Morgunblaðið - 11.03.2009, Qupperneq 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
Í dag kveð ég vin-
konu mína hana Ingi-
björgu Finnbogadótt-
ur. Við áttum margar góðar stundir
saman á fallega pallinum hennar og í
eldhúsinu í Stóragerðinu þar sem við
spjölluðum um alla heima og geima.
Ég gleymi seint góðu helginni sem
við áttum saman á Höfn í fyrra. Það
eru forréttindi að eiga góða nágranna
og svo sannarlega átti ég og fjöl-
skylda mín þá bestu sem hægt er að
hugsa sér.
Mikill söknuður var hjá okkur öll-
um þegar Ingibjörg og Ingólfur fluttu
til Hafnar. Mig langar til að þakka
fyrir allar gjafirnar og hugulsemina í
gegnum árin.
Mínar innilegustu samúðarkveðjur
til Ingólfs, dætra og fjölskyldna
þeirra.
Takk fyrir allt og allt og megi Guð
geyma þig, kæra Ingibjörg mín.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Kveðja.
Þín vinkona,
Björg.
Þegar við kveðjum nú kæra vin-
konu, hrannast upp minningar frá
samverustundum okkar. Ómetanleg-
ar minningar og dýrmætar.
Kynni okkar hófust er þau hjón
fluttu hingað með dæturnar sínar
tvær og bjuggu sér heimili í Kidda-
búðaríbúðinni, við hliðina á skrifstofu
Unnsteins, en hann sinnti þá embætti
fulltrúa sýslumannsins í Vík. Ingólfur
Ingibjörg
Finnbogadóttir
✝ Ingibjörg Finn-bogadóttir fædd-
ist í Reykjavík 29.
ágúst 1947. Hún lést á
hjúkrunarheimili
HSSA á Hornafirði
þriðjudaginn 24. febr-
úar síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá
Hafnarkirkju í
Hornafirði 7. mars.
réðist hingað sem yfir-
lögregluþjónn, svo
starfsins vegna höfðu
þeir mikil samskipti.
Ósjaldan heyrðist, í
gegnum nokkra veggi
úr eldhúsi þeirra
hjóna: „Unnsteinn,
komdu í kaffi.“ Það ylj-
ar að minnast þessara
ára, þeirra vina sem
við eignuðumst þarna
og allra glöðu stund-
anna sem við áttum
saman.
Mikil vinna og fé-
lagslíf blómstraði á þessum árum, í
ört vaxandi bæ.
Við Ingibjörg tókum þátt í síldar-
ævintýrinu á Höfðanum, saltað var
með gamla laginu og handagangur
mikill í öskjunni. Síðar vorum við
þátttakendur í þeim hópi sem byggði
upp síldarsöltunarstöðina Stemmu.
Unnum við Ingibjörg mikið saman
við söltunina og eftirlit með vinnslu.
Síðar réðist hún til starfa á skrifstof-
unni, betri starfsmaður vandfundinn.
Lionsklúbburinn var nýlega stofn-
aður, þar voru strákarnir báðir fé-
lagar og fylgdi þessu öllu líf og fjör.
Þeir félagarnir sungu í nýstofnuðum
Karlakórnum Jökli, annar bassi og
hinn bjartur tenór, lagið alltaf tekið á
góðum stundum og við konurnar góð-
ir hlustendur. Minnumst einnig
margra ógleymanlegra ferðalaga í
þessum félagsskap.
Ingólfur og Ingibjörg byggðu á
Hólabrautinni, á sama tíma vorum við
að koma upp sumarbústaðnum okk-
ar, lífsgleðin réði ríkjum, alltaf fannst
tími fyrir góðar stundir. Krakkarnir
og afi með í fjallaferðum, spjallað og
glaðst við arineld og ilm af nýjum viði.
Strákarnir tóku svo lagið sitt í lokin
og morgunsólin roðaði fjallatoppana.
