Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 18
18 FréttirVIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
www.veggfodur.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
MIKIL óánægja er innan herbúða
Straums með þá ákvörðun Fjármála-
eftirlitsins að taka bankann yfir.
Ákvörðun FME kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti, að sögn þeirra
starfsmanna bankans sem Morg-
unblaðið hefur rætt við.
Óánægja erlendra kröfuhafa fé-
lagsins er mikil og var mikið hringt í
höfuðstöðvar Straums á mánudag
þar sem erlendir viðskiptamenn
bankans lýstu vonbrigðum sínum og
reiði vegna yfirtökunnar. Með þessari
aðgerð væri verið að mismuna kröfu-
höfum, enn eina ferðina, með því að
vernda hagsmuni íslenskra innstæðu-
eigenda á kostnað annarra kröfuhafa.
Eins og málið liggur fyrir stjórn-
endum og eigendum Straums var það
mat stjórnvalda að tryggja hagsmuni
Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóðanna og
annarra sem áttu stór innlán í bank-
anum, fremur en að leyfa Straumi að
fara í greiðslustöðvun og freista þess
að halda starfsemi áfram, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins.
Dótturfélögin starfa áfram
Lítil sem engin virkni er í höfuð-
stöðvum Straums við Borgartún,
sárafáir starfsmenn eru við störf og
bankinn getur ekki tekið á sig skuld-
bindingar í augnablikinu. Dótturfélög
bankans erlendis eru sjálfstæðar lög-
persónur sem halda áfram starfsemi.
T.d. sérhæfði fjárfestingarbankinn
Stamford Partners í Lundúnum og
Wood & Company í Prag, en Straum-
ur á helmings hlut í báðum félögum.
Auk þess má nefna finnska bankann
EQ, sem er að fullu í eigu Straums, en
öll þessi fyrirtæki hafa traustan hóp
viðskiptavina. Þó liggur fyrir að orð-
stír þessara félaga hefur skaðast mik-
ið vegna yfirtöku FME á Straumi.
Teathers í Lundúnum, sem er nafn
yfir starfsemi Straums í Bretlandi og
er til húsa í sama húsi og Stamford
Partners, er ekki starfandi sem
stendur.
Þegar FME tók yfir vald stjórnar
og hluthafafundar Straums tók það í
reynd yfir stjórn dótturfélaga bank-
ans. Hins vegar bendir ekkert til þess
að FME muni hlutast til um breyt-
ingar á stjórnum dótturfélaganna.
Segja að kröfuhöfum sé
mismunað eina ferðina enn
Kröfuhafar lýsa vonbrigðum með yfirtöku Dótturfélög Straums starfa áfram
Í HNOTSKURN
»Um 600 manns störfuðuhjá Straumi Burðarási
þegar bankinn var tekinn yfir
af FME, þar af 113 hér á
landi.
»Kauphöll Íslands tókhlutabréf Straums Burð-
aráss úr viðskiptum í lok við-
skipta í gær í ljósi aðgerða
Fjármálaeftirlitsins.
»Ekkert liggur fyrir umannað en að helstu lyk-
ilstarfsmenn Straums verði
áfram við störf og skilanefnd
bankans innan handar. Willi-
am Fall mun jafnframt verða
skilanefndinni innan handar.
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar,
ICEXI6, lækkaði um 0,99% í gær og
var lokagildi hennar 584,81 stig. Eft-
ir daginn í gær verður Straumur Burð-
arás tekinn út úr vísitölunni, en Fær-
eyjabanki kemur inn í hana í staðinn.
Bréf Marels hækkuðu um 1,13% í
gær, en Bakkavör lækkaði um
4,42% og Össur um 2,80%.
bjarni@mbl.is
Færeyskur banki í Úr-
valsvísitöluna
● ALLS eru 283
bandarísk fyr-
irtæki sem eru
skráð á markað á
barmi gjaldþrots,
þar á meðal mörg
þekkt fyrirtæki,
segir í nýrri skýrslu
alþjóðlega mats-
fyrirtækisins Moo-
dy’s. Má þar
nefna fyrirtæki
eins og bílaframleiðendurna General
Motors og Chrysler auk Eastman Ko-
dak og móðurfélags American Airl-
ines, AMR Corp. FL Group var á sín-
um tíma stór hluthafi í AMR.
Moody’s telur að mörg þeirra fyr-
irtækja sem lækkað hefur verið mat
á undanfarið eigi eftir að fara í þrot á
næstu mánuðum. guna@mbl.is
Á þriðja hundrað fyr-
irtækja í vanda
Flug AMR á í mikl-
um erfiðleikum.
● HAGNAÐUR HB
Granda á síðasta
ári nam rúmum
16 milljónum
evra, en á gengi
dagsins í dag þýð-
ir það að hagn-
aðurinn hafi num-
ið um 2,3
milljörðum króna.
Árið 2007 nam hagnaður fyrirtæk-
isins 20,5 milljónum evra. Athygli
vekur hins vegar að hagnaður fyrir
skatta árið 2008 nam rúmum fimm
milljónum evra en árið 2007 var
hagnaður fyrir skatta 25,4 milljónir
evra. HB Grandi birtir nú uppgjör sitt
í fyrsta sinn í evrum. Í tilkynningu
segir að slíkt uppgjör gefi betri mynd
af afkomu og stöðu félagsins en
uppgjör í íslenskum krónum, þar
sem stærstur hluti tekna sé í evrum,
sem og stór hluti gjalda. Þá hafi evr-
an mest vægi í samsetningu eigna
og skulda og þar með eigin fé.
