Morgunblaðið - 11.03.2009, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG hugsa að þetta sé í fyrsta
skipti sem íslenskt og franskt leik-
hús vinna saman að svona uppsetn-
ingu,“ segir Arthur Nauzyciel,
franskur leikstjóri Sædýrasafnsins,
leikverks sem frumsýnt verður í
Þjóðleikhúsinu 27. mars næstkom-
andi. Um er að ræða nýtt verk eftir
eina þekktustu skáldkonu Frakka í
dag, Marie Darrieussecq, en í kjöl-
far uppsetningar á verkinu hér á
landi mun sami hópur setja það upp
í ríkisleikhúsinu í Orléans í Frakk-
landi í maí.
Mikil reynsla
Í tilefni af uppsetningu verksins
hér á landi kom hópur fjörutíu
menntaskólanema frá Orléans til
landsins til þess að fylgjast með æf-
ingum á verkinu, og kynna sér ís-
lenskt leikhúslíf í leiðinni.
„Við gerðum þetta í Frakklandi í
fyrra. Þá fylgdi hópur mennta-
skólanema sýningu frá upphafi til
enda, þau fylgdust með æfingum og
sum þeirra aðstoðuðu okkur meira
að segja. Svo komu þau á frumsýn-
inguna,“ segir Nauzyciel, en það var
Orléans-hérað sem fjármagnaði
ferðalag nemendanna hingað til
lands að stærstum hluta.
„Þetta er mikil reynsla fyrir
krakkana, að kynnast leikhúsinu og
fá að fylgjast með leikverki verða að
veruleika. Þau fá mikinn áhuga á
leikhúsi í kjölfarið, sem er virkilega
gott fyrir þau,“ segir Nauzyciel.
Hittu Barða
Nemendurnir sem komu hingað
til lands eru á aldrinum 15 til 18 ára.
Margir þeirra voru að fara út fyrir
heimalandið í fyrsta skipti, og flestir
þeirra höfðu aldrei farið í leikhús
áður en að ferðinni hingað til lands
kom. „Við unnum með þremur
bekkjum í fyrra og flestir þeirra
nemenda höfðu ekki heldur komið í
leikhúsið áður. En eftir að þau fá að
koma og fylgjast með okkur kviknar
áhuginn,“ útskýrir leikstjórinn.
Hópurinn kom hingað til lands á
mánudaginn í síðustu viku, og hélt
svo af landi brott viku síðar. Dag-
skráin var þétt og tengdist hún að
mestu leyti leikhúsi á einn eða ann-
an hátt. „Þau fengu til dæmis að
hitta tónskáldið, Barða Jóhannsson,
sem semur tónlistina við verkið, auk
þess sem þau hittu Ernu Ómars-
dóttur danshöfund. Fyrir mánuði
hittu þau líka Marie Darrieussecq,
höfund verksins, heima í Frakk-
landi. Þannig að þau hitta alla sem
koma að verkinu á einn eða annan
hátt,“ segir Nauzyciel, en dag-
skránni lýkur svo í maí þegar hóp-
urinn sér verkið í heimabæ sínum.
Aðspurður segir leikstjórinn
verkefni sem þetta hafa mikið að
segja fyrir svona hóp. „Eftir þetta
verkefni í fyrra gerðum við könnun
á því hvort leikhúsáhuginn hafi fylgt
krökkunum, og svo reyndist vera.
Mörg þeirra fóru í kjölfarið í skóla
sem voru með leikhústengda
áfanga, og þau fóru líka að taka for-
eldra sína með sér í leikhúsið þann-
ig að áhuginn smitar út frá sér.“
Sædýrasafnið fjallar um tvær
fjölskyldur sem neyðast til að dvelja
saman við undarlegar aðstæður á
sædýrasafni. Með aðalhlutverk í
verkinu fara þau Björn Hlynur Har-
aldsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Ívar
Örn Sverrisson, Margrét Vilhjálms-
dóttir, Stefán Hallur Stefánsson,
Valur Freyr Einarsson og Vigdís
Hrefna Pálsdóttir. Í Frakklandi
verður verkið með frönskum texta.
Sædýrasafnið og Frakkarnir fjörutíu
Franskir menntaskólanemar kynntu sér
íslenskt leikhúslíf í síðustu viku
Morgunblaðið/Ómar
Á æfingu Damien Jalet, belgískur dansari sem tekur þátt í uppfærslunni, og leikararnir Margrét Vilhjálmsdóttir,
Björn Hlynur Haraldsson og Stefán Hallur Stefánsson. Leikmyndin í bakgrunni er eftir Giulio Licthner.
„ÍSLAND er rosalega ólíkt Frakk-
landi, þetta er allt annar heimur,“
segir Paolo Michaut, einn frönsku
menntaskólanemanna um heim-
sóknina hingað til lands. Það var
ansi kalt í veðri vikuna sem á heim-
sókninni stóð, en þrátt fyrir að
vera ekki mjög vön slíku veðri
kipptu Frakkarnir sér ekki upp við
það.
„Við komum nú ekki bara til Ís-
lands út af leikhúsinu, heldur líka
til þess að skoða landslagið og
svona,“ bætir Paolo við.
Krakkarnir eiga það allir sam-
eiginlegt að hafa fengið aukinn
áhuga á leikhúsi á undanförnum
mánuðum.
„Við erum öll í námskeiðum í
skólanum sem tengjast leikhúsinu.