Á Hólabrautinni ræktuðu þau hjón
garðinn sinn, í þess orðs bestu merk-
ingu. Enn ein lítil falleg stelpan kom-
in í barnarúmið, garðstofan full af
blómstrandi rósum, garðurinn skipu-
lagður faglega, hinum ýmsu plöntum
potað niður með alls konar óskiljan-
legum latínunöfnum. Miklir fagur-
kerar þau hjón og bar heimilið þeirra
þess merki. Allra stundanna með vin-
um okkar minnumst við með þakk-
læti í huga.
Tíminn leið, Ingibjörg og Ingólfur
fluttu sig um set og bjuggu á Hvols-
velli. Enn var ræktaður garðurinn og
margverðlaunaður.
Aftur fluttu þau sig hingað í
Hornafjörðinn fyrir tveimur árum.
Var þá hafin barátta við erfiðan sjúk-
dóm, barátta sem Ingibjörg háði af
æðruleysi og óbilandi kjarki, með
Ingólf sér við hlið.
Þau spiluðu sitt stóra viðfangsefni
eins og fallegt tónverk, samstiga sem
fyrr.
Kærri vinkonu þökkum við sam-
fylgdina.
Ástvinunum öllum sendum við
dýpstu samúðarkveðjur.
Ljúfur aftan klukkna kliður
kveðju ber um hæð og dal
Yfir hauður færist friður
fögur skarta í himna sal
Stjörnuljósin loga björtu
ljóm’a í næturhúmi svörtu
Friðarnótt í faðmi þér
finnum hvíld og unað vér
þar til röðull risinn er.
(Höf. ók.)
Hildigerður og Unnsteinn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Elskulegur bróðir okkar,
BJARNI ÓLAFSSON,
Pálsgarði 2,
Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga föstudaginn
6. mars.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
21. mars kl. 14.00.
Anna Ólafsdóttir,
Sigurður Rúnar Ólafsson,
Sólveig Mikaelsdóttir,
Berglind Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN R. EINARSDÓTTIR,
Efstaleiti 14,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 7. mars.
Útför verður auglýst síðar.
Einar Már Sigurðarson, Helga M. Steinsson,
Rúnar Geir Sigurðsson, Amanda J . Scarlett,
Sigurður Örn Sigurðarson, Ágústína G. Pálmarsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HELGI HERSVEINSSON,
Sólvangi,
áður Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði
laugardaginn 7. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
M. Hera Helgadóttir, Reimar Georgsson,
Kristján A. Helgason, Jóna S. Marvinsdóttir,
Helgi Hrafn Reimarsson,
Arnar Marvin Kristjánsson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BENJAMÍN JÓSEFSSON
húsgagnasmíðameistari,
Benni í Augsýn,
Rimasíðu 20,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
13. mars kl. 13.30.
Gísli V. Benjamínsson, Marta Jensen,
Hildur Benjamínsdóttir,
Ólöf Vera Benjamínsdóttir,
Sólrún Stefanía Benjamínsdóttir, Kjartan Tryggvason,
Katrín Benjamínsdóttir, Oddur Helgason,
Halldóra Lilja Benjamínsdóttir, Bragi Finnbogason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR HELGI ÞÓRÐARSON
læknir,
Smáraflöt 5,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ
fimmtudaginn 12. mars kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin.
Lóa Stefánsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir, Jóhann Tómasson,
Vilborg Guðmundsdóttir, Einar Indriðason,
Heimir Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SJÖFN KARÓLÍNA SMITH,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
lést mánudaginn 9. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigurjón Eðvarð Sigurgeirsson,
Magnús Ingimundarson, Brynja Ásta Haraldsdóttir,
Sverrir Ingimundarson, Steinþóra Ágústsdóttir,
Laufey Anna Ingimundardóttir,
Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir,
Þóra Sigurjónsdóttir,
Árný Sigurjónsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn,
HJARNAR BECH,
Esjugrund 53,
Kjalarnesi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudag-
inn 5. mars.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Hulda Bech.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem birt-
ast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda
lengri grein. Engin lengdarmörk
eru á greinum sem birtast á vefnum.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar