Morgunblaðið - 11.03.2009, Page 19
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
M
itt fyrsta mótorhjól var stórt
og þungt enskt hjól, en svo
flutti ég inn spænsk torfæru-
hjól til að vera á utan vega.
Þetta voru drifgóð og létt hjól
sem komust yfir allt sem fyrir varð, rétt eins
og hestar. Það var mikil upplifun að komast á
þessi hjól og alla tíð síðan hef ég átt mótorhjól
sem hægt er að fara um á grófum vegum,“ seg-
ir úrsmiðurinn og ólíkindatólið Axel Eiríksson.
Axel er alls ekki hin dæmigerða mót-
orhjólatýpa, en tilfellið er að hann hefur verið
með ólæknandi mótorhjóladellu frá því hann
var tvítugur. „Ég trúi því varla sjálfur þegar
ég lít í spegil, að ég eigi mótorhjól,“ segir hann
og hlær. Hann hefur eðli málsins samkvæmt
átt mörg mótorhjól í gegnum tíðina. „Núna á
ég bara tvö, eitt gamalt herhjól og svo líka
kraftmikið BMW-hjól sem ég eignaðist fyrir
tveimur árum. Þetta snýst allt um frelsi, úti-
veru og félagsskap, en við ferðumst gjarnan
saman nokkrir vinir á sumrin á mótorhjólum
og tökum með okkur tjöld, það er mjög gaman.
En það er líka krefjandi að keyra svona hjól,
það krefst samhæfingar. Það er einstök tilfinn-
ing að vita af þessum krafti tiltækum, sem býr
í góðu hjóli,“ segir Axel sem reynir að fara á
hjólinu í vinnuna eins oft og hann getur og veð-
ur leyfir. „Þá er dagurinn allt annar, ég fæ loft
í lungun og mér líður vel.“
Teiknar stundum á nóttunni
Axel hefur haft sterka þörf til að skapa, al-
veg frá því hann man eftir sér. „Ég er alltaf að
búa eitthvað til og ég hef sótt ótal námskeið
hvort sem það er í módelteikningu, grafík,
málun eða leirmótun. Ég er með ágætis að-
stöðu heima hjá mér til að sinna þessari sköp-
unarþörf og það líður ekki sá dagur að ég
teikni ekki. En hugmyndirnar eru mis lengi að
fæðast. Ég var til dæmis búinn að ganga með
kreppumynd í höfðinu í nokkra daga áður en
hún kom fullsköpuð á blað. Ég byrjaði á henni
um miðnætti og lauk við hana klukkan fimm
um morguninn. Maður verður að stökkva til
þegar andinn kemur yfir mann. Ég reyni að
teikna að lágmarki eina mynd í mánuði,“ segir
Axel sem skellti kreppumyndinni góðu sem
hann teiknaði með sjálfblekungi, út í glugga í
verslun sinni í Mjóddinni og fékk mikil við-
brögð. „Fólk staldraði við við myndina, kom
inn fyrir og lýsti yfir skoðun sinni. Og nú er
hún seld.“
Listamannstaugin sem togar svona sterkt í
Axel brýst út með ýmsum hætti eins og áður
sagði. „Ég var til dæmis með risastóran flug-
dreka á Arnarhóli á Menningarnótt sem ég
smíðaði. Hann var 5x6 metrar og þetta var
fyrst og fremst táknrænn gjörningur. Við er-
um jú alltaf að bíða eftir einhverjum teiknum.
Flugdrekinn átti sem sagt að vera teikn um að
til er eitthvað sem er stærra en við sjálf. Að
baki flugdrekanum hlýtur að standa eitthvað
ennþá stærra en hann.“
Gott að eiga hreiður í sveitinni
Axel hefur undanfarið verið að móta manns-
líkama í leir. „Ég varð fyrir upplifun þegar ég
fór á námskeið í leirmótun þar sem við vorum
með fyrirsætur og ég gleymdi mér alveg í því
að upplifa þrívíddina í þessu.“ Hann hefur líka
teiknað skartgripi og látið smíða þá fyrir sig og
selt í búðinni og hann hefur tekið þátt í nokkr-
um keppnum um listaverk utan við opinberar
byggingar. „Af því að mér finnst gott að hafa
tímapressu á mér. Þá víkur allt annað og það
er rosalega skemmtilegt að hanna og búa til
módel af stórum skúlptúr.“ Axel var með yf-
irlitssýningu á Ísafirði á verkum sínum 1991
en þar var hann með úra- og skartgripaverslun
í 27 ár, sem hann rak ásamt verslun í Reykja-
vík. „Viðskiptavinir mínir að vestan halda
tryggð við mig og koma sumir hverjir hingað í
verslun mína í Mjóddinni og mér þykir vænt
um það.“ Listsköpuninni sinnir Axel meðfram
fullri vinnu. „Ég mundi gjarnan vilja hafa
meiri tíma til að sinna þessu, en skyldan kallar
og ég vil sinna mínum viðskiptavinum vel.“ Ax-
el á afdrep utan við Reykjavík, en hann byggði
sumarhús í nágrenni við Laugarvatn þar sem
hann keypti lóð fyrir tíu árum. „Mér finnst
gott að eiga svona hreiður í sveitinni. Þarna er
mikil veðursæld og við fjölskyldan reynum að
vera þarna eins mikið og við getum. Draum-
urinn er að koma upp góðri aðstöðu þar til list-
sköpunar.“
Úrsmiður og listamaður á mótorfák
Tryllitæki Axel í fullum skrúða við hjólið sitt. Honum finnst gott að vita af kraftinum tiltækum.
Morgunblaðið/Kristinn
Líkamar Sýnishorn af verkum sem Axel hefur
mótað í leir, en honum hugnast þrívíddin.
Hann hefur verið með mót-
orhjóladellu frá því hann var
tvítugur og listamannstaugin
togar líka sterkt í hann. Hann
teiknar kreppumyndir, mótar
mannslíkama í leir og býr til
risaflugdreka.
MÁDARA SNYRTIVÖRUR
Fangaðu náttúruna með MÁDARA!
Í náttúrulegu snyrtivörunum frá MÁDARA finnur þú
engin skaðleg innihaldsefni eins og paraben og glycol.
–Engin rotvarnarefni né tilbúin lyktar- og litarefni.
20% afsláttur ef keyptir eru 2 hlutir í Mádara snyrtivörulínunni.
SILICA PLUS
Sérstaklega mikilvægt fyrir
heilbrigði hárs, nagla, húðar, beina og brjósks.
180 stk. með 20% afslætti.
ALKA-CLEAR og FLOR•ESSENCE
Alka-Clear er uppfull af hreinsandi og basískum
steinefnum, sem framleidd eru með það í huga að
sýrujafna blóð og vefi líkamans og hreinsa úrgang.
Flor•Essence dextox blandan er í duftformi og
mjög auðveld í meðhöndlun.
Þegar þú kaupir Alka-Clear frá Higher Nature færðu
Flor-Essence detox blönduna frítt með í kaupbæti.
LIÐ-AKTÍN QUATRO
Liðaktín er öflugt bætiefni með völdum virkum
efnum sem gefa fjórfalda virkni fyrir liðina.
EFALEX HYLKI!
Verum skarpari! Efalex eflir einbeitingu,
sjón og stuðlar þannig að betri námsárangri
240 stk. og 60 stk. með 25% afslætti.
Í tilefni af 30 ára afmæli Heilsuhússins, bjóðum við vegleg tilboð í öllum verslunum okkar dagana 11.-16. mars