Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
ÞEIM einstaklingum hefur fjölgað sem taka veru-
legan þátt í greiðslu daggjalda á öldrunarstofn-
unum, að sögn Gísla Páls Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra í Ási í Hveragerði. Hann segist telja
að greiðsluþátttaka fólks aukist enn á næstu árum
eftir því sem lífeyrissjóða- og vaxtatekjur fólks
aukist og þetta eigi við um öll öldrunarheimili
landsins. Greiðsluþátttaka vistmanna getur hæst
orðið rúmlega 262 þúsund krónur á mánuði.
Hann segir að alls ekki allir geri sér grein fyrir
að fólk eigi að taka þátt í greiðslu daggjalda hafi
það tekjur ofan viðmiðunarmarka. „Mörgum
bregður við og skilja þetta ekki. Það er í sjálfu sér
eðlilegt því þessir peningar hafa verið margskatt-
lagðir þegar til dæmis er um fjármagnstekjur að
ræða,“ segir Gísli.
Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri á Grund,
dvalar- og hjúkrunarheimili, tekur í sama streng og
segir ekki vafa á að aukning hafi orðið í greiðslu-
þátttöku heimilisfólks. Bæði hafi þeim ein-
staklingum fjölgað sem greiði hluta af daggjöldum
og eins þeim sem taki verulegan þátt í þeim.
Þurfa að skila upphæð til Trygginga-
stofnunar þótt hún innheimtist ekki
Gísli Páll er jafnframt formaður Samtaka fyr-
irtækja í heilbrigðisþjónustu en aðild að þeim eiga
flest heimili í öldrunarþjónustu. Samtökin hafa ósk-
að eftir því við Tryggingastofnun að þau þurfi ekki
að innheimta hlut vistmanna í daggjöldum. Senni-
lega geti þau þó ekki komist hjá því nema lögum
verði breytt.
„Hins vegar er erindi okkar við Trygginga-
stofnun á þá leið að okkur beri ekki að greiða til
hennar nema okkur takist að innheimta upphæðina
hjá viðkomandi,“ segir Gísli Páll. „Tökum sem
dæmi að TR feli okkur að innheimta 100 þúsund
krónur hjá ónefndum vistmanni og stofnunin dreg-
ur upphæðina síðan af framlagi TR til okkar, burt-
séð frá því hvort við náum að innheimta upphæðina
eða ekki.
Yfirleitt gengur vel að innheimta þessa peninga
hjá vistmönnum eða aðstandendum þeirra, en ef við
náum ekki að innheimta lendum við í vandræðum
og í einhverjum tilvikum innheimtist upphæðin alls
ekki. Okkur ber samt að skila henni til Trygg-
ingastofnunar. Margir halda að við fáum þessa pen-
inga aukalega en það er ekki, því heimilin fá fasta
tölu eftir eðli þjónustu,“ segir Gísli Páll.
Fleiri taka verulegan
þátt í greiðslu daggjalda
Öldrunarstofnanir vilja
losna við að innheimta af
vistmönnum fyrir TR
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Breytingar Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund síðustu ár.
DVALARKOSTNAÐUR á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum er greiddur með daggjöldum sem
ákveðin eru af heilbrigðisráðuneytinu og félags-
og tryggingaráðuneytinu hverju sinni. Dag-
gjöldin eru mishá eftir stofnunum. Ef mán-
aðartekjur vistmanns eru að jafnaði 65.005 kr.
eða meira eftir skatta (greiðslur frá Trygginga-
stofnun ekki meðtaldar) tekur hann þátt í dval-
arkostnaði með þeim tekjum sem eru umfram
það. Greiðsluþátttaka vistmanna getur þó aldrei
orðið hærri en 262.313 kr. á mánuði.
Frítekjumark fjármagnstekna er 98.640 kr. á
ári en allar fjármagnstekjur umfram það hafa
áhrif við útreikning lífeyris og tengdra greiðslna
hjá Tryggingastofnun í stað helmings áður, skv.
lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem tóku
gildi 1. janúar 2009. Svonefnd samanburð-
arregla gildir enn fyrir vistmenn á dvalar- og
hjúkrunarheimilum. Þeir geta því nýtt sér reglu
frá 2008 þar sem aðeins var reiknað með helm-
ingi fjármagnstekna. TR skoðar báðar reglur og
metur hvor er hagstæðari fyrir viðkomandi.
Þátttaka vistmanna í dvalarkostnaði er tekjutengd
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
TUGUR íslenskra nótaskipa hefur
undanfarið verið á kolmunnaveið-
um um 300 mílur vestur af Írlandi.
Þokkalega hefur fiskast á milli en
ótíð hefur gert veiðar erfiðar.
„Þetta hefur verið leiðindaskakst-
ur, það gefur kannski í örfáa tíma
og svo brælir aftur,“ sagði Stefán
Geir Jónsson, skipstjóri á Lundey,
í samtali gærdag.
