Morgunblaðið - 11.03.2009, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 70. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
Forystugreinar: Lifað á verðbótum?
| Rétt og eðlilegt
Ljósvakinn: Bítnikkinn Bourdain
Staksteinar: Keppt um auðu
atkvæðin
Pistill: Óvissa í ódýrri borg
2"'*3$"-)*
4566789
$:;869<=$>?<4
@7<7474566789
4A<$@@8B<7
<58$@@8B<7
$C<$@@8B<7
$19$$<!D87<@9
E7>7<$@:E;<
$48
;187
,;F76=;<=9+19F$@9>:715=G8A<=
H
H
H H H H H H
=" !'
H
H
H H
H
H
H
H
H
,@#0 $ H
H H
H
H H
H
H
Heitast 7° C | Kaldast 1° C
Austan 10-18 m/s og
slydda fram eftir degi
norðanlands og aust-
an, annars hægari og
smáskúrir syðra. » 10
Menntaskólinn á
Laugarvatni setur
upp leikrit og leiðir
þar saman konung
poppsins og drottn-
ingu kántrísins. »41
LEIKLIST»
Dolly og
Jackson
MYNDLIST»
Rýnt í myndverk Birgis
Andréssonar. »37
Vísindaskáldsögur
Jeanette Winterson
spyrja grundvall-
arspurninga um eðli
og eigindir mann-
skepnunnar. »40
BÆKUR»
Hver erum
við?
TÓNLIST»
Jonathan Richman flytur
sjálfan sig inn. »38
TÓNLIST»
Selma er gengin í
Eurobandið. »38
Menning
VEÐUR»
1. Eldur í Síðumúla
2. Fimm manna rannsókn brandari
3. Slökkvilið að ná tökum á eldi
4. Vaxtabætur hækka um 25%
Íslenska krónan stóð í stað
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FJÖRUTÍU manna hópur franskra mennta-
skólanema var staddur hér á landi í síðustu
viku í þeim tilgangi að kynna sér íslenskt leik-
húslíf. Fékk hópurinn meðal annars að fylgjast
með uppsetningu á Sædýrasafninu, frönsku
leikverki sem frumsýnt verður í Þjóðleikhús-
inu í lok mánaðar. Á myndinni má sjá hluta
hópsins ásamt leikurum og öðrum aðstand-
endum Sædýrasafnsins. | 39
Fjörutíu franskir menntaskólanemar kynntu sér íslenskt leikhúslíf
Í Sædýrasafni Þjóðleikhússins
Morgunblaðið/Ómar
NÝR sjónvarps-
þáttur, Nýtt útlit,
hefur göngu sína
á Skjá einum í
næstu viku. Í
þættinum að-
stoðar umsjón-
armaður hans,
Karl Berndsen,
Íslendinga við að
öðlast nýtt útlit.
„Þetta verður ekkert svona
„extreme“, þótt þetta muni vissu-
lega koma „extreme“ út,“ segir
Karl. | 38
Breytir útliti
Íslendinga
Karl Berndsen
„ÞETTA verður æðislegt, skoða
myndirnar aftur og aftur … hlakka
til að hitta fólkið!“ Þannig hljóðar
ein athugasemdin á síðu Face-
bookhóps sem heldur minningu
skemmtistaðarins Hollywood á loft.
Meðlimir eru nú rúmlega 1.700 og
haldið verður roknaball í apríl á
Broadway þar sem árin gömlu og
góðu verða rifjuð upp. | 38
Gamla góða
Hollywood
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„UNDIR niðri ríkir eflaust í mér
meiri spenna en stundum áður vegna
þessa áfanga,“ sagði Margrét Lára
Viðarsdóttir, landsliðskona í knatt-
spyrnu, við Morgunblaðið í gær en
hún leikur í dag sinn 50. A-landsleik
þegar íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu leikur við Kínverja um 5.
sætið í Algarve-bikarnum í Portúgal.
Margrét Lára verður tíunda lands-
liðskonan frá upphafi til að ná þess-
um áfanga, þar af eru þrír núverandi
samherjar hennar í landsliðinu.
