Morgunblaðið - 11.03.2009, Page 23
Umræðan 23KOSNINGAR 2009
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
MIKILVÆGI ráðdeildar í ríkisrekstri
hefur sjaldan eða aldrei verið meira en nú.
Í ljósi minnkandi skatttekna hins opinbera
og mikils hallareksturs ríkissjóðs er nauð-
synlegt að endurskilgreina hlutverk hins op-
inbera og takmarkað fjármagn til grunn-
stoða þjóðfélagsins. Það skýtur því skökku
við að sjá fréttir af niðurskurði og rekstr-
arerfiðleikum stofnana í samfélaginu sem
flestir ættu að geta sammælst um að til-
heyri grunnstoðum þjóðfélagsins.
Farmanna- og fiskimannasambandið vakti
máls á því að niðurskurður hjá Landhelg-
isgæslunni þýddi að skip sem sækja lengra út í land-
helgina geti ekki lengur treyst á þyrlubjörgun. Alls
hefur 35 starfsmönnum verið sagt upp á árinu hjá
Gæslunni. Það verður einungis hægt að halda úti einni
þyrluvakt í landinu í átta mánuði á ári. Kostnaður við
Landhelgisgæslunna árið 2009 er áætlaður 2,7 millj-
arðar króna. Aukaframlag upp á 200 m.kr. myndi duga
til að reka tvær þyrluáhafnir. Til samanburðar má
nefna að kostnaður við Vatnajökulsþjóðgarð er áætl-
aður 352 m.kr. á árinu.
Í lok síðasta árs var tilkynnt að fangelsinu á Ak-
ureyri yrði lokað vegna hagræðingar, á móti
ætti að fjölga föngum á Litla-Hrauni. Í við-
tali við Pál Winkel fangelsismálastjóra í
Morgunblaðinu kom í ljós að þar væri ekki
hægt að bæta við föngum þar sem öll rými
væru full. Langur biðlisti er eftir því að
fangar geti hafið afplánun. Brotamenn
ganga því lausir úti í samfélaginu. Kostn-
aður við fangelsismál á árinu 2009 er rúm-
lega 1 milljarður króna samkvæmt fjár-
lögum þessa árs.
Í Fréttablaðinu var nýlega grein um fjár-
svelti lögreglunnar og uppsagnir. Heimild-
armenn blaðsins fullyrtu að fjárhagsstaða
lögreglunnar væri slæm og álagið aldrei
meira. Kostnaður við löggæslu á höfuðborgarsvæðinu
er áætlaður um 3,2 milljarðar króna á árinu 2009. Til
samanburðar kostar um 14 milljarða króna að klára
byggingu tónlistarhússins.
Forgangsröðun stjórnmálamanna verður að breyt-
ast. Útgjöld til gæluverkefna stjórnmálamanna og
þrýstihópa þurfa að víkja fyrir útgjöldum til grunn-
stoða þjóðfélagsins.
Sparnaður á röngum stöðum
Eftir Hauk Þór Hauksson
Haukur Þór
Hauksson
Höfundur er viðskiptafræðingur og sækist eftir 4. sæti í
prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi.
INDRIÐI H. Þorláks-
son, núverandi settur
ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu og
fyrrv. ríkisskattstjóri og
skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu, fer
mikinn þessa dagana og
talar um að hækka þurfi
skatta hér hressilega,
ekki seinna en strax.
Álverin hér á landi fá
einnig athygli Indriða en
hann hefur haldið því fram að skatt-
tekjur af þeim séu litlar. Þessu hefur
verið hafnað með tilheyrandi rökum
enda höfum við miklar skatttekjur,
bæði beinar og óbeinar af starfsemi
þeirra.
Í þessu samhengi er ágætt að rifja
upp stærstu framkvæmd Íslands-
sögunnar, þ.e. virkjunarfram-
kvæmdir við Kárahnjúka. Á þeim
tíma var áðurnefndur Indriði rík-
isskattstjóri. Þá var rangur aðili
skyldaður til að halda eftir stað-
greiðslu skatts launamannanna og
var það gert á ábyrgð Indriða sem
ríkisskattstjóra. Þetta leiðir síðan til
þess að íslenska ríkið þarf að greiða
til baka innheimtan tekjuskatt að
upphæð 1,3 milljarða króna auk
vaxta, sem eru líka peningar! Með
öðrum orðum fékk íslenska ríkið
ekki krónu í tekjuskatt af vinnu
flestra erlendra starfsmanna við
þessa framkvæmd. Á
sama tíma segir mað-
urinn að starfsemi og
rekstur álvera skili litlum
sem engum skatttekjum í
ríkissjóð. Er þetta sóma-
samlegur málflutningur?