Ríkisleikhúsið í Orléans vinnur líka
með skandinavískt þema um þessar
mundir og ferðin tengist því,“ út-
skýrir Sarah Moulinier og bætir því
við að Íslandsferðin hafi aukið
áhuga þeirra á leikhúslífi til mikilla
muna. Þar skipti miklu máli að fá
innsýn inn í þennan sérstaka heim
til þess að skilja betur út á hvað
leikhús gengur í raun og veru.
„Það er mjög áhugavert að sjá
fagmenn að störfum á hverjum
degi, eins og við höfum gert í þess-
ari ferð. Það sýnir manni hvernig á
að fara að þessu,“ segir Alice
Bermadac og bætir því við að hún
hafi verið mjög ánægð með ferðina.
„Það er líka mjög merkilegt að
sjá hvernig íslenskt leikhús vinnur
í samanburði við það franska. Það
er töluverður munur þar á,“ segir
Paolo, en þetta var fyrsta Íslands-
heimsókn nemendanna þriggja.
Áhugavert að sjá fagmenn vinna
Morgunblaðið/Ómar
Í leikhúsinu Þau Sarah Moulinier, Paolo Michaut og Alice Bermadac voru
afskaplega ánægð með heimsóknina til Íslands og í Þjóðleikhúsið.
ATH. STUTTMYNDIN
ALDREI STRÍÐ Á ÍSLANDI
EFTIR BRAGA ÞÓR HINRIKSSON
VERÐUR SÝND Á UNDAN.
VINSÆLASTA OG ÁN EFA EIN ALLRA BESTA
KVIKMYND CLINT EASTWOOD FYRR OG SÍÐAR!
ENTERTAINMENT WEEKLY 91%
LOS ANGELESTIMES 90%
THE NEWYORKTIMES 90%
EMPIRE - ANGIE ERRICO- S.V. , MBL
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
DANIEL CRAIG ER MAGNAÐUR
Í HLUTVERKI SÍNU
SEM ANDSPYRNUFORINGI Í
SÍÐARI HEIMSTYRJÖLDINNI.
ÓTRÚLEG SAGA BYGGÐ
Á SÖNNUM ATBURÐUM
NÝ VINNA? VONANDI
NÝR UNNUSTI? KANNSKI
NÝTT VESKI? ALGJÖRLEGA!
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
BYGGT Á METSÖLUBÓKINNI
A JERRY BRUCKHEIMER PRODUCTION 13
M.A.
BESTA MYND
BESTI LEIKSTJÓRI -
D. FINCHER
BESTI LEIKARI -
BRAD PITT
BESTA HANDRIT
WALL STREET JOURNAL
100/100
TIME
100/100
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS- S.V. ,MBL. - L.I.B.,TOPP5.IS
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!EKKI MISSA
AF ÞESSARI!SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
HANN ELSKAR
ATHYGLI
HANN ER
RÓMANTÍSKUR
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
SAMbio.is
Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
PREMIERE NEWYORK POST
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
FRÁ LEIKSTJÓRA
THE LAST
SAMURAI OG BLOOD
DIAMOND
TILNEFNDTIL
ÓSKARSVERÐ-
LAUNA
ALLT SEM HÚN ÞRÁÐI
VAR BARA SMÁYFIRDRÁTTUR
ISLA FISHER
GRAN TORINO kl. 8 -10:20 B.i. 12 ára
SHOPAHOLIC kl. 8 LEYFÐ
DEFIANCE kl. 10:20 B.i. 16 ára
GRAN TORINO kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
SHOPAHOLIC kl. 8 LEYFÐ
BENJAMIN BUTTON kl. 10:10 B.i. 12 ára
PINK PANTHER 2 kl. 8 LEYFÐ
FANBOYS kl. 10:10 LEYFÐ
SHOPAHOLIC kl. 8 LEYFÐ
FRIDAY 13TH kl. 10:10 B.i. 16 ára
AKUREYRI SELFOSSIKEFLAVÍK
GRAN TORINO kl. 5:20D - 8D - 10:40D B.i. 12 ára D
GRAN TORINO kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára VIP
SHOPAHOLIC kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
DEFIANCE kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
FRIDAY THE 13TH kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
DESPEREAUX ísl. tal kl. 5:50 LEYFÐ
CHIHUAHUA ísl. tal kl. 5:50 LEYFÐ
BENJAMIN BUTTON kl. 8:30 B.i. 7 ára
ROLE MODELS kl. 5:50 B.i. 12 ára
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
GRAN TORINO kl. 6D - 8D - 10:40D B.i. 12 ára DIGITAL
SHOPAHOLIC kl. 6D - 8:30D LEYFÐ DIGITAL
DEFIANCE kl. 10:40D B.i. 16 ára DIGITAL
CHIHUAHUA kl. 6 LEYFÐ
BENJAMIN BUTTON kl. 8 B.i. 7 ára
KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA,
SÝND Í ÁLFABAKKA
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
SÝND
MEÐ ÍS
LENSK
U
OG EN
SKU T
ALI
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Gæða málning á frábæru verði
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sætúni 4 Sími 517 1500
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.
KTF Byggingavörur ehf · Síðumúla 31 · 108 Reykjavík · Sími 517 1500
Woodex á Íslandi frá árinu 1977.
Löngu landsþekkt fyrir endingu og gæði.