Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
Pétur H. Blöndal í 2. sæti
Opinn fundur um lausnir
• Fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar
• Endurreisn efnahagslífsins, uppgjör við fortíðina
og lausnir til framtíðar
• Þrískipting valdsins og öflugra Alþingi
Október hrunið - hvað svo?
Hugmyndir Péturs um leiðir og lausnir á vandanum.
Opinn fundur á
Háskólatorgi, stofu
HT105, fimmtudagskvöld
klukkan 20:00 - 22:00.
Fundarstjóri Gylfi Zoega
prófessor við Háskóla
Íslands.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
FIMM stöður skólastjóra og aðstoðar-
skólastjóra við skólana í Dalabyggð
verða lagðar niður og ráðinn einn
skólastjóri yfir fjóra skóla. Sveitar-
stjórn hefur samþykkt tillögu sveitar-
stjórans um skipulagsbreytingarnar.
Óánægja er með þær meðal íbúa.
Ákvörðun sveitarstjórnar felur í sér
sameiningu yfirstjórnar Grunnskólans
í Búðardal, Grunnskólans í Tjarnar-
lundi í Saurbæ, leikskólans Vinabæjar í
Búðardal og Tónlistarskóla Dalasýslu.
Allt eru þetta fámennar stofnanir
nema Grunnskólinn í Búðardal, og
óhagkvæmar einingar. Skólastjórar
eru nú yfir öllum skólunum og aðstoð-
arskólastjóri að auki í Grunnskólanum
í Búðardal. Í samþykkt sveitarstjórnar
sem gerð var samhljóða felst að þessar
fimm stöður eru lagðar niður og ráðinn
nýr skólastjóri yfir allar stofnanirnar.
Þremur af þessum stjórnendum hef-
ur verið sagt upp störfum en tveir eru
með tímabundna ráðningu. Grímur
Atlason sveitarstjóri segir að öllum
verði boðið að starfa áfram sem kenn-
arar eða millistjórnendur. Ráðinn verð-
ur verkefnisstjóri við skólann í Tjarn-
arlundi og aðstoðarleikskólastjóri að
Vinabæ. Ekki verður ráðinn aðstoðar-
skólastjóri við Grunnskólann í Búðar-
dal en nýr skólastjóri mun starfa þar.
Staða skólastjóra hefur þegar verið
auglýst laus til umsóknar. Tekið er
fram að æskilegt sé að nýr skólastjóri
geti hafið störf við undirbúning í vor.
Grímur Atlason segir áætlað að
skipulagsbreytingarnar spari um 10
milljónir kr. í launakostnaði en auk
þess verði hægt að draga úr ýmsum
öðrum kostnaði með samrekstri.
Mesti sparnaðurinn er vegna breyt-
inga á tónlistarskólanum. Lögð verður
áhersla á kennslu barna í 1. til 4. bekk.
Tónlistarnám verður síðan í boði fyrir
nemendur 5. til 10 bekkjar gegn gjaldi.
Almenningi gefst ekki lengur kostur á
að nýta þjónustu tónlistarskólans.
Lítilsvirðing við skólann
„Það skilja allir þörfina á því að
hagræða í rekstri en það er ekki
sama hvernig það er gert. Þeir hefðu
átt að byrja á því að einfalda dýrasta
þáttinn, tónlistarskólann,“ segir
Guðrún Jóhannsdóttir, íbúi í Búðar-
dal. Hún á barn í skólanum og segir
að núverandi skólastjórnendur hafi
unnið gott starf og hvetur íbúa til
samstöðu um að krefjast þess að
sveitarstjórn afturkalli ákvörðun
sína og skoði málin betur í samráði
við íbúana. Hún segir að hægt hafi
verið að fella tónlistarskólann undir
stjórnun grunnskólans án þess að
fara í þessar róttæku skipulags-
breytingar.
Þrúður Kristjánsdóttir, fyrrver-
andi skólastjóri í Búðardal, gagnrýnir
breytingarnar harðlega á vef Dala-
byggðar. Segir að Grunnskólanum í
Búðardal sé sýnd hrein lítilsvirðing
með þessu skipulagi. Núverandi
stjórnendum séu boðnar kennara-
stöður sem ekki séu til við skólann en
bent á lausar stöður í Tjarnarlundi. „Í
Grunnskólanum í Búðardal hefur ver-
ið gott og metnaðarfullt skólastarf
sem byggst hefur upp gegnum árin.
Væri sárgrætilegt ef tilskipanir sveit-
arstjórnar yrðu til að raska því,“ segir
Þrúður.
Einn stjóri í stað fjögurra
Íbúar gagnrýna ákvörðun sveitarstjórnar Dalabyggðar um að segja upp skóla-
stjórunum í Búðardal og ráða einn skólastjóra yfir fjóra skóla sveitarfélagsins
Morgunblaðið/Arnaldur
Þorp Búðardalur er helsti þéttbýlisstaðurinn í Dalabyggð. Nýr skólastjóri
verður ráðinn við skólann þar til að stjórna öllum skólum byggðarlagsins.
Í HNOTSKURN
»Í skýrslu sem unnin varfyrir sveitarstjórn koma
fram þrjár tillögur sem kynnt-
ar voru íbúum í byrjun janúar
án þess að afstaða væri tekin
til þeirra. Nefnt var að sam-
eina alla skólana eða grunn-
skólann og tónlistarskólann.
Mesti sparnaðurinn var þó tal-
inn felast í því að hætta
kennslu í Tjarnarlundi.