Um þessar mundir er
margt fólk að missa vinn-
una, tekur á sig skert
starfshlutfall eða lægri
laun. Auk þess hefur
matur ásamt annarri
nauðsynjavöru hækkað
mikið sem og afborganir
lána. Við þurfum ekki á
skattahækkunum Indriða að halda.
Við gætum hins vegar haft talsverð
not af þessum ríflega milljarði sem
við urðum af vegna embættisafglapa
hans.
Er það ekki almenn krafa í dag að
menn axli ábyrgð á gjörðum sínum?
Hvernig ætlar Indriði ráðuneyt-
isstjóri að axla ábyrgð sína á fram-
angreindu klúðri? Ætlar Stein-
grímur J. að hafa þennan mann í
eftirdragi ef VG komast í næstu rík-
isstjórn? Fólk á rétt á því að vita
það. Eiga menn ekki að bera neina
ábyrgð á gjörðum sínum af því þeir
eru vinstrisinnaðir og skýla pólitík
sinni á bak við „embættismanna-
grímuna“?
Skattahækkanir
Indriða í skjóli Stein-
gríms J. og VG
Eftir Valdimar Agnar
Valdimarsson
Valdimar Agnar
Valdimarsson
Höfundur er stjórnmála- og við-
skiptafræðingur og býður sig fram í 7.
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla
útgáfudaga aðsendar umræðu-
greinar frá lesendum. Blaðið áskil-
ur sér rétt til að hafna greinum,
stytta texta í samráði við höfunda
og ákveða hvort grein birtist í um-
ræðunni, í bréfum til blaðsins eða
á vefnum mbl.is.
Blaðið birtir ekki greinar, sem
eru skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofn-
ana, fyrirtækja eða samtaka eða
til að kynna viðburði, svo sem
fundi og ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið er undir liðnum
„Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu
mbl.is. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við grein-
um sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið, en næst þegar
kerfið er notað er nóg að slá inn
netfang og lykilorð og er þá not-
andasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur þeirri
hámarkslengd sem gefin er upp
fyrir hvern efnisþátt en boðið er
upp á birtingu lengri greina á
vefnum.
Nánari upplýsingar gefur
starfsfólk greinadeildar.
Móttaka
aðsendra
greina
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
k
a
2
0
0
9
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
T E P P I Á H E I M I L I Ð
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
VI
T
45
35
4
02
/0
9
VITA er lífið
Alicante
Flugsæti
Verð frá 39.900 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
fyrir flug fram og til baka, með flugvallarsköttum
– allar brottfarir í sumar.
Beint morgunflug
alla þriðjudaga frá 26. maí til 22. sept.
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Beint flug með Icelandair
í allt sumar til Alicante,
Mallorca og Tyrklands.
Kynntu þér ferðamöguleikana og skráðu þig
í ferðaklúbbinn á VITA.is
Eitt mikilvægasta verkefnið sem býður okkar nú er öflug
uppbygging atvinnulífsins og atvinnutækifæra m.a. með
aukinni nýtingu náttúruauðlinda til lands og sjávar. Grunn-
urinn að velferðarsamfélagi okkar er öryggi heimilanna og
traust þeirra gagnvart framtíðinni. Atvinnuleysi skapar
upplausn og óöryggi sem dregur allan mátt úr aukinni
verðmætasköpun samfélagsins. Grunnstoðir íslensks atvinnu-
lífs eru sjávarútvegur, iðnaður og ferðaþjónusta. Á þeim
greinum byggjum við önnur og fjölbreyttari atvinnutækifæri.
Gestir fundarins eru:
Árni Bjarnason, form. Farmanna- og fiskimannasambands
Íslands og Halldór Halldórsson, yfirmaður hjá Alcan.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti, allir velkomnir.
Opinn fundur um atvinnumál miðvikudaginn 11.
mars kl. 20 á kosningaskrifstofu Jóns í húsi Kraftvéla
að Dalvegi 6 í Kópavogi.
Tryggjum Jóni Gunnarssyni 3. sætið í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi 14. mars nk.
Jón Gunnarsson
Alþingismaður
www.jongunnarsson.is