„Það er mikill heiður fyrir mig að
hafa notið þess trausts að fá að leika
fimmtíu landsleiki fyrir hönd þjóð-
arinnar. Fyrst og fremst er gaman
að áfanga sem þessum og vonandi
getum við haldið upp á daginn með
góðum sigri á Kína,“ segir Margrét
Lára sem hefur verið einstaklega
markheppin á ferlinum, skorað 43
mörk í 49 landsleikjum.
Margrét Lára segist muna vel eft-
ir fyrsta landsleik sínum sem var við
Ungverja á Laugardalsvelli 14. júlí
2003. Þá kom hún inn á sem vara-
maður fyrir Málfríði Sigurðardóttur
á 66 mínútu. „Leikurinn er mjög
skýr í minningunni. Þá skoraði ég
með minni fyrstu snertingu við bolt-
ann. Mér finnst vera mjög stutt síð-
an þetta var en eigi að síður eru leik-
irnir að verða fimmtíu,“ segir
Margrét Lára Viðarsdóttir .
Heiður fyrir mig
Margrét Lára Viðarsdóttir leikur sinn 50. A-landsleik í knatt-
spyrnu Skoraði með sinni fyrstu snertingu í fyrsta leiknum
Algarvephotopress
Á fullu Margrét Lára Viðarsdóttir
leikur sinn 50. landsleik í dag.
Í HNOTSKURN
»Katrín Jónsdóttir, fyrirliðiíslenska landsliðsins í
knattspyrnu, hefur leikið
flesta A-landsleiki, 81.
»Margrét Lára Viðarsdóttirvar kjörin íþróttamaður
ársins 2007 af Samtökum
íþróttafréttamanna. Hún var
fjórða konan sem hlaut þá
nafnbót.
»Þrátt fyrir mikla mark-heppni með íslenska lands-
liðinu hefur Margrét Lára
ekki skorað í þremur síðustu
landsleikjum.
SKOÐANIR»
Skoðanir
fólksins
’Allt kom fyrir ekki. Eftir nokkur árgafst ég upp og enn greiðir fólksem stríðir við mikla fötlun vegna slysaskatt sem það á ekki að greiða sam-kvæmt kjarasamningi sínum.
Nú sýnist mér stefna í það að allt fólk
sem metið hefur verið til örorku og sem
á fjármagnstekjur muni í nánustu fram-
tíð sæta skerðingu bóta frá TR. » 26
AUÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR
’Það er mat höfundar að hvorkihvalveiðisinnar né andstæðingarhvalveiða þurfi að kvíða framtíðinnihvað varðar Ísland. Hin vísindalegugögn sem liggja fyrir um stærð hvala-
stofna og hinar rammgerðu reglur og
eftirlitskerfi sem búin hafa verið til,
kalla á að hvalveiðar verði stundaðar
aftur. » 26
HÚNI HEIÐAR HALLSSON
’Á óvissutímum er þörf á fram-sýni, jákvæðni og hvatningu fráráðherrum atvinnuvega í stað yfirlýs-inga, sem skapa ótta og neikvæðni.Verslunin er sú atvinnugrein sem
einna mestu skilar til landsframleiðsl-
unnar og sú atvinnugrein sem hvað
flestum veitir atvinnu í þessu landi. Ís-
lensk verslun er nefnilega und-
irstöðuatvinnugrein. » 27
ANDRÉS MAGNÚSSON
’Femínistafélag Íslands er ekkertað skafa utan af því frekar en fyrridaginn. Að mati þess brýtur dómurinngegn lýðræði og samþykkir vænd-issölu þriðja aðila. Harmar félagið að
Hæstiréttur skuli komast upp með
mannréttindabrot og krefst uppstokk-
unar í réttinum. » 28
BRYNJAR NÍELSSON
’Nú krefjumst við þess að fá réttarupplýsingar um Kárahnjúkavirkj-un. Er svo mikill hagnaður af henni aðþað sé von til þess að hún borgi þaðtjón sem hún veldur? Hvaða virð-
isauka skilar hún ? Voru efasemdir
Skipulagsstofnunar ríkisins á rökum
reistar? » 29
SIGURÐUR H. JÓHANNSSON