Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 24
24 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2009 ÞAÐ KOM mér í opna skjöldu að bæj- arfulltrúi Kópavogs sæi ofsjónum yfir því að Sjómannadagsráð tæki fyrstu skóflu- stunguna að byggingu leiguíbúða (öryggis- og þjónustuíbúða) fyr- ir 60 ára og eldri við Boðaþing þann 27. mars sl. Dagsetning þessi var valin í til- efni merkra tímamóta. 28. mars 1939 fyrir 70 árum lagði stefnu- skrárnefnd Sjómannadagsráðs fram þá tillögu að auk þess að standa að hátíðahöldum sjó- mannadagsins skyldu samtökin byggja dvalar- og hjúkrunarheimili fyrir aldraða farmenn og fiski- menn. Þeirri stefnu hefur verið fylgt síðan og fleiri en sjómenn notið góðs af. Hafa samtökin byggt Hrafnistuheimilin í Reykjavík og Hafnarfirði og í námunda við heim- ilin 82 raðhús og 39 blokkaríbúðir sem eru í einkaeign en íbúar njóta þjónustu frá Hrafnistuheimilunum, en auk þess eiga og reka samtökin 88 leiguíbúðir. Mættu ekki við skóflustunguna Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, gerir lítið úr fyrrnefndri athöfn og setur þetta þjóðþrifamál í hlægi- legt samhengi í Morgunblaðinu 2. apríl sl. og í flimt- ingum er að því látið liggja að við Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri höfum ætlað að hand- moka grunninn, svo margar skóflustungur hafi verið teknar á svæðinu. Guðríður getur þess í fyrr- nefndri grein að bæj- arfulltrúar Samfylk- ingarinnar hafi ekki mætt við skóflustungu 27. mars. Og orðrétt: „Með því vorum við ekki að sýna væntanlegri byggingu Þjónustumiðstöðvar við Boðaþing vanvirðingu, heldur töldum við fyrstu skóflustungu löngu tekna.“ Bæjarfulltrúinn Guðríður Arn- ardóttir virðist ekki átta sig á því að af hálfu Sjómannadagsráðs var skóflustunga tekin vegna fram- kvæmda við byggingu leiguíbúða, öryggis- og þjónustuíbúða sem Sjó- mannadagsráð byggir og til frekari upplýsingar fyrir bæjarfulltrúann þá er Þjónustumiðstöðin við Boða- þing nærri fulluppsteypt. Og enn til áréttingar, þá eru bygging- arframkvæmdir við hjúkr- unarheimili og þjónustumiðstöð við Boðaþing ekki á vegum Sjó- mannadagsráðs heldur Kópavogs- bæjar. Ég er þakklátur Gunnari fyrir að ryðja burt fyrstu þúfunni með mér. Hálfnað er verk þá hafið er segir máltækið. Ég er sömuleiðis þakklátur öllum þeim sem mættu með skömmum fyrirvara til að taka þátt í þessum hátíðlega og langþráða viðburði. Þarna voru bæjarfulltrúar allra flokka í bæn- um nema Samfylkingarinnar auk fjölmargra fulltrúa eldri borgara sem buðu hraglandanum þennan eftirmiðdag byrginn til að gleðjast með okkur. Alls munu rísa 95 þjónustu- og öryggisíbúðir á vegum Sjó- mannadagsráðs. Framkvæmdir við fyrri áfanga, samtals 48 íbúðir, hefjast nú í vor. Hönnun og skip- lag þjónustu- og öryggisíbúðanna miðast við að aldraðir geti sem lengst haldið eigið heimili og nýtt sér þá þjónustu sem Hrafnista og Kópavogsbær bjóða í Boðaþingi, svo sem fæði, heimilishjálp eða heimahjúkrun. Innangengt verður úr íbúðunum yfir í þjónustu- miðstöð aldraðra og hjúkr- unarheimili sem Kópavogsbær byggir við Boðaþing 9 í samstarfi við ríkið. Í þessu árferði er ástæða til að fagna framkvæmdum og athafna- semi og sérstalega þegar þær snúa að velferð aldraðra. Ég óska Kópa- vogsbúum margra skóflustungna í framtíðinni. Kaldar kveðjur við Boðaþing Guðmundur Hall- varðsson skrifar um byggingu þjónustu- og öryggisíbúða í