»Sveitarstjórnin hefurákveðið að kennsla verði
áfram í Tjarnarlundi, að
minnsta kosti næstu fjögur ár-
in. Talið er of langt fyrir börn-
in að sækja skóla í Búðardal.
ELLISIF Tinna
Víðisdóttir, for-
stjóri Varnar-
málastofnunar,
segir að hún hafi
oft boðið Land-
helgisgæslunni
samstarf en
Gæslan hafi sýnt
því takmarkaðan
áhuga. Sjálfsagt
væri að stofnan-
irnar ynnu saman en jafnframt yrði
að hafa í huga að Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) gerði stífar öryggis-
kröfur um hvernig farið væri með
gögn úr eftirlitskerfum þess.
Í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Georg Kr. Lárussyni, forstjóra
Landhelgisgæslunnar, að vegna
þess hversu Gæslan hefði fáar þyrl-
ur, væri afskaplega gott að hafa að-
gang að gögnum Varnarmálastofn-
unar um staðsetningu erlendra
herskipa sem hugsanlega væru búin
þyrlu.
Gæslan stenst ekki kröfur
Ellisif Tinna segir að Varnarmála-
stofnun fái allar þær upplýsingar
sem NATO búi yfir um ferðir skipa
og flugvéla í kringum landið. Í þess-
um upplýsingakerfum sjáist öll skip
en í eftirlitskerfum Landhelgisgæsl-
unnar sjást aðeins þau skip sem búin
eru sérstökum fjareftirlitsbúnaði.
Stífar öryggisreglur gildi um með-
ferð þessara upplýsinga sem m.a.
lúta að öryggi húsnæðis. Húsnæði
Varnarmálastofnunar standist þær
kröfur en það geri höfuðstöðvar
Landhelgisgæslunnar hins vegar
ekki, það hafi verið staðfest með
skoðun NATO fyrir skömmu. Til að
Varnarmálastofnun geti deilt trún-
aðarupplýsingum úr upplýsingakerf-
um NATO verði viðtakandi að stand-
ast fyrrnefndar kröfur.
Ellisif Tinna segir að Varnarmála-
stofnun hafi verið öll af vilja gerð til
að koma á samstarfi við Landhelg-
isgæsluna. Gæslunni hafi t.a.m. verið
boðið að hafa vaktmann í húsnæði
Varnarmálastofnunar sem gæti
fylgst með skipaumferð og verið í
sambandi við stjórnstöð Gæslunnar,
ef þurfa þætti. Kostnaðurinn yrði
greiddur af Gæslunni. Þessu boði
hafi Landhelgisgæslan í engu svar-
að. Þá hafi hún sem forstjóri Varn-
armálastofnunar tilnefnt tæknimann
til að kanna hvort hægt væri að
keyra eftirlitskerfi Varnarmála-
stofnunar og Landhelgisgæslunnar
saman en Gæslan hefði ekki tilnefnt
mann fyrir sitt leyti. Gæslan hefði
ekki einu sinni viljað afla öryggis-
vottunar NATO fyrir starfsmenn
sína en slíka vottun yrðu allir þeir
sem hafa aðgang að upplýsingakerf-
um bandalagsins að hafa. „Menn
hljóta að byrja á að setjast niður og
ræða hvað er hægt að gera saman,“
segir hún. Gæslan hafi engan áhuga
sýnt á því.
Fullyrðingar koma á óvart
Ellisif Tinna tekur fram að sam-
starf við Gæsluna, t.d. í kringum loft-
rýmiseftirlit hafi verið með miklum
ágætum en bæði sprengjudeild og
þyrlubjörgunarsveit sinni ákveðnum
störfum í tengslum við það. Því komi
yfirlýsingar og fullyrðingar forstjóra
Landhelgisgæslunnar henni á óvart.
runarp@mbl.is
Varnarmála-
stofnun hefur
boðið samstarf
Gæslunni boðið að senda vaktmenn
Ellisif Tinna
Víðisdóttir
F-LISTINN sem
er í minnihluta í
bæjarstjórn
Sveitarfélagsins
Garðs telur ekki
rétt að Oddný G.
Harðardóttir sitji
áfram sem bæj-
arstjóri eftir að
hún gaf kost á sér
á framboðslista
Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi. Oddný vill
athuga stöðuna eftir kosningar.
Oddný er í forystu fyrir meirihluta
bæjarstjórnar og hefur verið bæj-
arstjóri frá upphafi kjörtímabilsins.
Hún gaf kost á sér í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar og náði þar öðru sæti.
„Við teljum að bæjarstjórastaðan sé
það mikilvæg að ekki sé hægt að
standa í kosningabaráttunni með
því,“ segir Ingimundur Þ. Guðnason,
bæjarfulltrúi F-listans. Krafan um af-
sögn bæjarstjórans var samþykkt á
almennum félagsfundi F-listans og
Ingimundur segir að sami tónn heyr-
ist víðar í bænum.
Athugað eftir kosningar
Oddný segir að málið verði athug-
að í rólegheitum. Hún segist hafa
óskað eftir því að það verði gert þeg-
ar úrslit kosninga liggja fyrir. Hún er
í öruggu sæti ef úrslit kosninganna í
vor verða lík síðustu kosningum.
„Garðbúar þurfa ekki að hafa áhyggj-
ur af því að ég sinni ekki þessu starfi,
á meðan ég er í því,“ segir Oddný og
bætir því við að hún telji að flestir
bæjarbúar fagni því að hún eigi
möguleika á þingsæti. helgi@mbl.is
Vilja að
bæjarstjóri
hætti
Oddný G.
Harðardóttir