Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 6. A P R Í L 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
94. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
NÝBÚINN ER HIÐ
MESTA HNOSSGÆTI
Haukar mæta Fram og Valur leikur
við HK í undanúrslitunum um Ís-
landsmeistaratitilinn í handknatt-
leik karla. Stjarnan þarf að fara í
umspil um sæti í úrvalsdeildinni.
ÍÞRÓTTIR
Haukarnir lenda á
móti Frömurum
Sautján ára ítalskur strákur var
hetja Manchester United í gær þeg-
ar hann skoraði sigurmarkið á síð-
ustu stundu í sínum fyrsta leik í
ensku úrvalsdeildinni.
Ítalskur táningur
bjargaði Man. Utd.
Þrír Íslendingar eru komnir í fjög-
urra liða úrslit Meistaradeildar
Evrópu í handknattleik, hver með
sínu liði og því ljóst að minnst einn
þeirra leikur til úrslita.
Íslendingur í
úrslitaleiknum
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
SEÐLABANKI Íslands óttaðist að
áhlaup yrði gert á Nýja Kaupþing
sem bankinn myndi ekki ráða við ef
MP banki fengi að kaupa útibúanet
SPRON. Heimildir Morgunblaðsins
herma að Seðlabankinn hafi talið
mögulegt að fyrrum viðskiptavinir
SPRON, sem hafa verið fluttir til
Nýja Kaupþings, myndu flykkjast
aftur yfir í sín gömlu útibú með þeim
afleiðingum að Kaupþing hefði ekki
bolmagn til að greiða út allar innstæð-
ur þeirra.
Vegna þessa hefur Seðlabankinn
beitt sér fyrir því að Fjármálaeftirlit-
ið (FME) tefji kaup MP banka á úti-
búanetinu og Netbankanum, nb.is, en
kaupin eru háð samþykki FME.
Deilur komu í veg fyrir opnun
Til stóð að útibú SPRON myndu
verða opnuð í dag en deilur helgarinn-
ar komu í veg fyrir það. Allir máls-
aðilar unnu að lausn þess í gær og leit-
að var leiða til að sætta sjónarmið.
Líkur eru á því að endanleg niður-
staða liggi fyrir síðar í dag.
Stjórnendur Nýja Kaupþings hót-
uðu skilanefnd SPRON lögsókn
vegna sölu á eignunum í síðustu viku,
en nefndin hafði þá samþykkt að selja
MP banka þær á 800 milljónir króna.
Sú ráðstöfun olli Kaupþingsmönnum
áhyggjum þar sem þeir töldu að eign-
ir SPRON hefðu átt að vera til trygg-
ingar þeim innlánum sem færð voru
yfir í bankann. Því hefði getað komið
upp sú staða að útvega þyrfti fjár-
magn með mjög skömmum fyrirvara,
annaðhvort með fyrirgreiðslu frá
Seðlabankanum eða með brunaútsölu
á eignum SPRON, til að standast
áhlaup fyrrum viðskiptavina SPRON.
Óttast áhlaup á Kaupþing
Flótti viðskiptavina SPRON yfir í MP
banka gæti valdið vanda við útgreiðslu
Í HNOTSKURN
»Þegar innlán SPRON voruflutt yfir í Nýja Kaupþing
var greitt fyrir með skulda-
bréfi sem tryggt var með öll-
um eignum SPRON.
»Er skilanefnd SPRONseldi hluta af eigum sjóðs-
ins taldi Kaupþing að verið
væri að selja eignir sem væru
veðsettar Kaupþingi.
»Samkomulag MP banka ogskilanefndar er háð sam-
þykki FME.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
kom saman í gærkvöldi til að ræða
hvernig bregðast ætti við því að
Norður-Kóreumenn skutu á loft
eldflaug. Stjórnvöld í Bandaríkj-
unum og Japan sögðu að eldflaug-
arskotið væri brot á ályktun örygg-
isráðsins og kröfðust þess að
Norður-Kóreumönnum yrði refsað.
Talið var líklegt að Kínverjar og
Rússar, sem eru með neitunarvald í
ráðinu, kæmu í veg fyrir að sam-
þykktar yrðu refsiaðgerðir gegn
Norður-Kóreu. Talið er að skotið
hafi verið eldflaug af gerðinni
Taepodong-2, sem hægt væri að
skjóta frá N-Kóreu til Alaska. » 15
Deilt um eldflaugarskot á
fundi öryggisráðsins
Spenna Eldflaugarskoti mótmælt í Seoul.
Guðbjartur Hannesson, forseti
Alþingis, segir helmingslíkur á
þinglokum fyrir páska. Þingflokks-
formaður Samfylkingarinnar segir
meiri líkur en minni á áframhald-
andi fundum eftir páska. Bjarni
Benediktsson vill ekki segja fyrir
um þinglok, en segir hægt að ljúka
þingstörfum á tveimur dögum ef
menn nái sátt í stjórnskipunarmál-
inu. Ekki horfir til sáttar. » 6
Líklega verður þrefað um
þingmálin fram yfir páska
Skuldabréf Stoða/FL Group, sem
Glitnir keypti úr tveimur sjóðum
sínum í lok september, eru að mestu
töpuð. Bréfin voru á sínum tíma
keypt fyrir 11,9 milljarða króna.
Árni Tómasson, formaður skila-
nefndar Glitnis, segir að nauða-
samningar sem lagðir hafi verið
fram þýði í raun að fimm prósent af
kröfunum fáist til baka. » 14
Stoðabréf sem keypt voru
úr Sjóði 9 að mestu töpuð
ÍSLANDSMÓTIÐ innanhúss í tennis stóð yfir í
Tennishöllinni um helgina og lýkur reyndar
með úrslitaleikjum í meistaraflokkum karla og
kvenna á miðvikudaginn. Keppt var í öllum
aldursflokkum og voru þátttakendur tæplega
80 talsins á aldrinum 6 til 62 ára. Þessi unga
stúlka sýndi fín tilþrif og á örugglega eftir að
gera það gott á fleiri tennismótum í framtíð-
inni. Íþróttir
Tennis með tilþrifum
Morgunblaðið/Kristinn
BLÚS OG FLEIRA
FYRIR TÓNELSKA
«FLUGAN FER VÍÐA