Kópavogi » Í þessu árferði er ástæða til að fagna framkvæmdum og at- hafnasemi og sér- staklega þegar þær snúa að velferð aldr- aðra. Guðmundur Hallvarðsson Höfundur er formaður Sjómannadagsráðs. Í ÞEIRRI efna- hagskreppu sem nú hrjáir heimsbyggðina og þó einkum Ísland er erfitt að vera bjartsýnn. Ástandið í landinu versnar hratt og fer varla að skána fyrr en eftir 1-2 ár. Við vitum þó að allar kreppur taka enda og vöxtur tekur við. En hvenær og hversu hratt við Ís- lendingar komust upp úr öldu- dalnum fer að hluta til eftir því hvenær almennt efnahagsástand í heiminum lagast en þó ekki síður eftir því hvernig við bregðumst við og nýtum tækifæri okkar og auðlindir. Við erum svo lánsöm að auð- lindir okkar felast í því sem heim- urinn mun alltaf nauðsynlega þurfa: mat, orku, hreint neyslu- vatn og þekkingu. Allt þetta eig- um við í þeim mæli að við getum miðlað til annarra landa og haft jafnframt atvinnu og hag af. Orkuþörf heimsins fer hraðvax- andi, einkum vegna örrar iðnþró- unar í fátækum ríkjum. Fyr- irsjáanlegt er að stærsta hluta þeirrar orku verður að óbreyttu aflað með brennslu jarðefnaelds- neytis. Því fylgir mikil aukning á útblæstri gróðurhúsalofttegunda með tilheyrandi hlýnun jarðar. Til að koma í veg fyrir að sú ískyggilega heimsmynd, sem dregin er upp af afleiðingum hlýn- unar andrúmsloftsins, verði að veruleika sjá menn einkum fyrir sér aukna notkun endurnýj- anlegra orkulinda og kjarnorku, orkusparnað og geymslu koltví- sýrings djúpt í jarðlögum. Menn vita líka að ekki er til nein töfralausn á orkuvandanum, engin ein lausn, engin ein end- urnýjanleg orkulind mun breyta sérlega miklu. Lausnin felst hins vegar í því að nota blöndu af öll- um þeim aðgerðum sem að ofan eru nefndar þar sem hver um sig leggur lítið lóð á vogarskálarnar en sem í sameiningu geta gert mikið. Við Íslendingar erum vel settir í orkumálum. Við eigum gnótt af endurnýjanlegri orku, jarðhita og vatnsorku, sem má framleiða ódýrt á heims- mælikvarða. Vindorka er líka ríkuleg á landinu en hún er þó dýrari til framleiðslu rafmagns. Mikli orka er fólgin í sjávarföllum og ölduhreyfingum hafsins en tækni til að beisla þær er enn skammt á veg komin. Ef til vill eigum við líka olíulindir norður á Jan Mayen-hrygg en fyrir því er engin fullvissa enn. Það sem er í hendi nú er vatnsaflið og jarðhit- inn. Gamalt mat frá árinu 1994 gef- ur til kynna að afla megi allt að 40 TWh (terawattstundir) af raf- orku árlega úr vatnsorku og 20 TWh úr jarðhita, sem er um fimmföld raforkuframleiðsla á landinu nú. Þá hefur ekki verið tekið tillit til takmarkana vegna umhverfisverndar. Margt bendir til þess að hvorug þessara talna gefi rétta mynd að raunveruleik- anum. Til að vinna 40 TWh úr vatnsorku þarf væntanlega að virkja vatnsföll langt umfram það sem nokkru sinni næðist sátt um að gera af umhverf- isástæðum eða vegna annarrar nýtingar vatnsfallanna. Að nokkru leyti gildir hið sama um jarðhitann og vatnsorkuna, sum jarðhitasvæði verða trauðla virkjuð vegna þess að menn vilja halda þeim lítt rösk- uðum eða nýta þau eingöngu til annars. Gildir þá einu þótt áhrif af virkjun jarðhita geti að mestu verið afturkræf. Matið á mögulegri raforkuvinnslu úr jarð- hita er þó engu að síður líklega of lágt. Það tekur fyrst og fremst mið af því að vinna raforku innan þekktra háhitasvæða og ofan 3 km dýpis. Á móti kemur að með því að