Morgunblaðið - 19.03.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009
EKKI er útilokað að læknar þurfi að hætta að
nota hefðbundnu síðerma sloppana sína. Slopp-
arnir og sýkingarhætta af þeim er meðal þess
sem sérstök nefnd landlæknisembættisins, sýk-
ingavarnadeildar Landspítalans og fleiri hyggj-
ast skoða í sambandi við kröfur um fatnað heil-
brigðisstarfsfólks.
„Umræðan um síðerma sloppa kemur alltaf
upp reglulega, meðal annars vegna þess að í Sví-
þjóð hafa verið settar reglur um að allir sem
sinna sjúklingum eigi að vera í stutterma flíkum.
Hendurnar snerta allt og þar með ermarnar á
sloppunum líka. Það hefur verið sýnt fram á að á
óhreinum sloppum, hvort sem það eru sloppar
lækna eða annarra, geta verið örverur,“ segir Ás-
dís Elfarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deild-
arstjóri sýkingavarnadeildar Landspítalans.
Hún getur þess jafnframt að heilbrigðisstarfs-
menn eigi heldur ekki að vera með úr, armbönd
eða annað á höndum til þess að hægt sé að sótt-
hreinsa þær á viðeigandi hátt þegar búið er að
sinna sjúklingunum.
Dæmi eru um að læknar í Svíþjóð gangi um í
síðerma sloppum en fari úr þeim á meðan þeir
sinna sjúklingum. Nú vill stjórn Akademíska
sjúkrahússins í Uppsölum spara með því að láta
lækna hætta að nota sloppana. Samkvæmt
sænskum fjölmiðlum eru um 8.000 sloppar í um-
ferð á Akademíska sjúkrahúsinu og kostnaður-
inn vegna þeirra í fyrra var um 1,5 milljónir
sænskra króna eða um 20 milljónir íslenskra
króna.
Að sögn Karólínu Guðmundsdóttur, yfirmanns
þvottahúss og dauðhreinsunar á Landspít-
alanum, eru um 5.000 síðerma læknasloppar í
umferð á spítalanum, gróft áætlað. „Kostnaður
vegna þvotta á sloppunum var um 8 milljónir
króna í fyrra. Kostnaður vegna endurnýjunar
var 1 til 1,5 milljónir en þá bættum við reyndar
ekki við jafnmörgum sloppum og áætluð þörf er.“
Karólína bendir á að verði hætt að nota síð-
erma sloppa komi á móti kostnaður vegna efnis-
meiri skyrtna. „Skyrturnar sem læknarnir eru í
undir sloppunum núna eru ekki nógu efnismiklar
til að hægt sé að ganga í þeim einum og sér.“
ingibjorg@mbl.is
Sýkingarhætta af síðerma sloppum
Sérstök nefnd fjallar um kröfur um fatnað heilbrigðisstarfsfólks Sænskir læknar eiga að vera
í stutterma flíkum þegar þeir sinna sjúklingum 5 þúsund síðerma sloppar á Landspítala
Í HNOTSKURN
»Þorbjörn Jónsson, for-maður læknaráðs Land-
spítalans, kveðst ekki vita til
þess að heit umræða sé meðal
lækna hér um ágæti sloppa.
»Formaður sænska lækna-félagsins, Eva Nilsson Bå-
genholm, sagði í viðtali við
sænska sjónvarpið að læknar
þyrftu að vera í sloppum þeg-
ar þeir gengju á milli deilda.
Slopparnir og vasarnir á
þeim væru vinnutæki en ekki
skraut.
»Einnig væri kalt álöngum spítalagöngum.
Morgunblaðið/Ómar
Sýkingarhætta Nefnd fjallar um sloppana.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
ORKUVEITA Reykjavíkur (OR)
þarf að kaupa hlut Hafnarfjarðar í
Hitaveitu Suðurnesja (HS) á 7,6
milljarða króna, auk þess sem hún
þarf að greiða dráttarvexti frá því í
apríl 2008 vegna þessa. Þeir eru um
1,8 milljarðar króna í dag. Dómur
þess efnis féll í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gærmorgun. Niðurstöðunni
verður áfrýjað til Hæstaréttar en
dráttarvextir munu halda áfram að
safnast upp á meðan.
Málið má rekja aftur til þess þeg-
ar íslenska ríkið auglýsti 15,2 pró-
sent af hlut sínum í HS til sölu í upp-
hafi árs 2007. Geysir Green Energy
(GGE) bauð 7,6 milljarða króna í
hlutinn og átti langhæsta tilboðið. Í
kjölfarið lýstu nokkur þeirra sveit-
arfélaga sem áttu í HS því yfir að
þau myndu nýta forkaupsrétt sinn á
hlutnum og selja hann frekar til OR.
