Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 38
38 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ finnum eðlilegar manneskjur
sem þurfa samt kannski einhverja
smá aðstoð. Þetta er ósköp venjulegt
fólk í öllum stærðum og gerðum sem
við heimsækjum,“ segir Karl Bernd-
sen, umsjónarmaður Nýs útlits, sjón-
varpsþáttar sem hefur göngu sína á
SkjáEinum í næstu viku. Í hverjum
þætti verður einn Íslendingur tekinn
fyrir, og útliti hans breytt frá A til Ö.
„Við kíkjum inn í fataskápinn hjá
fólkinu og fáum aðeins að kynnast
því sem persónum. Svo förum við og
verslum, kaupum ný föt og gerum al-
gjöra yfirhalningu, bæði hár, förðun
og fleira,“ segir Karl sem leggur þó
ekki bara áherslu á ytra útlit í þátt-
unum.
„Við blöndum saman bæði innri og
ytri fegurð, þannig að við tölum bæði
við lýtalækna, húðlækna, tannlækna
og svo allt yfir í sálfræðinga. Sem
sagt; alla þá sem hjálpa okkur við að
öðlast innri og ytri fegurð.“
Líka karlar
Margir þekkja eflaust bandarísku
sjónvarpsþættina Extreme Makeo-
ver sem bera sannarlega nafn með
rentu – þar leggst fólk undir hnífinn
til þess eins að öðlast „betra“ útlit.
Ekkert slíkt verður þó á ferðinni í ís-
lensku þáttunum. „Þetta verður ekk-
ert svona „extreme“, þótt þetta muni
vissulega koma „extreme“ út. Við
getum gert rosalega mikið við fólk án
þess að það leggist undir hnífinn, allt
frá undirfötum upp í hárgreiðslu.
Svo munum við kynna allt sem er í
boði varðandi útlitið, líkamsrækt,
jóga og fleira í þeim dúr,“ útskýrir
Karl.
Ein manneskja verður tekin fyrir í
hverjum þætti og fylgir Karl henni
eftir í um það bil viku.
„Í sama þætti tökum við samt fyrir
önnur andlit, þar sem ég er að kenna
förðun og fleira. Þannig að fólk fær
mikla fræðslu út úr þessu,“ segir
Karl, en til að byrja með verða tíu
þættir framleiddir. Að sögn umsjón-
armannsins hafa mörg hundruð um-
sóknir nú þegar borist þættinum og
því ljóst að færri munu komast að en
vilja. „Við erum bara búin að velja
fyrstu tvær manneskjurnar sem við
tökum fyrir þannig að fólk getur
haldið áfram að senda inn umsóknir.
Ég geri ráð fyrir að umsóknum muni
fjölga enn frekar eftir að þættirnir
fara í sýningar því þá mun fólk sjá að
það þarf ekki að striplast fyrir fram-
an alþjóð.“
Aðspurður segir Karl að karlmenn
geti líka sótt um að koma í þáttinn.
„Ef einhver er grár og gugginn
þarna úti er um að gera að sækja um.
Ég held að við herrarnir þurfum að-
stoð alveg eins og konurnar,“ segir
hann.
Fyrsti þáttur verður á dagskrá
næstkomandi þriðjudag, 17. mars.
„Mér finnst að enginn megi missa af
þessu, því ég legg mesta áherslu á að
fólk læri eitthvað. Mín hugsun er sú
að þetta geti orðið að kennsluefni,“
segir Karl að lokum.
Íslendingar í yfirhalningu
Útliti Íslendinga breytt frá A til Ö í nýjum sjónvarpsþætti á SkjáEinum
Áhersla á bæði innri og ytri fegurð Fleiri hundruð umsókna hafa borist
Nýtt útlit Karl Berndsen, umsjónarmaður þáttanna, leggur áherslu á að
þeir séu fyrir alla, bæði karla og konur á öllum aldri.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
GOÐSÖGNIN Jonathan Richman
heillaði gesti Innipúkans upp úr
skónum árið 2005 og snýr nú aftur til
tónleikahalds 1. apríl næstkomandi –
og það á eigin kostnað. Grímur Atla-
son hafði veg og vanda að heimsókn
Richmans síðast og aðstoðar hann
nú eftir þörfum. Eitt af því sem
Richman langar óskaplega mikið að
gera í þessari heimsókn sinni er að
spila í skóla og var þess farið á leit
við MH að Richman myndi spila í
hinum sögufræga og jaðarvæna
Norðurkjallara. MH-ingar gáfu
þetta hins vegar frá sér. Einhvern
tíma hefði það þótt eðlilegasti hlutur
í heimi að einmitt þessi tónlistar-
maður léki í einmitt þessum skóla.
„Undarlegt,“ segir Grímur að-
spurður, „En ég er að leita hófanna
annars staðar.“
Grímur lýsir síðustu heimsókn
Richmans sem ótrúlegri.
„Þetta er án efa merkilegasti mað-
ur sem ég hef kynnst.“ segir hann.
„Þegar hann kom hérna síðast var
Chan Marshall, Cat Power, hérna
líka vegna Innipúkans og stríddi þá
við óhemju rætna áfengisfíkn. Eftir
að hafa verið dagsstund með Richm-
an var eins og það hefði bráð af
henni og hún hefur verið á beinu lín-
unni síðan!“
Það er Ólöf Arnalds sem hitar upp
fyrir Richman.
