Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
GRÍÐARLEGUR þrýstingur er inn-
an Samfylkingarinnar á Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra að gefa
kost á sér sem næsti formaður flokks-
ins. „Þetta er ekki bara þrýstingur,
miklu frekar háþrýstingur,“ sagði
einn þingmanna flokksins sem rætt
var við í gær. Hann taldi það jafn-
framt aðeins spurningu um daga hve-
nær Jóhanna gæfi skýr svör en flestir
viðmælendur blaðsins töldu að hún
myndi bíða með yfirlýsingar fram yfir
prófkjör Samfylkingarinnar í Reykja-
vík og Suðvesturkjördæmi um næstu
helgi. Verði afdráttarlaus stuðningur
við Jóhönnu í forystusætið í Reykja-
vík eykur það líkurnar á að hún láti
undan þrýstingnum og fari fram.
Tíminn til stefnu er skammur, rúmar
tvær vikur í landsfund og 45 dagar til
kosninga hinn 25. apríl nk.
Stuttur tími til íhugunar
Þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
tilkynnti sl. sunnudag að hún væri
hætt afskiptum af stjórnmálum í bili
lét Jóhanna hafa eftir sér að hún gæfi
ekki kost á sér í formanninn. Hún var
spurð út í þessi mál á blaðamanna-
fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Þar
sagði hún að sér bæri skylda til að
íhuga þær áskoranir sem hún hefði
fengið frá flokksmönnum. Hún ætlaði
ekki að taka sér langan tíma til íhug-
unar. Eru þessi orð túlkuð meðal
sumra flokksmanna sem svo að hún
muni á endanum fara fram.
Ekki aðeins almennir flokksmenn
bíða eftir skýrari svörum frá Jó-
hönnu, heldur einnig þeir sem ann-
aðhvort hafa tilkynnt um framboð til
forystustarfa fyrir Samfylkinguna
eða hafa verið orðaðir við það. Áður
en þessi staða kom upp höfðu Dagur
B. Eggertsson og Árni Páll Árnason
gefið kost á sér í embætti varafor-
manns. Jón Baldvin Hannibalsson, fv.
formaður Alþýðuflokksins, hefur lýst
sig reiðubúinn í formannsframboð
fari Jóhanna ekki fram en hann skor-
ar á hana í framboð í opnu bréfi í
Fréttablaðinu í gær. Jón Baldvin tek-
ur þátt í prófkjöri í Reykjavík þar
sem hann hefur kost á sér í eitt af átta
efstu sætunum. Endurkoma hans í
stjórnmálin hefur hrist upp í Sam-
fylkingunni en ekki er talið líklegt að
hann hafi erindi sem erfiði, helst sé
bakland hans meðal eldri krata.
Nafn Lúðvíks Geirssonar, bæj-
arstjóra í Hafnarfirði, hefur einnig
verið nefnt. Hann hefur sjálfur ekk-
ert viljað tjá sig um þau mál, segist
einbeita sér að prófkjörsbaráttunni í
Kraganum um næstu helgi. Það mun
Árni Páll gera einnig en þeir berjast
um 1. sætið á listanum ásamt Þórunni
Sveinbjarnardóttur og líkar ekki illa
að fá smá athygli fyrir prófkjörið.
Eftir að ákvörðun Ingibjargar Sól-
rúnar lá fyrir, og yfirlýsing Jóhönnu
kom við sama tækifæri, fór að bera á
áskorunum á Dag að gefa kost á sér í
formanninn. Hann er meðal þeirra
stjórnmálamanna sem komnir eru á
samskiptavefinn Facebook og þar
streymdu inn áskoranir strax á
sunnudag. Sjálfur hefur Dagur ekki
viljað útiloka formannsframboð en
talið eins og flestir aðrir í flokknum
rökrétt að Jóhanna taki við keflinu af
Ingibjörgu og verði formaður sam-
fara því að vera forsætisráðherraefni
Samfylkingarinnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Næsti formaður? Jóhanna Sigurðardóttir liggur núna undir feldi um hvort hún býður sig fram sem formaður.
Beðið eftir Jóhönnu
Jóhanna Sigurðardóttir íhugar að verða formaður Samfylkingarinnar Margir
bíða á hliðarlínunni eftir yfirlýsingu Gæti ekki skýrst fyrr en eftir prófkjörin
Dagur B.
Eggertsson
Árni Páll
Árnason
Lúðvík
Geirsson
Jón Baldvin
Hannibalsson
JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði á fréttamannafundi í
gær, að ekki væri víst að þingrof yrði
tilkynnt á fimmtudag í næstu viku,
eins og áður hafði verið ráðgert.
Ástæðan er sú hversu mörg mál eru
óafgreidd í þinginu. „Mér finnst mál-
in ganga það hægt í þinginu að menn
þurfi að fara yfir þessa stöðu sem
upp er komin,“ sagði hún.
Jóhanna og Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra gagnrýna
ræðuhöld sjálfstæðismanna á
þinginu í fyrradag og hægagang
þingsins við lokaafgreiðslu mála.