ná valdi á þeirri tækni sem nauðsynleg er til að nýta dýpri hluta jarðhitakerfanna gæti vinnslugetan vaxið verulega. Það er þó ljóst að leysa þarf ýmis tæknileg vandmál til þess að svo geti orðið. Við höfum dæmi um gríðarlega aflmiklar háhitaholur, sem fá orku sína úr kvikuinn- skotum háhitakerfa og ekki er hægt að nýta vegna óhagstæðrar efnasamsetningar vökvans. Veru- legar rannsóknir þarf til að þróa þá tækni sem þarf til að beisla þessa orku. Takist það verður ávinningurinn geysimikill, bæði strax en ekki síður til framtíðar. Við þurfum auðvitað að velta því fyrir okkur hvernig við eigum að nýta þessa orku sem best. Í meg- inatriðum eru leiðirnar tvær, að nýta orkuna innanlands eða selja hana til útlanda. Fyrri kosturinn krefst þess að við höldum áfram á braut orkufreks iðnaðar á Íslandi. Kostur þeirrar leiðar felst fyrst og fremst í meiri atvinnuuppbygg- ingu í landinu. Hin leiðin felur í sér að leggja rafkapla til grann- landanna og selja raforku beint inn á neytendamarkað í Evrópu. Það fæst hátt verð fyrir endurnýj- anlega orku miðað við það sem fæst fyrir rafmagn til stóriðju á Íslandi en spurningin er þá um flutningskostnaðinn. Þetta var kannað fyrir allmörgum árum og þótti þá of dýrt. Þetta gæti verið að breytast og því er nauðsynlegt að hagkvæmni þess að leggja neð- ansjávarstreng til Evrópu verði endurmetin. Kannski er kreppu- tími einmitt sá rétti til svona framkvæmda. Kjarni málsins er að við erum rík að endurnýjanlegum orkulind- um og þekkingu til að nýta þær okkur sjálfum og heimsbyggðinni til hagsbóta. Spurningin er bara hvort við viljum. Orkulindir Íslands og framtíðin Ólafur G. Flóvenz skrifar um orkumál Ólafur G. Flóvenz » Íslendingar eiga verðmætar orku- lindir sem geta skapað störf og við getum lagt okkar af mörkum til hnattrænna umhverf- ismála. Spurningin er bara hvort við viljum. Höfundur er forstjóri Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR). UNDANFARIN ár hafa efnahagslegar hamfarir farið sem eld- ur í sinu um samfélagið. Veldur því háþróaður þjófafaraldur. Hann hefur riðið yfir þjóðina af meiri græðgi og sið- leysi en jafnvel Sturl- ungar þekktu. Þjóðin veit hvaða menn voru þar að verki og fyrirlítur þá af öllu hjarta. Þeir hins vegar undrast hörð viðbrögð hennar og segjast saklausari en sjálfur Kristur. Á forsíðu Morgunblaðsins 7. mars sl. blasir við stór fyrirsögn af und- anskoti eigenda Kaupþings upp á tæpa fimm hundruð milljarða króna. Upphæð sem hinn drenglyndi Davíð S. Þorsteinsson sagði ómögulegt að skilja. Sauðsvörtum almúganum hlýtur að verða hált á hinu huglæga svelli, fyrst menn eins og Davíð villast í því mikla rými. Nú líður að deginum sem þjóðin hefur völdin. Undanfarna áratugi hef- ur hún látið trúgirni sína og barnalega flokkstrú eyðileggja möguleika til betra lífs þar sem jafnrétti ríkir; þar sem konur hafa sama rétt og karlar í launum sem öðru og fatlað fólk er ekki niðurlægt eða gleymt. Er ekki undarlegt hvað græðgi- væddum öflum hefur vaxið fiskur um hrygg og þjóðfélagi voru hnignað í skjóli vaxandi andúðar á kristinni trú? Ætlar þjóðin aldrei að skilja að græðgin og pólitíkin eru skaðlegustu trúaröflin? Í þeirra skjóli blómstra arðránsöflin og lítilmennskan. Í því skjóli er nú ljóst að stjórnmálaflokk- arnir munu í komandi kosningum höggva í sama knérunn og engu breyta. Staðnaðir og úrræðalausir munu þeir halda sig við