„Já. Hann hringdi í hana sjálfur
og reddaði því,“ segir Grímur og
hlær. Miðasala á tónleikana er hafin
á midi.is. Einungis 200 miðar eru í
boði og er aðgangseyrir 2.000 krón-
ur. Þess má geta að Richman sjálfur
verður í hurðinni.
Norðurkjallari fúlsaði
við Jonathan Richman
Náttúrubarn Jonathan Richman forðast firringu nútímaþjóðfélagsins.
Gleðigjafinn heldur tónleika á Kaffi Rósenberg 1. apríl
Karl Berndsen er hárgreiðslu-
meistari og förðunarfræðingur.
Hann hefur starfað í Lundúnum
undanfarin 12 ár og unnið með
frægu fólki á borð við Naomi
Campbell, tískuhönnuðunum
Stellu McCartney og John Gal-
iano og hljómsveitinni Sugaba-
bes. Hann býr á Íslandi og rekur
Beauty Bar í Kópavogi.
Með fræga fólkinu
Fólk
ÞEIR sem fóru í Hollywood um helgar með
mynd af bílnum í vasanum í upphafi níunda ára-
tugarins geta nú farið að pússa gömlu dansskóna
því efnt hefur verið til Hollywood-balls á Broad-
way 4. apríl næstkomandi.
Hollywood var skemmtistaður staðsettur við
Ármúla 5. Hann var opinn á árunum 1978-1987
og þangað fóru þeir sem unnu diskótónlist.
„Ég fór að setja myndir frá Hollywood inn á
Facebook-síðuna mína og í kjölfar þess fór fólk
að rifja upp gömlu Hollywood-stemninguna. Þá
var stofnaður sérstakur Facebook-hópur, Holly-
wood...1983!!, en þar geta allir þeir sem sóttu
staðinn skráð sig. Þátttakan í honum er svo góð
að það var óumflýjanlegt að efna til dansleiks til
heiðurs þessum árum,“ segir Valþór Ólason sem
var skemmtanastjóri Hollywood árið 1986 og er
framkvæmdastjóri ballsins á Broadway.
Það voru hjónin Ólafur Laufdal og Kristín
Ketilsdóttir sem áttu og ráku Hollywood og
verða þau heiðursgestir samkomunnar. Margt
verður á dagskrá, m.a. munu módel úr Módel’79,
sýna föt frá ’80 tímanum úr Hollywood, Herbert
Guðmundsson taka lagið og bump-dans verður
sýndur. Vilhjálmur Ástráðsson, sem var að-
alplötusnúður Hollywood, stjórnar svo diskóteki
fram á nótt ásamt fleirum.
Seldir verða um 2000 miðar á ballið, forsala
fyrir þá sem eru í Facebook-hópnum hefst í dag
en almenn forsala á miðum verður 13. og 14.
mars á Broadway. Aldurstakmark á ballið er 30
ár. ingveldur@mbl.is
Hollywood-árin rifjuð upp á Broadway
Gleði Það voru margar stúlkurnar sem kepptu
um titilinn Ungfrú Hollywood.
Allt lítur út fyrir að Gla-
stonbury-hátíðin í ár verði með
þeim glæsilegri sem haldnar hafa
verið í rúmlega 30 ára sögu hátíð-
arinnar. Þegar hefur verið staðfest
að Bruce „The Boss“ Springsteen
troði upp, sem og eilífðarkempan
kanadíska Neil Young en þar fyrir
utan er öruggt að Lily Allen og
endurkomu-tónleikar Blur muni
laða að fjöldann allan af tónleika-
gestum sem koma víða að. Nú síð-
ast tilkynntu aðstandendur hátíð-
arinnar að indí-rokksveitin Doves
muni koma fram og Florence and
the Machine en síðast en ekki síst
Emilíana Torrini.
Emilíana er nú á tónleika-
ferðalagi um Bretlandseyjar og
spilar í Dublin á Írlandi í kvöld. Í
lok þessa mánaðar flýgur hún
vestur um haf og treður upp í
helstu borgum Bandaríkjanna en
snýr svo aftur til Bretlandseyja
þar sem fjölmargir tónleikar hafa
verið skipulagðir fram á mitt sum-
ar.
Glastonbury-hátíðin fer fram í
Suð-vestur-Englandi síðustu
helgina í júní og mun vera stærsta
útihátíð heims. Tæplega 140 þús-
und manns sóttu hátíðina í fyrra.
Emilíana Torrini á Gla-
stonbury-hátíðinni
Nei, þetta er ekki grín. Selma
Björnsdóttir hyggst fylla skarð
Regínu Óskar Óskarsdóttur (sem
komin er sjö mánuði á leið) þegar
Eurobandið kemur fram í Sjall-
anum á Akureyri um næstu helgi.
Eurobandið stendur nú annars í
ströngu við að hljóðrita tyrkneskt
lag sem vann keppnina árið 2003 og
heitir „Everyway that I can“. Já,
hver man ekki eftir því.
Það er að sjálfsögðu Evróvisjón-
pinninn Örlygur Smári sem vinnur
lagið ásamt hljómsveitinni en von
er á því í spilun á útvarpsstöðv-
unum á næstu vikum. Eurobandið
ætlar sér stóra hluti í sumar og
stefnir á að halda tónleika í öllum
helstu kaupstöðum landsins.
Selma Björns gengur
í Eurobandið
Þeir sem hafa áhuga á að fá að-
stoð frá Karli geta sent umsókn
með mynd á netfangið nyttut-
lit@skjarinn.is.