarframleiðslu. Hundraða milljarða halli Til að verða við þessum kröfum samþykkti þingið að grípa til nið- urskurðar og skattahækkana til að brúa bil um 200 milljarða króna halla á fjárhagsárinu 2009. Þær að- gerðir duga hins vegar skammt, enda er nú búist við að samdrátt- urinn í hagkerfinu verði í kringum 12 prósent í ár, eða mun meiri en áður var talið. Dombrovskis, sem verður form- lega settur í embætti á fimmtudag, hefur bent lán- veitendum á þessa þróun og fer fram á að þeir samþykki hallarekstur sem svarar til 8 pró- senta af vergri þjóðarfram- leiðslu. „Þetta er ör- væntingarfullt ákall til sjóðsins um að skilyrði lánsins séu ekki raunhæf,“ sagði Lars Christensen, sérfræðingur hjá Danske Bank, um aðvörunarorð Dombrovskis. Mesta ofhitnunin Morten Hansen, kennari hjá útibúi Stockholm School of Econo- mics í Riga, höfuðborg Lettlands, tók undir að ástandið væri slæmt, enda hefði ofhitnunin og þenslan í lettneska hagkerfinu verið meiri en í Litháen og Eistlandi. Fyrir fjármálahrunið í haust var gjarnan vísað til Eistlands, Lett- lands og Litháens sem Eystrasalts- tígranna, í óbeinni vísun til Asíu- tígranna fjögurra, útflutnings- ríkjanna Hong Kong, Singapúr, Taívans og Suður-Kóreu. Sú um- ræða hefur nú hljóðnað með öllu og áhyggjur af framtíð þessara ríkja tekið við. baldura@mbl.is Lettar á barmi þjóðargjaldþrots Laun verða lækkuð og skattar hækkaðir Valdis Dombrovskis GENGI hlutabréfa hækkaði veru- lega í Bandaríkjunum og Evrópu í gær eftir að einn af stærstu bönk- unum vestanhafs, Citigroup, skýrði frá því að hann hefði verið rekinn með hagnaði tvo fyrstu mánuði árs- ins. Gengi hlutabréfa í Citigroup hækkaði um 38% og bréf í öðrum stórum bönkum snarhækkuðu einn- ig í verði, til að mynda Bank of Am- erica um 27,7% og JP Morgan Chase um 22,6%. Hlutabréfavísitalan Dow Jones í New York hækkaði um 5,8%, Nas- daq-vísitalan um 7% og Standard & Poor um tæp 6,4%. Fyrr um daginn hækkuðu hluta- bréfavísitölur í kauphöllunum í London, Frankfurt og París um 4,8- 5,7%. bogi@mbl.is Hlutabréf hækka í verði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.