Hákon var á landleið í gær en á
miðunum voru Vilhelm Þor-
steinsson, Margrét, Faxi, Lundey,
Ingunn, Bjarni Ólafsson, Börkur,
Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjart-
ansson. Þeir á Lundey komu á
miðin 6. marz og voru síðdegis í
gær búnir að fá um 750 tonn í
tveimur köstum. Vinnsluskipin
frysta það sem þau geta af kol-
munnanum en taka líka í bræðslu.
16.655 tonnum landað
Auk íslensku skipanna voru
rússnesk og norsk skip á til-
tölulega litlu svæði í gær. „Þetta
er blettafiskirí eins og sést á því
að á mánudaginn fannst góð torfa
og það voru ellefu skip að djöflast
í henni. Það verður til þess að
margir fá lítið,“ sagði Stefán Geir.
Kolmunninn veiðist á öllum tím-
um sólarhringsins þegar veðrið
gefur mönnum á annað borð færi
á að vera með veiðarfærin úti. Í
gær hafði verið landað hér á landi
16.655 tonnum af kolmunna frá
áramótum. Eitthvað af aflanum er
úr færeyskum skipum en bæði
Þrándur í Götu og Júpiter hafa
landað hjá Loðnuvinnslunni á Fá-
skrúðsfirði.
Ótíð á kolmunnaslóð
vestur af Írlandi
Ellefu skip voru
að veiðum úr
sömu torfunni
SVEITARSTJÓRNIR Fljótsdals-
héraðs, þ.e. Egilsstaða og nágrenn-
is, og Djúpavogs hafa ákveðið að
taka upp formlegar viðræður um
sameiningu sveitarfélaganna.
Fyrsti fundurinn verður haldinn 25.
mars n.k. Áður hafa farið fram
óformlegar viðræður milli sveitar-
félaganna. Að sögn Andrésar
Skúlasonar oddvita á Djúpavogi
liggur ekkert fyrir um það hve við-
ræðurnar muni taka langan tíma.
Hann telur afar ólíklegt að kosn-
ingar um sameiningu fari fram
samhliða alþingiskosningunum í
vor, tíminn sé einfaldlega svo
knappur. Að sögn Andrésar er
heilsársvegur yfir Öxi alger for-
senda þess að sveitarfélögin geti
sameinast. Ef ekið er um Öxi er
vegalengdin milli Djúpavogs og Eg-
ilsstaða 85 kílómetrar. Ef ekið er
um suðurfirðina og um Fáskrúðs-
fjarðargöng er vegalengdin 156
kílómetrar. sisi@mbl.is
Vegurinn um Öxi
alger forsenda
STEFNT er að
því að atkvæða-
greiðsla um
sameiningu Ak-
ureyrar og
Grímseyjar fari
fram samhliða
alþingiskosning-
unum 25. apríl
næstkomandi.
Að sögn Garðars Ólasonar, odd-
vita í Grímsey, hafa sveitarstjórn-
irnar átt nokkra fundi um málið
að undanförnu. Þá voru skóla-
yfirvöld á Akureyri í Grímsey fyr-
ir skömmu til að kynna sér skóla-
hald í eyjunni.
Akureyringar munu taka yfir
rekstur skólans sem og aðra þjón-
ustu, verði af sameiningu. Í lok
þessarar viku munu sveitarstjórn-
inar eiga fund um málið í sam-
gönguráðuneytinu.
Að sögn Jóhannesar Tóm-
assonar upplýsingafulltrúa ráðu-
neytisins, er ólíklegt að fleiri sam-
einingarkosningar fari fram
samhliða kosningum til Alþingis.
sisi@mbl.is
Kosið um samein-
ingu við Grímsey
STUTT
Afhentu miðann við
kassann og greiddu
eins og aðra vöru.
www.karlmennogkrabbamein.is
Upphæðin rennur óskipt til
Krabbameinsfélagsins.
Afhentu miðann við
kassann og greiddu
eins og aðra vöru.
Þökkum stuðninginn!
www.karlmennogkrabbamein.is
Upphæðin rennur óskipt til
Krabbameinsfélagsins.
500kr
Afhentu miðann við
kassann og greiddu
eins og aðra vöru.
Þökkum stuðninginn!
www.karlmennogkrabbamein.is
Upphæðin rennur óskipt til
Krabbameinsfélagsins.
Það minnsta sem
þú getur gert
...er að kaupa miða til styrktar Karlmönnum og krabbameini.
En auðvitað viljum við að þú lifir heilbrigðu lífi og dragir
þannig úr líkum þess að fá krabbamein.
Leggðu málstaðnum lið
í þinni matvöruverslun.
Þar getur þú keypt 250,
500 eða 1000 króna miða.