Heildareignir félagsins námu 296
milljónum evra í lok árs 2008. Í árs-
lok nam eigið fé 125 milljónum. Eig-
infjárhlutfall var því 42%, en var 35%
í lok árs 2007. Heildarskuld félags-
ins var 171 milljón evra í árslok
2008. bjarni@mbl.is
HB Grandi skilar 2,3
milljarða hagnaði
tryggingafélagsins Føroyar sagði á
fundinum að stjórnendur félagsins
hefðu nú þegar rætt við eigendur
Sjóvár, VÍS og Tryggingamiðstöðv-
arinnar. Vonir standi til að nið-
urstöður um hvort kaup á einhverju
þeirra komi til greina muni vænt-
anlega liggja fyrir eigi síðar en í
næsta mánuði.
Heen greindi frá því að stjórn
tryggingafélagins hefði tekið
ákvörðun um það í lok febrúar, að
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
TRYGGINGAFÉLAGIÐ Føroyar
vill helst kaupa Sjóvá, VÍS eða
Tryggingamiðstöðina. Gangi það
ekki eftir ætlar félagið að stofna
nýtt tryggingafélag eða opna útibú
hér á landi. Þetta kom fram á
fréttamannafundi í gær.
Edvard Heen, framkvæmdastjóri
kanna möguleikann á því að koma
inn á íslenskan tryggingamarkað.
Það hefði hins vegar verið í athug-
un hjá félaginu allt frá ársbyrjun
2007, en veruleg hreyfing hefði
komist á málið í ágúst í fyrra. Sagði
hann að ástæða þess að félagið
hefði ákveðið að snúa sér til Íslands
væri meðal annars sú, að sam-
félögin tvö væru á margan hátt lík.
Ísland hentaði því vel fyrir félagið
til að það ætti möguleika á að vaxa.
Þá skipti einnig máli að Ísland væri
eina landið sem Færeyingar hefðu
gert fríverslunarsamning við.
Tryggingafélagið Føroyar er
með hátt í 80% markaðshlutdeild í
tjónatryggingum í Færeyjum.
Vilja kaupa íslenskt félag
Tryggingafélagið Føroyar ætlar að hefja starfsemi hér
Morgunblaðið/RAX
Kynning Edward Heen, framkvæmdastjóri tryggingafélagsins Føroya, og
Kristina Háfoss, sölu- og markaðsstjóri, kynntu áform félagsins í gær.
ÁKVEÐIÐ var á aðalfundi Marels í
gær að greiða ekki út arð til hluthafa
fyrir árið 2008. Tap fyrirtækisins á
síðasta ári nam um 8,4 milljónum
evra, eða um 1,2 milljörðum ís-
lenskra króna. Stjórn félagsins var
endurkjörin á aðalfundinum og verð-
ur Árni Oddur Þórðarson áfram for-
maður stjórnar. Þá var ákveðið að
lækka laun stjórnarmanna um 20%
að meðaltali. Fær stjórnarformaður
nú um 560.000 krónur á mánuði og
stjórnarmenn um 335.000 krónur.
Í ávarpi sínu á fundinum sagði
Árni Oddur að eftir þrjár umtals-
verðar yfirtökur undanfarin misseri
væri áhersla í auknum mæli lögð á
innri vöxt. Benti hann því til stuðn-
ings á að rekstrarhagnaður hefði
aukist um 25% frá árinu á undan.
Sagði hann að Marel hefði ekki farið
varhluta af þeim hremmingum sem
skekja nú hagkerfi heimsins, en
gripið hefði verið til aðgerða til að
hagræða í rekstri og draga úr kostn-
aði.
Hörður Arnarson forstjóri sagði
matvælaiðnaðinn betur til þess fall-
inn að lifa af yfirstandandi kreppu og
að henni lokinni mætti búast við tölu-
verðum vexti hjá Marel.
bjarni@mbl.is
Marel greiðir ekki arð
Morgunblaðið/Ómar
Aðalfundur Hörður Arnarson, forstjóri Marels, og Árni Oddur Þórðarson,
stjórnarformaður fyrirtækisins, hlýddu á ávarp Össurar Skarphéðinssonar
iðnaðarráðherra á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í gær.
Laun stjórnar
lækka um 20%
BÆÐI Íslands-
banki og skila-
nefnd Glitnis
gera at-
hugasemdir við
yfirlýsingu Stef-
áns H. Hilm-
arssonar, aðstoð-
arforstjóra
Baugs, og Gunn-
ars Sigurðs-
sonar forstjóra í
tengslum við beiðni félagsins um
framlengingu greiðslustöðvunar.
Stefán og Gunnar sendu frá sér yf-
irlýsingu í gær þar sem þeir hafna
staðhæfingum um að þeir hafi
blekkt kröfuhafa eða lagt fram vill-
andi upplýsingar. Í yfirlýsingu Ís-
landsbanka segir að sé það vilji for-
svarsmanna Baugs að taka af allan
vafa um fjárhagsstöðu félagsins sé
þeim í lófa lagið að veita almenn-
ingi aðgang að gögnum sem lögð
voru fyrir héraðsdóm á mánudag.
„Við erum ekki mótfallnir því. Ég
sé hins vegar ekki neinn tilgang
með því enda varasamt að birta
mikið magn af gögnum nema þau
séu skýrð rétt út,“ segir Stefán. Úr-
skurður um áframhaldandi
greiðslustöðvun Baugs verður
kveðinn upp í dag. thorbjorn@mbl.is
Hvetja Baug til
að birta gögn
Stefán H.
Hilmarsson
Stjórnendur hafna ásök-
unum um blekkingar