Ætla þau að ræða við bæði fulltrúa
stjórnarflokka og stjórnarandstöðu í
vikunni, fara yfir öll mál sem ríkis-
stjórnin vill afgreiða áður en þinginu
lýkur svo ljóst verði hvenær hægt
verður að ljúka þingstörfum.
Þingrof
óákveðið
ÚTREIKNINGAR á heildaráti
hrefnu á þorski og ýsu eru ekki
komnir frá Hafrannsóknastofn-
uninni, segir í athugasemd frá Gísla
A. Víkingssyni, hvalasérfræðingi á
Hafrannsóknastofnun. Athugasemd
Gísla fer hér á eftir:
„Föstudaginn 6. mars s.l. birtist
frétt í Morgunblaðinu um rann-
sóknir Hafrannsóknastofnunarinnar
á fæðu hrefnu undir fyrirsögninni
„Hrefnan étur 300 þús. tonn af
þorski og ýsu“. Þar er vitnað til
fréttar á heimasíðu LÍÚ varðandi
frumniðurstöður rannsókna á hlut-
fallslegri fæðusamsetningu hrefnu
á landgrunnssvæðinu við Ísland
sem kynntar voru á ráðstefnu Haf-
rannsóknastofnunarinnar í lok síð-
asta mánaðar.
Þar kom fram að hlutfallslegt
vægi bolfisks í fæðunni hefur auk-
ist verulega frá því sem áður var
álitið, en jafnframt var lögð áhersla
á að ekki væri að svo stöddu tíma-
bært að kynna áætlanir á þyngd
hverrar fæðutegundar á árs-
grundvelli. Útreikningarnir á heild-
aráti hrefnu á þorski og ýsu eru því
ekki frá Hafrannsóknastofnuninni
komnir eins og haldið er fram í
fréttinni. Þeir byggjast á einfaldri
uppfærslu mats frá árinu 1997 á
heildarafráni hrefnustofnsins við
Ísland með hinum nýju hlutfalls-
tölum.
Niðurstöður hrefnurannsókna
undanfarinna ára hafa hins vegar
sýnt fram á mikinn landfræðilegan
breytileika í fæðusamsetningunni
og miklar sveiflur í fjölda hrefna á
landgrunnssvæðinu sem krefst sér-
stakrar skoðunar við. Það er því
ljóst að raunhæft mat á afráni
hrefnu á einstökum fæðutegundum
krefst viðbótar-sýnatöku og tals-
vert flóknari útreikninga og er
jafnframt bundið mikilli óvissu
vegna óvenjulegra breytinga á
fjölda hrefna og annarra þátta líf-
ríkisins undanfarin ár.
Fyrirhugaðar eru talningar á
hrefnu nú í sumar sem varpað geta
ljósi á þennan breytileika. Loka-
þáttur þessara rannsókna felst í
líkanagerð þar sem tillit verður
tekið til þessa breytileika og leitast
við að meta þátt hrefnu í lífríkinu
við landið og hugsanleg áhrif á aðra
nytjastofna sjávar.“
Útreikn-
ingar ekki
frá Hafró
Jóhanna Sigurðardóttir verður 67
ára síðar á þessu ári og hafði ekki
ætlað sér endurkjör í næstu þing-
kosningum þegar hún var skyndi-
lega komin í stól forsætisráðherra
1. febrúar sl. Aðstæður í lífi hennar
hafa því gjörbreyst og nú liggur
hún undir feldi eins og Þorgeir
Ljósvetningagoði forðum.
Á blaðamannafundi ríkisstjórn-
arinnar í gær mátti lesa út úr orð-
um hennar að hún væri alvarlega
að íhuga formannsframboð.
„Þessi mikla hvatning mun auð-
vitað verða til þess að ég mun
íhuga málið en ég sé samt ekki að
staðan muni neitt breytast. Mér
finnst bara að ég hafi þær skyldur
við þetta fólk sem er að hvetja mig
um allt land, að a.m.k. að gefa
þessu gaum og íhuga málið en ég
sé ekki að það muni breyta neinu.
Ég er afar þakklát fyrir þann mikla
stuðning sem ég finn við það að ég
gefi kost á mér til formanns, sem
er raunverulega um allt land,“
sagði Jóhanna við fréttamenn í
Þjóðmenningarhúsinu í gær.
Ekki það sem Jóhanna hafði ætlað sér
Á forsíðu Morgunblaðsins í gær var
rangt farið með nafn bæjarins sem
gemlingurinn, er bjargað var úr
Krýsuvíkurbjargi á laugardag, er frá.
Gemlingurinn er frá bænum Nýjabæ
í Garðabæ. Leiðréttist það hér með.
LEIÐRÉTT
Gemlingur frá Nýjabæ
Meðal þeirra sem bíða í framboðsbuxum
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Ný peysusending
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Laugalandi
Holtum, föstudaginn 27. mars 2009 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um breytingar á 17. gr. samþykkta félagsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir
aðalfund.
Reykjavík, 6. mars 2009.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.