sama hey- garðshornið. Loforðavaðallinn mun fylla kjósendur falskri bjartsýni eins og gerst hefur á fjögurra ára fresti í óralangan tíma. Menn munu koma og fara. Menn munu lofa og gleyma. Allt verður eins, því þeir sem gleypt hafa eignir þjóðarinnar vilja að svo sé. Ekkert mun breytast fyrr en þjóðin fer að trúa á sjálfa sig og hagar sér samkvæmt því. Hættir að vera leiksopp- ur eigin glámskyggni og sýndarmennsku, því það gefur óvönduðum færi á að hlunnfara hana. Þjóðin þarf þingmenn líka Katrínu J. og Jóhönnu. Þar næst Valgerði, Ástu Ragnheiði, Þórunni S. og Kol- brúnu B. ef hún slær af skaðlegum misskilningi sínum í sumum umhverf- ismálum. Of lengi hafa skaðvaldar ver- ið vegsamaðir af þjóðinni og forseti vor blessað þá. Glámskyggni gætir hins vegar ekki hjá alþýðlegu konunni hans, sem svo blessunarlega er laus við snobb og sýndarmennsku. Mig langar að gefa ykkur sýn á það mikla djúp sem skilur að göf- ugmennsku og græðgi. Nýlega sá einn af ríkustu mönnum landsins sig neyddan til að selja þriggja milljarða íbúð sína og 50 metra langa lysti- snekkju. Líka einkaþotu sína og lúxus Rolls-bíl. Auðvitað fer svona nokkuð illa með menn. En hverjum er um að kenna? Mér skilst að þetta sé aðeins brot af eigum þessa snjalla athafnamanns. Vonandi er rétt sem ég hef heyrt, að hann hafi fetað í spor síns gjafmilda föður og lát- ið gott af sér leiða hér heima sem í fá- tækum löndum. En hvað sem því líður er bruðlið óskaplegt og yfirþyrmandi. Slíkt skilur ekkert eftir nema tóm. En þeir sem mest hafa skaðað þjóð okkar eru mennirnir sem áttu bank- ana og véluðu fólkið sem treysti þeim. Menn sem voru óheyrilega gráðugir og siðblindir. Menn sem svifust einskis til að skara eld að eigin köku. Í hróp- legri mótsögn við fyrrnefnda skart- menn er svo tvítugi neminn Stefán John, eða Stebbi eins og hann er kall- aður. Tíminn sem hann mögulega get- ur séð af frá námi og álíka fer í vinnu hjá Félagsþjónustunni. Þannig fjár- magnar hann nám sitt með vinnu aðra hvora helgi og mörg síðdegi. Þessi maður hefur ekki 65 milljónir á mán- uði eins og sumir fyrrverandi banka- eigendur skömmtuðu sér. Það segir sig sjálft að Stebbi má hafa sig allan við, eigi hann að ná endum saman. Þó gaf hann langveikum börnum stóra peningaupphæð sem honum var óvænt gefin. Hugsið ykkur gjána sem skilur að unga nemann og fjárfestana. Já, það er mikið djúp sem skilur að göfgi og græðgi. Meðan efnahags- kreppan varir verða börnin verst úti. Sérstaklega þau sem veik eru og þau í fátæku löndunum. Fyrir skömmu kom ég að beiðni Ás- dísar Jennu Ástráðsdóttur heim til hennar að veita henni lið. Hún hafði fallist á að hjálpa 15 ára unglings- stúlku sem byrjaði að veikjast af óþekktum sjúkdómi sjö ára gömul. Sú er í hjólastól, að verða blind, heyrn- arlaus og mállaus. Enn má þó skilja hana. Ég átti að miðla af minni reynslu, en Ásdís var einfær um að hjálpa. Sá manndómur, reisn og kjarkur, sem geislaði frá þessum mikið fötluðu ungu stúlkum, er nánast yfirnátt- úrlegur. Það er heiður að kynnast slík- um yfirburðamanneskjum. Fleiri konur á þing og þjófalaust Ísland Albert Jensen skrifar um samfélagsmál Albert Jensen » Stebbi má hafa sig allan við, eigi hann að ná endum saman. Þó gaf hann langveikum börnum stóra peninga- upphæð sem honum var óvænt gefin … Höfundur er fv. húsasmíðameistari. , ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.