Eftir mikla óvissu um framtíð-
areignarhald á hitaveitunni náðist
loks sátt á hluthafafundi í júli 2007. Í
samkomulagi milli stærstu eigenda
kom fram að þeir væru sammála um
að Reykjanesbær myndi eiga 34,7
prósent, GGE 32 prósent, OR 15,6
prósent og Hafnarfjörður 15,4 pró-
sent. Ennfremur skuldbatt OR sig
til að kaupa „allt eða hluta hlutafjár
Hafnarfjarðarbæjar...hvenær sem
er innan 6 mánaða frá undirritun
samnings.“ Sölugengið á hverjum
hlut var ákveðið 7,0.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað
síðan að nýta sér þennan sölurétt í
desember 2007 og selja 95 prósent
af eignarhlut sínum til OR á 7,6
milljarða króna. Á vormánuðum
2008 úrskurðuðu samkeppnisyf-
irvöld hins vegar að OR mætti ekki
eiga meira en tíu prósent í HS og
forsvarsmenn fyrirtækisins litu þá
svo á að sá úrskurður hefði ógilt
kaupsamninginn við Hafnfirðinga.
Því voru Hafnfirðingar ósammála og
stefndu OR því til að standa við
gerðan samning. Héraðsdómur
féllst á málflutning bæjarins í gær-
morgun.
Þarf að borga 9,4 milljarða
Orkuveita Reykjavíkur var í gær dæmd til að greiða Hafnarfirði 9,4 milljarða
króna fyrir hlut hans í Hitaveitu Suðurnesja Niðurstöðunni verður áfrýjað
UNNUR Brá Konráðsdóttir, sveit-
arstjóri Rangárþings ytra, fer í
launalaust leyfi fram yfir kosningar
vegna þingframboðs. Lúðvík Geirs-
son, bæjarstjóri í Hafnarfirði,
reiknar með að taka taka sér frí frá
störfum síðustu vikurnar fyrir
kosningar, ef hann verður á lista.
Unnur Brá varð í þriðja sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi. Hún óskaði eftir
því að hætta sem bæjarstjóri og
samþykkti sveitarstjórn í gær að
veita henni launalaust leyfi fram að
kosningum. Elvar Eyvindsson mun
leysa hana af hólmi.
Lúðvík Geirsson varð í þriðja
sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar
í Suðvesturkjördæmi. Hann sóttist
eftir fyrsta sætinu og sagði sam-
starfsfólki sínu þá frá því að hann
myndi gegna embætti sínu fram yf-
ir kosningar. Farið verður yfir mál-
ið í ljósi úrslitanna. Lúðvík hefur
ekki svarað boði kjörnefndar um
þriðja sætið. helgi@mbl.is
Unnur Brá í
frí fram yfir
kosningar
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Lúðvík
Geirsson
FRAMSÝN – stéttarfélag Þing-
eyinga telur að samninganefnd ASÍ
eigi þegar í stað að rifta sam-
komulagi sem gert var við Samtök
atvinnulífsins um frestun á launa-
hækkunum.
Í ályktun segir að fréttir af arð-
greiðslum til eigenda HB Granda
beri með sér að séu til fyrirtæki
sem hafi fulla burði til að standa við
kjarasamninga. „Á þetta hefur
Framsýn margsinnis bent og lagð-
ist því gegn frestun launahækkana.
Hins vegar var góður meirihluti að-
ildarfélaga ASÍ með frestun. Í ljósi
ákvörðunar HB Granda verður því
seint trúað að verkalýðshreyfingin
ætli að sitja hjá og viðurkenna
þennan gjörning sem er siðlaus
með öllu.“ Framsýn skorar á stjórn-
endur HB Granda að falla frá arð-
greiðslum til hluthafa og hækka
þess í stað laun starfsfólks.
Vilja rifta
samningum
SIGRÍÐUR Gunnarsdóttir og Sigrún Jónsdóttir
stóðu vaktina á bás eldri borgara í Fjarðaport-
inu á Reyðarfirði síðastliðinn sunnudag þar sem
ýmiss konar hannyrðir voru m.a. til sölu. Fjarða-
portið er rekið í anda Kolaportsins í Reykjavík
en samhliða því er einnig rekinn nytjamarkaður
og umboðssala. Þetta var þriðji sunnudagurinn
sem opið var og hafa viðtökurnar verið frábærar
að sögn forsprakkans, Sigurðar Jenssonar.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Lífleg sala á litríkum vörum
Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR,
segir að niðurstaðan komi sér veru-
lega á óvart. „Samkeppniseftirlitið
og áfrýjunarnefnd samkeppn-
ismála höfðu komist að þeirri nið-
urstöðu að við mættum ekki eiga
nema tíu prósent í félaginu. Við átt-
um fyrir um sextán prósent og því
var erfitt fyrir okkur að bæta við
okkur tæpum fimmtán prósentum.
Við töldum að lög landsins stæðu
gegn því. Dómarinn kemst hins
vegar að annarri niðurstöðu.“
Hann telur OR þó ekki eiga eftir
að lenda í erfiðleikum með að fjár-
magna kaupin ef Hæstiréttur stað-
festir niðurstöður héraðsdóms.
„Ég tel að við getum gert það.
Þetta er góð eign. En það verður að
koma í ljós og það gefst töluverður
tími til þess að velta þeim hlutum
fyrir sér ef málið fer líka fyrir
Hæstarétt. Ég held líka að bankar
og lánastofnanir séu nú að fara að
taka við sér um allan heim. Það
hafa aðilar sýnt þessari eign
áhuga, bæði vestan og austan
hafs.“
Áhugi á hlutnum bæði vestan hafs og austan