Morgunblaðið - 19.03.2009, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 9. M A R S 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
76. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
SKRIFSTOFUBLAÐIÐ
fylgir Viðskiptablaði
Morgunblaðsins
í dag
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
«KLIKKHAUSAR AÐ VESTAN
TROÐA UPP Á ROKK-
HÁTÍÐ ALÞÝÐUNNAR
«90 METNAÐARFULLIR NEMENDUR
ÞAÐ ER AÐ KOMA
Í HLÍÐASKÓLA
STJÓRN Lögmannafélagsins legg-
ur til að gjaldþrotalögum verði
breytt þannig að hægt verði að fá
skipun skiptastjóra endurskoðaða,
t.d. af Hæstarétti.
VIÐSKIPTI
Skipun fáist
endurskoðuð
ERLENDIR kröfuhafar eru reiðu-
búnir að höfða mál gegn íslenskum
stjórnvöldum og bönkunum vegna
neyðarlaganna. Dómsmál gæti gert
nýju bönkunum erfitt fyrir.
Tilbúnir að stefna
ríki og bönkum
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
LANDHELGISGÆSLAN mun nota
þyrlur og flugmenn Norðurflugs í ákveð-
in verkefni samkvæmt samningi sem
verður undirritaður á allra næstu dögum.
Forstjóri Land-
helgisgæslunnar
segir um sparnað-
araðgerð að ræða.
Samninga-
viðræður eru á
lokastigi að sögn
Georgs Lár-
ussonar forstjóra.
„Þeir eru með
þrjár þyrlur og
það gæti hugs-
anlega verið hagkvæmara að leigja af
þeim þyrlur þegar ekki þarf á sérhæfð-
um leitar- og björgunarþyrlum að halda,
frekar en að nota okkar.“
Hann segir þyrlur Norðurflugs ekki
nýtast nema að takmörkuðu leyti. „Þær
eru ekki með spili, afísingarbúnaði, leit-
arljósum eða infrarauðum myndavélum
og geta ekki farið út á sjó nema mjög
stutt. Þær gætu þó hentað í flug sem er
mjög nálægt strönd, t.d. leitar- eða eft-
irlitsflug eða flug fyrir lögreglu.“ Hann
bætir því við að Landhelgisgæslan eigi
bara eina vél og borgi leigugjald fyrir
hvern tíma sem aðrar vélar eru notaðar.
Því gæti í einhverjum tilfellum verið hag-
kvæmara að nota vél frá Norðurflugi.
Georg neitar því að þarna sé einkafyr-
irtæki að taka að sér löggæsluverkefni.
Fulltrúi frá Landhelgisgæslunni verði
alltaf um borð. „Þeir munu þá flytja okk-
ar löggæslumenn eða okkar flugmenn
fljúga þeirra vélum. Í raun skiptir engu
máli hver flýgur vélinni heldur hverjir
stýra aðgerðum.“
Hann segir um hagræðingaraðgerð að
ræða þótt ekki sé ljóst hversu miklum
sparnaði hún skili. Norðurflug verði ekki
með sérstaka vakt fyrir Landhelgisgæsl-
una, heldur muni notkunin á þeirra vél-
um ráðast af aðstæðum hverju sinni .
Norðurflug
flýgur fyrir
Landhelgis-
gæsluna
Gert vegna sparnað-
ar hjá Gæslunni
Verkefni Norðurflug
flýgur fyrir Gæsluna.
„FRAMMISTAÐA allra leik-
manna var frábær, þeir eiga heiður
skilinn fyrir frábæran leik við afar
erfiðar aðstæður,“ sagði Guð-
mundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
eftir sigur Íslands, 29:26, á Make-
dóníumönnum í undankeppni Evr-
ópumeistaramótsins. Leikið var
fyrir framan 8.000 áhorfendur í
Skopje og er þetta í fyrsta sinn sem
íslenska landsliðið vinnur heima-
menn þar í borg. »Íþróttir
Frábær frammistaða
ÓVÍST er
hvort meint brot
í starfsemi fimm
lífeyrissjóða, sem
sérstakur sak-
sóknari fjallar nú
um, eru refsi-
verð. Ástæðan er
breyting á lögum
um starfsemi líf-
eyrissjóða sem gerð var fyrir jól til
að taka á afleiðingum bankahruns-
ins. Hafi fjártjón orðið gilda þó
reglur um skaðabótaábyrgð. »24
Engin refsing vegna fjár-
festinga lífeyrissjóðanna?
FRAMLEIÐSLA
smærri páskaeggja
verður aukin í ár. Sæl-
gætisgerðin Freyja
ætlar að leggja
áherslu á egg í
stærð fjögur en í
fyrra var mest
framleitt af eggjum
í stærð níu og tíu.
Vegna hækkunar á
hráefnisverði verða
eggin 20% dýrari en í fyrra en
framleiðendur lofa að minnka ekki
innihaldið. »4
Áhersla verður lögð á
smærri páskaegg í ár
Eftir Jón Pétur Jónsson og Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu réðst í gærkvöld til
inngöngu í iðnaðarhúsnæði á Esjumelum á Kjalarnesi þar
sem gríðarlega umfangsmikil kannabisræktun hefur verið
starfrækt. Þar lagði hún hald á nokkur hundruð kannabis-
plöntur á ýmsum stigum ræktunar. Lögregla segist aldrei
hafa séð neitt í líkingu við umfang ræktunarinnar.
Tveir karlmenn voru á staðnum og voru þeir hand-
teknir en um 10 lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum.
„Það er enginn vafi á því að þetta er það stærsta sem við
höfum nokkurn tíma tekið,“ segir Karl Steinar Valsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirmaður fíkniefnadeildar-
innar. Hann telur líklegt að kannabisplöntur hafi verið
ræktaðar í húsnæðinu í nokkur ár.
Á síðustu vikum og mánuðum hefur lögreglan lokað um
20 stöðum, þar sem kannabisplöntur hafa verið ræktaðar,
að sögn Karls Steinars. Hefur hún nú lagt hald á rúmlega
3.000 plöntur sem er mun meira en hún gerði árin 2007 og
2008 samanlagt.
Morgunblaðið/Kristinn
Gróðurhúsið Greinilegt er á aðstæðum að menn kunnu vel til verka við ræktunina, sem var afar umfangsmikil.
Ein stærsta kanna-
bisræktun sögunnar
Sennilega verið starfandi í nokkur ár að mati lögreglu
Tilbúið Gengið var frá þurrkuðum plöntum í poka.